Hnoðraholt norður-deiliskipulagsbreyting - raðhús - fjölbýlishús íbúðareiningar
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (957). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúsum og fjölbýlishúsum. Tillagan hefur verið samþykkt í bæjarstjórn en Skipulagsstofnun bendir á í erindi sínu dags. 10. mars að skýra þurfi betur afstöðu bæjarstjórnar til athugasemda Kópavogsbæjar sem borist hafa. Athugasemd Kópavogsbæjar laut að því að fjölgun íbúða í Hnoðraholti hafi ekki neikvæð áhrif á lóðir í landi Kópavogsbæjar og að ákvörðun um fyrirkomulag Vorbrautar sunnan Þorrasala liggi fyrir áður en umrætt svæði er tekið í notkun. Skipulagsnefnd lagði til að eftirfarandi ákvæði yrði bætt við í greinargerð tillögunnar sem sett fram á uppdrætti: Í kafla 2.7.1 Gatnakerfi í greinargerð deiliskipulags Hnoðraholts norður er sett fram stefna um legu og útfærslu Vorbrautar sunnan við Þorrasali í Kópavogi. Áfram er stefnt að því að lega og útfærsla Vorbrautar til austurs verði eins og rammahluti aðalskipulagsins kveður á um. Tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts sem forkynnt var í febrúar 2025 gerir ráð fyrir því að sú leið verði farin að Vorbraut færist fjær íbúðarbyggð við Þorrasali, auk þess að vera talsvert neðar í landi. Skipulagsnefnd benti einnig á bókun skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts þar sem þeim tilmælum er beint til umhverfissviðs og ráðgjafa að unnin verði greinargerð sem metur áhrif umferðar á Vorbraut. Sérstakalega skuli þar horft til áhrifa á hljóðvist. Nefndin benti einnig á að endanlegur fjöldi íbúðareininga í Hnoðraholti hefur enn ekki verið ákvarðaður enda liggur deiliskipulag suðurhluta ekki fyrir. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
11. (2159). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúsum og fjölbýlishúsum. Tillagan hefur verið samþykkt í bæjarstjórn en Skipulagsstofnun bendir á í erindi sínu dags. 10. mars að skýra þurfi betur afstöðu bæjarstjórnar til athugasemda Kópavogsbæjar sem borist hafa. Athugasemd Kópavogsbæjar laut að því að fjölgun íbúða í Hnoðraholti hafi ekki neikvæð áhrif á lóðir í landi Kópavogsbæjar og að ákvörðun um fyrirkomulag Vorbrautar sunnan Þorrasala liggi fyrir áður en umrætt svæði er tekið í notkun.
Skipulagsnefnd lagði til að eftirfarandi ákvæði yrði bætt við í greinargerð tillögunnar sem sett fram á uppdrætti:
Í kafla 2.7.1 Gatnakerfi í greinargerð deiliskipulags Hnoðraholts norður er sett fram stefna um legu og útfærslu Vorbrautar sunnan við Þorrasali í Kópavogi.
Áfram er stefnt að því að lega og útfærsla Vorbrautar til austurs verði eins og rammahluti aðalskipulagsins kveður á um.
Tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts sem forkynnt var í febrúar 2025 gerir ráð fyrir því að sú leið verði farin að Vorbraut færist fjær íbúðarbyggð við Þorrasali, auk þess að vera talsvert neðar í landi.
