Beint í efni

Hnoðraholt Norður, dsk breyting, austurhluti Vorbrautar.

Málsnúmer 2503226

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (959). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurs sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist þannig að austasti hluti Vorbrautar verður felldur út eða það svæði sem deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts nær til og er nú í auglýsingu. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning er felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts norður. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.

Bæjarráð Garðabæjar

02

18. (2166). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurs sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist þannig að austasti hluti Vorbrautar verður felldur út eða það svæði sem deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts nær til og er nú í auglýsingu.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning er felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts norður. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurs sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist þannig að austasti hluti Vorbrautar verður felldur út eða það svæði sem deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts nær til og er nú í auglýsingu.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning er felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts norður. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Umhverfissviði falið að láta vinna tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til austasta hluta Vorbrautar og tengingar við Öldusali.
Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs og ráðgjafa að unnin verði greinargerð sem metur áhrif umferðar á Vorbraut. Sérstakalega skal horft til áhrifa á hljóðvist.