Garðprýði 4 - hækkun á vegg - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2412118
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn með nýrri útfærslu á þakgerð í kjölfar samráðs við skipulagsstjóra.
Skipulagsnefnd telur að útfærslan sé í samræmi við markmið deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
7. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu byggingar sem gerir ráð fyrir hámarkshæð húss með flötu þaki sé 7,2 m.
Skipulagsnefnd fellst ekki á að breyta ákvæðum deiliskipulags með þeim hætti að vegghæð húss sé 7,2 metrar á allar hliðar í stað 6,5 m, jafnvel þó að ein hlið geti verið allt að 8,5 m. Nefndin telur það vera frekar í anda deiliskipulagsins ef þakflötur sé annað hvort hallandi eða uppbrotinn.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
17. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu á byggingu.
Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.