Beint í efni

Gilsbúð 9 (Sómi) stækkun byggingareits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2502084

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (972). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Búða sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð að Gilsbúð 9 og niðurfellingu kvaðar um holræsi að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur. Gerð er athugasemd við að byggingarreitur sé stækkaður í átt að lóðum við Smiðsbúð og að fjarlægð á milli byggingarreita sé minni en 8 metrar. Skipulagsnefnd benti á að í deiliskipulagi Búða eru dæmi þess að fjarlægð á milli byggingarreita er álíka mikil og tillagan gerir ráð fyrir. Við veitingu byggingarleyfis fyrir viðbyggingu verður að tryggja að fullt tillit sé tekið til nálægðar og kröfur um brunavarnir uppfylltar. Einnig var gerð athugasemd við neikvæð áhrif á ásýnd en skipulagsnefnd telur vel hægt að útfæra byggingu þannig að ásýnd sé sambærileg við aðrar atvinnubyggingar á sama skipulagssvæði. Með vísan í ofangreint samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Búða í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

1. (2196). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Búða sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð að Gilsbúð 9 og niðurfellingu kvaðar um holræsi að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Gerð er athugasemd við að byggingarreitur sé stækkaður í átt að lóðum við Smiðsbúð og að fjarlægð á milli byggingarreita sé minni en 8 metrar.
Skipulagsnefnd benti á að í deiliskipulagi Búða eru dæmi þess að fjarlægð á milli byggingarreita er álíka mikil og tillagan gerir ráð fyrir. Við veitingu byggingarleyfis fyrir viðbyggingu verður að tryggja að fullt tillit sé tekið til nálægðar og kröfur um brunavarnir uppfylltar. Einnig var gerð athugasemd við neikvæð áhrif á ásýnd en skipulagsnefnd telur vel hægt að útfæra byggingu þannig að ásýnd sé sambærileg við aðrar atvinnubyggingar á sama skipulagssvæði.
Með vísan í ofangreint samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Búða í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Búða sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð að Gilsbúð 9 og niðurfellingu kvaðar um holræsi að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Gerð er athugasemd við að byggingarreitur sé stækkaður í átt að lóðum við Smiðsbúð og að fjarlægð á milli byggingarreita sé minni en 8 metrar.
Skipulagsnefnd bendir á að í deiliskipulagi Búða eru dæmi þess að fjarlægð á milli byggingarreita er álíka mikil og tillagan gerir ráð fyrir. Við veitingu byggingarleyfis fyrir viðbyggingu verður að tryggja að fullt tillit sé tekið til nálægðar og kröfur um brunavarnir uppfylltar. Einnig er gerð athugasemd við neikvæð áhrif á ásýnd en skipulagsnefnd telur vel hægt að útfæra byggingu þannig að ásýnd sé sambærileg við aðrar atvinnubyggingar á sama skipulagssvæði.
Með vísan í ofangreint samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Búða í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

18. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Tillögu og athugasemd vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

14. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Búða sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð og að kvöð um hölræsi verði felld niður, þar sem holræsi hefur verið lagt í götu við Gilsbúð en ekki þar sem kvöðin nær til.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Búða í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum við Gilsbúð 7 og Smiðsbúð 8, 10 og 12.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

7. (959). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2025 varðandi fyrirspurn um útfærslu iðnaðarbyggingar sem kallar á stækkun byggingarreits á baklóð sem nær yfir kvöð um holræsi með fram lóðarmörkum. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísaði tillögu þess efnis til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu og felli um leið niður kvöð um holræsi ef tillagan nær fram að ganga, enda hefur holræsi verið lagt í götu við Gilsbúð en ekki þar sem kvöðin nær til.

Bæjarráð Garðabæjar

07

17. (2165). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2025 varðandi fyrirspurn um útfærslu iðnaðarbyggingar sem kallar á stækkun byggingarreits á baklóð sem nær yfir kvöð um holræsi með fram lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísaði tillögu þess efnis til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu og felli um leið niður kvöð um holræsi ef tillagan nær fram að ganga, enda hefur holræsi verið lagt í götu við Gilsbúð en ekki þar sem kvöðin nær til.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

7. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu iðnaðarbyggingar sem kallar á stækkun byggingarreits á baklóð sem nær yfir kvöð um holræsi með fram lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu þess efnis til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu og felli um leið niður kvöð um holræsi ef tillagan nær fram að ganga, enda hefur holræsi verið lagt í götu við Gilsbúð en ekki þar sem kvöðin nær til.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

2. fundur

Lögð fram fyrirspurn um stækkun verksmiðjuhúsnæðis að lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt lóðarblaði er kvöð um holræsi á þeim stað sem stækkaður byggingarreitur yrði samkvæmt fyrirspurn.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.