Hrauntunga,breyting á deiliskipulagi Garðahrauns.
Málsnúmer 2411158
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi kynnti fyrir hönd lóðarhafa tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir einbýlishúsabyggð á landi Hrauntungu við Garðahraunsveg (Gamla Álftanesveg).
Vísað til úrvinnslu hjá lóðarhafa, ráðgjafa og Umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
17. fundur
Þráinn Hauksson hjá Landslagi kynnti hugmyndir um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir einbýlishúsabyggð á lóðinni Hrauntungu við gamla Álftanesveg (Garðahraunsveg). Tillagan er unnin á vegum lóðarhafa.
Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjafa.
Baldur Ó. Svavarsson vék sem fundarmaður.