14. fundur
14. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
29.10.2025
Kl. 11:00 - 12:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2510125
01
Álftanesv. Hraunborg 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2510310
02
Landakot II - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Landakot II, Álftanesi, Garðabæ.
Umsóknin felur í sér uppbyggingu íbúðar í rými sem nú er skilgreint sem tónlistarstofa. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að breyta útihúsum í íbúðarhús með vinnustofum. Í húsinu mega vera allt að þrjár íbúðir.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2510205
03
Hraunhólar 6a - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu aðaluppdrátta. Hluti byggingar nær lítilsháttar út fyrir byggingarreit. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar, hvað ofangreint atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2502084
04
Gilsbúð 9 (Sómi) stækkun byggingareits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Búða sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð og að kvöð um hölræsi verði felld niður, þar sem holræsi hefur verið lagt í götu við Gilsbúð en ekki þar sem kvöðin nær til.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Búða í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum við Gilsbúð 7 og Smiðsbúð 8, 10 og 12.
Málsnúmer 2510267
05
Draumahæð 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsóknin felur í sér byggingu nýrra kvista á suðurhlið raðhússins Draumahæðar 2-6. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2510204
06
Maríugata 35 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu lóðar við Maríugötu 35. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærsluna.
Málsnúmer 2510381
07
Flóttamannavegur (410) Gatnamót við Urriðaholtsstræti - Umsókn um framkvæmdarleyfi
Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdarleyfi fyrir gerð hringtorgs við gatnamót Flóttamannavegar og Urriðaholtsstrætis. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir gerð gatnamóta sem eru í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.