Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 vegna breyttrar landnotkunar Hrauns vestur, nr. 0723/2024
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Lögð fram greinargerð skipulagstjóra um tillöguna, sem send hefur verið inn sem umsögn í skipulagsgátt, þar sem m.a. eru gerðar athugasemdir.
Skipulagsnefnd tekur undir umsögn og athugasemdir skipulagsstjóra.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
13. fundur
Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðar gerði grein fyrir tillögum að fyrirhuguðum skipulagsbreytingum á Hraunum vestur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur óskað eftir umsagnarfresti til og með 10. október. Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 sem er á forkynningarstigi.
Umsögn skipulagsnefndar Garðabæjar er eftirfarandi:
Með breytingu á landnotkun Hrauns vestur í aðalskipulagi Hafnarfjarðar í miðsvæði (M) telur Garðabær að sú mikla aukning á umferð sem breytingin gerir ráð fyrir muni hafa áhrif innan bæjarmarka Garðabæjar.
Garðabær óskar eftir góðu og virku samtali vegna þátta sem snúa að stíga- og gatnatengingum milli sveitarfélaganna og tekur undir umsögn Vegagerðarinnar, þar sem nefnt er að samtal þurfi að eiga sér stað við bæði Hafnarfjarðarbæ og Garðabæ um hönnun Álftanesvegar og útfærslu tilheyrandi gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar óskar eftir kynningu við mótun tillögu á næstu stigum í skipulagsferlinu á fyrirhuguðum breytingum á aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem snúa að Hrauni Vestur ásamt samgöngumati fyrir svæðið.