Beint í efni

Vetrarmýri, dsk breyting, golfskálasvæði.

Málsnúmer 2504130

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (959). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist þannig að sá hluti svæðisins sem er inni á golfvallarsvæði er felldur út eða það svæði sem deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts nær til og er nú í auglýsingu. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning var felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.

Bæjarráð Garðabæjar

02

17. (2165). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist þannig að sá hluti svæðisins sem er inni á golfvallarsvæði er felldur út eða það svæði sem deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts nær til og er nú í auglýsingu.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning var felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist þannig að sá hluti svæðisins sem er inni á golfvallarsvæði er felldur út eða það svæði sem deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts nær til og er nú í auglýsingu.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning er felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.