Skipulagsnefnd benti einnig á bókun skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts þar sem þeim tilmælum er beint til umhverfissviðs og ráðgjafa að unnin verði greinargerð sem metur áhrif umferðar á Vorbraut. Sérstakalega skuli þar horft til áhrifa á hljóðvist. Nefndin benti einnig á að endanlegur fjöldi íbúðareininga í Hnoðraholti hefur enn ekki verið ákvarðaður enda liggur deiliskipulag suðurhluta ekki fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúsum og fjölbýlishúsum. Tillagan hefur verið samþykkt í bæjarstjórn en Skipulagsstofnun bendir á í erindi sínu dags. 10. mars að skýra þurfi betur astöðu bæjarstjórnar til athugasemda Kópavogsbæjar sem borist hafa. Athugasemd Kópavogsbæjar laut að því að fjölgun íbúða í Hnoðraholti hafi ekki neikvæð áhrif á lóðir í landi Kópavogsbæjar og að ákvörðun um fyrirkomulag Vorbrautar sunnan Þorrasala liggi fyrir áður en umrætt svæði er tekið í notkun.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi ákvæði verði bætt við í greinargerð tillögunnar sem sett fram á uppdrætti:
Í kafla 2.7.1 Gatnakerfi í greinargerð deiliskipulags Hnoðraholts norður er sett fram stefna um legu og útfærslu Vorbrautar sunnan við Þorrasali í Kópavogi.
Áfram er stefnt að því að lega og útfærsla Vorbrautar til austurs verði eins og rammahluti aðalskipulagsins kveður á um.
Tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts sem forkynnt var í febrúar 2025 gerir ráð fyrir því að sú leið verði farin að Vorbraut færist fjær íbúðarbyggð við Þorrasali, auk þess að vera talsvert neðar í landi.
Skipulagsnefnd bendir einnig á bókun skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts þar sem þeim tilmælum er beint til umhverfissviðs og ráðgjafa að unnin verði greinargerð sem metur áhrif umferðar á Vorbraut. Sérstakalega skuli þar horft til áhrifa á hljóðvist. Nefndin bendir einnig á að endanlegur fjöldi íbúðareininga í Hnoðraholti hefur enn ekki verið ákvarðaður enda liggur deiliskipulag suðurhluta ekki fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
2. (954). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúsum og fjölbýlishúsum að lokinni auglýsingu ásamt þeirri athugasemd og umsögnum sem borist hafa. Skipulagsnefnd áréttaði að útmörk byggingarreits raðhúslengjunnar Stekkholt 55-61 (fyrir breytingu Stekkholt 45-49) til norðurs sé þau sömu fyrir og eftir breytingu þannig að skuggavarp af byggingunni breytist ekki þó svo að íbúðareiningum sé fjölgað um eina. Í athugasemd frá Eflu var bent á að æskilegt væri að breyta hæðarkótum á fjölbýlishúsum við sunnanverða Vorbraut til aðlögunar vegna útfærslu á bílakjöllurum. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri samþykki breytingar á hæðarkótum á meðan að hámarkshæð húsanna (mys) samkvæmt skipulagi sé óbreytt. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
05
4. (2152). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúsum og fjölbýlishúsum að lokinni auglýsingu ásamt þeirri athugasemd og umsögnum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd áréttaði að útmörk byggingarreits raðhúslengjunnar Stekkholt 55-61 (fyrir breytingu Stekkholt 45-49) til norðurs sé þau sömu fyrir og eftir breytingu þannig að skuggavarp af byggingunni breytist ekki þó svo að íbúðareiningum sé fjölgað um eina.
Í athugasemd frá Eflu var bent á að æskilegt væri að breyta hæðarkótum á fjölbýlishúsum við sunnanverða Vorbraut til aðlögunar vegna útfærslu á bílakjöllurum. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri samþykki breytingar á hæðarkótum á meðan að hámarkshæð húsanna (mys) samkvæmt skipulagi sé óbreytt.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúsum og fjölbýlishúsum að lokinni auglýsingu ásamt þeirri athugasemd og umsögnum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd áréttar að útmörk bygggingarreits raðhúslengjunnar Stekkholt 55-61 (fyrir breytingu Stekkholt 45-49) til norðurs sé þau sömu fyrir og eftir breytingu þannig að skuggavarp af byggingunni breytist ekki þó svo að íbúðareiningum sé fjölgað um eina.
Í athugasemd frá Eflu er bent á að æskilegt sé að breyta hæðarkótum á fjölbýlishúsum við sunnanverða Vorbraut til aðlögunar vegna útfærslu á bílakjöllurum. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri samþykki breytingar á hæðarkótum á meðan að hámarkshæð húsanna (mys) samkvæmt skipulagi sé óbreytt.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
17. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
12. (945). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að vísa til auglýsingar tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
- að hámarksfjöldi íbúða í fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar (húsgerð F3) fjölgi úr 12 í 14 í hverju húsi (alls um 16 íbúðir, úr 96 í 112).
- að byggingarreitir húsa sunnan Vorbrautar breikki úr 14 m í 15m.
- að byggingarreitir bílakjallara breikki úr 17 í 18 m á lóðunum Vorbraut 2,4,6,14 og 16.
- að lóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12 sameinist í eina lóð með sameiginlegum bílakjallara.
- að raðhúsaeiningum í Útholti fjölgi um eina í hverri lengju (alls 5 einingar)
- að raðhúsaeiningum í Stekkholti fjölgi um eina í hverri raðhúslengju (alls 6 einingar)
- að hámarkshæð farsímamasturs á lóðinni Vorbraut 6b hækki úr 16 m í 20 m.
Tillögunni skal vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands. Breyta þarf breytingaruppdrætti til samræmis við deiliskipulagsbreytingu sem nær til raðhúsa við Vorbraut áður en tillagan verður auglýst."
Bæjarráð Garðabæjar
10
32. (2133). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að vísa til auglýsingar tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
- að hámarksfjöldi íbúða í fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar (húsgerð F3) fjölgi úr 12 í 14 í hverju húsi (alls um 16 íbúðir, úr 96 í 112).
- að byggingarreitir húsa sunnan Vorbrautar breikki úr 14 m í 15m.
- að byggingarreitir bílakjallara breikki úr 17 í 18 m á lóðunum Vorbraut 2,4,6,14 og 16.
- að lóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12 sameinist í eina lóð með sameiginlegum bílakjallara.
- að raðhúseiningum í Útholti fjölgi um eina í hverri lengju (alls 5 einingar)
- að raðhúseiningum í Stekkholti fjölgi um eina í hverri raðhúslengju (alls 6 einingar)
- að hámarkshæð farsímamastur á lóðinni Vorbraut 6b hækki úr 16 m í 20 m.
Tillögunni skal vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands.
Breyta þarf breytingaruppdrætti til samræmis við deiliskipulagsbreytingu sem nær til raðhúsa við Vorbraut áður en tillagan verður auglýst.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-að hámarksfjöldi íbúða í fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar (húsgerð F3) fjölgi úr 12 í 14 í hverju húsi (alls um 16 íbúðir, úr 96 í 112).
-að byggingarreitir húsa sunnan Vorbrautar breikki úr 14 m í 15m.
-að byggingarreitir bílakjallara breikki úr 17 í 18 m á lóðunum Vorbraut 2,4,6,14 og 16.
-að lóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12 sameinist í eina lóð með sameiginlegum bílakjallara.
-að raðhúseiningum í Útholti fjölgi um eina í hverri lengju (alls 5 einingar)
-að raðhúseiningum í Stekkholti fjölgi um eina í hverri raðhúslengju (alls 6 einingar)
-að hámarkshæð farsímamastur á lóðinni Vorbraut 6b hækki úr 16 m í 20 m.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands.
Breyta þarf breytingaruppdrætti til samræmis við deiliskipulagsbreytingu sem nær til raðhúsa við Vorbraut áður en tillaga verður auglýst.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúsum við Útholt og Stekkholt og í fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar.
Skipulagsráðgjafar, Sigurður Einarsson og Unnur Íris Bjarnadóttir arkitektar hjá Batteríinu ehf gerðu grein fyrir tillögunni.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.