Beint í efni

Samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppfærslu samgöngusáttmála frá árinu 2019 og samkomulag um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald (síðari umræða).

Málsnúmer 2304350

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (947). fundur

Almar Guðmundsson tók til máls og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærslu samgöngusáttmála frá árinu 2019 og samkomulag um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald.
Ingvar Arnarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn fagnar uppfærslu samgöngusáttmálans og samstöðu bæjarstjórnar hvað hann varðar, enda eru ríkir hagsmunir íbúa Garðabæjar og höfuðborgarsvæðisins alls að fyrirhugaðar vega- og stígaframkvæmdir auk eflingar á almenningssamgöngum sem þar eru tíundaðar verði að veruleika."
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn fagnar mjög samþykkt á uppfærðum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og ríkisins, sem upphaflega var undirritaður 2019. Þetta er mikilvæg og þörf innviðauppbygging sem hefur í för með sér lífskjarabætur fyrir höfuðborgarbúa og landsmenn alla.
Markmið sáttmálans er að stytta ferða- og biðtíma í bílum, búa til hágæða almenningssamgöngur og að efla göngu- og hjólastíga. Framkvæmdin öll gerir það að verkum að við komum til með að hafa um fjölbreyttari samgöngumáta að velja sem hefur jákvæð áhrif á lýðheilsu okkar og fólk kemst hraðar á milli einstaka hluta höfuðborgarsvæðisins."

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða uppfærðan samgöngusáttmála.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (945). fundur

Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir helstu atriðum samkomulagsins. Almar lagði til að því verði vísað til síðari umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun: "Garðabæjarlistinn fagnar því að ríki og sveitarfélög hafi komist að samkomulagi og uppfært samgöngusáttmálann, enda eru ríkir hagsmunir íbúa Garðabæjar og höfuðborgarsvæðisins alls að fyrirhugaðar vega- og stígaframkvæmdir auk eflingar á almenningssamgöngum sem þar eru tíundaðar verði að veruleika."
Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls.
Björg Fenger tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa Samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppfærslu samgöngusáttmála frá árinu 2019 og samkomulagi um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulagi og veghaldi sem undirritað var af fulltrúum sveitarfélaganna 21. ágúst síðastliðinn, til síðari umræðu í bæjarstjórn, sbr. 3.tl. 1.mgr. 14.gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

32. (2133). fundur

Umræðum um uppfærslu samgöngusáttmála framhaldið, frá fundi bæjarráðs 27. ágúst 2024.
Bæjarráð samþykkir að vísa samkomulaginu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

31. (2132). fundur

Á fund bæjarráðs komu Páll Björgvin Guðmundsson (Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu), Birgir B. Sigurjónsson (ráðgjafi), Þröstur Guðmundsson (Betri samgöngum ohf.), Jóhannes Rúnarsson (Strætó bs.), Ásthildur Helgadóttir (fulltrúi Kópavogs í viðræðuhópi um uppfærslu samgöngusáttmálans) og Guðjón Erling Friðriksson (fulltrúi Garðabæjar í viðræðuhópi um uppfærslu samgöngusáttmálans).
Kynntu þau Samgöngusáttmálann og viðauka við samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum, þar með talið innviðum almenningssamgangna, á höfuðborgarsvæðinu til 15 ára, þ.e. til og með ársins 2033, sem undirritað var hinn 26. september 2019. Viðaukinn var undirritaður af hálfu ríkisins annars vegar og Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupastaðar, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar, hins vegar, þann 21. ágúst 2024. Undirritun af hálfu ríkisins er með fyrirvara um að Alþingi samþykki þær lagabreytingar sem samkomulagið kveður á um. Að sama skapi er undirritun af hálfu sveitarfélaga með fyrirvara um samþykki sveitarstjórna.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi, sat jafnframt fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málinu er vísað til frekari umræðu í bæjarráði á næsta fundi bæjarráðs, þriðjudaginn 3. september 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

05

17. (2070). fundur

Í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu, dags 14. mars 2023 kemur fram að samkomulag hafi náðst um að hefja undirbúning að því að uppfæra samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið. Viðræðuhópur fulltrúa ríkisins og sveitarfélaganna hefur tekið til starfa og er unnið að uppfærslu kostnaðaráætlana ásamt því að fara yfir tekjuhlið sáttmálans og yfirferð á stjórnskipulagi sáttmálans. Einnig er stefnt að því að viðræðuhópur ríkis og sveitarfélaga ljúki við frágang draga að samningi um eflingu almenningssamgangna þannig að rekstur þeirra verði tryggður með aðkoma sveitarfélaga og ríkisins.

Stefnt er að því að tillögur að uppfærslu sáttmálans og tillaga að samningi um eflingu almenningssamgangna verði lagðar fram til afgreiðslu hjá bæjarstjórnum sveitarfélaganna í byrjun júní.