12. (945). fundur
12. (945). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
05.09.2024
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. ágúst 2024 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2408013F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/8´24.
Björg Fenger tók til máls og ræddi 3.tl. tillögu umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi. Óskaði Björg viðurkenningarhöfum til hamingju fyrir hönd bæjarstjórnar.
Fundargerðin sem er 5. tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2408017F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 27/8 '24.
Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2408027F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 3/9 '24.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 26. tl. bréf til forráðamanna grunnskólabarna vegna vopna- og hnífaburðar ungmenna.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi 26. tl. bréf til forráðamanna grunnskólabarna vegna vopna- og hnífaburðar ungmenna og 1.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2024.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi 1.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2024
Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og ræddi 26. tl. bréf til forráðamanna grunnskólabarna vegna vopna og hnífaburðar ungmenna.
Björg Fenger tók til máls og ræddi 1.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2024 og 26. tl. bréf forráðmanna grunnskólabarna vegna vopna- og hnífaburðar ungmenna.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 26. tl. bréf forráðamanna grunnskólabarna vegna vopna- og hnífaburðar ungmenna, 1.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2024 og 3.tl. minnisblað sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs um tölvubúnað Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 27.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2408016F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 21/8 '24.
Harpa Rós Gísladóttir tók til máls og ræddi 1. tl. starfsáætlun ÍTG 2024-2025, 2.tl. Íþróttaþing Garðabæjar og 4.tl. þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 1.tl. starfsáætlun ÍTG 2024-2025 og 6.tl. göngum í skólann.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 1.tl. starfsáætlun ÍTG 2024-2025. Almar óskaði, fyrir hönd bæjarstjórnar, Íslandsmeisturum GKG í meistaraflokki karla og kvenna til hamingju með titlana og GKG til hamingju með 30 ára afmælið.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. starfsáætlun ÍTG 2024-2025.
Harpa Rós Gísladóttir tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. starfsáætlun ÍTG 2024-2025.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2408010F
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 21/8 '24.
Margrét Bjarnadóttir tók til máls og ræddi 1.tl. innritun í leikskóla 2024.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 1.tl. innritun í leikskóla 2024.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 1.tl. innritun í leikskóla 2024.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2408007F
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 29/8 '24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2408014F
07
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 21/8 '24.
Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og ræddi 4.tl. minnisblað til sveitarfélaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 4.tl. minnisblað til sveitarfélaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir og 6.tl. grunnskólar, árangur og líðan.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401141
08
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 28/8 '24.
Ingvar Arnarsson tók til máls og ræddi 13.tl. dælustöð við Hólmatún og 17.tl. Bæjargil, deiliskipulagsbreytingu þegar byggðs svæðis.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 13.tl. dælustöð við Hólmatún og 17.tl. Bæjargil, deiliskipulagsbreytingu þegar byggðs svæðis.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401136
09
Fundargerðir stjórnar SSH frá 19/8 '24 og 21/8 '24.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2401139
10
Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. 1/7 '24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401138
11
Fundargerðir eigendafundar Strætó bs frá 20/3 '24 og 3/4 ´24.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2407142
12
Tillaga að breytingu á gjaldskrá vegna skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn lýsir yfir mikilli ánægju með gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum Garðabæjar. Þessi aðgerð stjórnvalda stuðlar að jöfnuði og vinnur gegn áhrifum fátæktar á börn um allt land, auk þess að vera kjarabót fyrir foreldra grunnskólabarna."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á gjaldskrá skólamálsverða.
Málsnúmer 2304350
13
Samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppfærslu samgöngusáttmála frá árinu 2019 og samkomulag um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald (fyrri umræða).
Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir helstu atriðum samkomulagsins. Almar lagði til að því verði vísað til síðari umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun: "Garðabæjarlistinn fagnar því að ríki og sveitarfélög hafi komist að samkomulagi og uppfært samgöngusáttmálann, enda eru ríkir hagsmunir íbúa Garðabæjar og höfuðborgarsvæðisins alls að fyrirhugaðar vega- og stígaframkvæmdir auk eflingar á almenningssamgöngum sem þar eru tíundaðar verði að veruleika."
Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls.
Björg Fenger tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa Samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppfærslu samgöngusáttmála frá árinu 2019 og samkomulagi um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulagi og veghaldi sem undirritað var af fulltrúum sveitarfélaganna 21. ágúst síðastliðinn, til síðari umræðu í bæjarstjórn, sbr. 3.tl. 1.mgr. 14.gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar.