14. (947). fundur
14. (947). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
03.10.2024
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. september 2024 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2409028F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 24/9 ´24.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og ræddi 6.tl., ungmennahús - áfangaskýrslu. Hrannar Bragi lagði fram eftirfarandi bókun:
"Tillagan um stofnun ungmennahúss er liður í því að styrkja og efla forvarnir í Garðabæ. Ungmennahús Garðabæjar mun bætast við fjölbreytta flóru íþrótta- og tómstundastarfs í bænum og vera jákvæður vettvangur fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára í bænum þar sem þau geta komið saman með jafnöldrum sínum og tekið þátt í skipulögðu og óskipulögðu starfi sem styrkir þau, hvetur og eflir.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna aðkomu ungmennaráðs að vinnunni við áfangaskýrsluna og tillögu hennar og hrósa fulltrúum þess sem og fulltrúum íþrótta- og tómstundaráðs fyrir málefnalega og vel ígrundaða vinnu".
Ingvar Arnarson tók til máls og óskaði knattspyrnuliði UMF Álftaness til hamingju með sigur í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu og ræddi 6. tl. Ungmennahús - áfangaskýrslu.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 6.tl. Ungmennahús - áfangaskýrslu. Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans fagna því að loks sé komið að því að koma á fót Ungmennahúsi í Garðabæ, sem Garðabæjarlistinn hefur kallað eftir árum saman."
Fundargerðin sem er 10.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2409039F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 1/10 ´24.
Fundargerðin sem er 15.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2409024F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 18/9 ´24.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og ræddi 1.tl. vopnaburð barna og ungmenna, 2.tl., forvarnarviku Garðabæjar 2024, 3.tl. íþróttaþing Garðabæjar, 5.tl., vinnuskólann 2024, 8.-21.tl. umsóknir um styrki úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar og umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi 2.tl., fovarnarviku Garðabæjar 2024 og 4.tl. þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ.
Björg Fenger tók til máls og ræddi 7.tl., Nordic Baltic youth summit 2024 og 8.-21.tl. umsóknir um styrki úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar og umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og ræddi 2.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2024.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi 2.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2024, 5.tl. vinnuskólann 2024 og 4.tl. þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 1.tl. vopnaburð barna og ungmenna og 2.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2024.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2409033F
04
Fundargerð skipulagsnefndar frá 26/9 ´24.
Björg Fenger tók til máls og ræddi 3.tl. breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags í landi Garðabæjar - Aðal- og svæðisskipulagsbreytingu og 13.tl., breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna borteiga.
Ingvar Arnarson tók til máls og ræddi 5.tl. auglýsingaskilti í Garðabæ - fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2409021F
05
Fundargerð velferðarráðs frá 18/9 ´24.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi 6.tl., frumkvæðisathugun á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk, 7.tl., frumkvæðisathugun á þjónustu á búsetuúrræðum fatlaðs fólks og 8.tl., frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 4.tl., félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ. Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn ítrekar þá afstöðu sína að brýn þörf er á frekari uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ."
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi 6.tl. frumkvæðisathugun á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk, 7.tl. frumkvæðisathugun á þjónustu á búsetuúrræðum fatlaðs fólks, 8.tl. frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu og 5.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 4.tl. félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ og 5.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401141
06
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/9 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401136
07
Fundargerð stjórnar SSH frá 16/9 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401135
08
Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 14/6, 28/6 og 16/8 ´24.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2401133
09
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 14/8 ´24.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi 1.tl. sex mánaða uppgjör Sorpu bs. og 4.tl. önnur mál.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401139
10
Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 30/9 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401137
11
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 13/9 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401325
12
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 10/9 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2410010
13
Tillaga Garðabæjarlistans um hækkun hvatapeninga.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn samþykkir að gert verði ráð fyrir hækkun hvatapeninga um 15 þúsund krónur á hvert barn í fjárhagsáætlun fyrir árið 2025, þ.e. að hvatapeningar verði hækkaðir úr 55 þúsund kr. í 70 þúsund kr.
Þá verði framvegis miðað við að upphæð hvatapeninga fylgi verðlagsþróun."
"Greinargerð:
Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi hefur, ásamt því að vera mikilvægur vettvangur fyrir félagslegan þroska barna og heilsu, gríðarlegt forvarnargildi. Því er mikilvægt að allar fjölskyldur geti boðið börnum sínum upp á að stunda slíkt starf, óháð efnahag. Fjárhagslegt aðgengi að íþróttum og tómstundum er sérstaklega aðkallandi vegna þrengri fjárhagsstöðu heimila, en einnig sökum þess að Garðabær hefur fjárfest milljörðum í aðstöðu til íþróttaiðkunar á undanförnum árum og ber töluverðan kostnað af rekstri þeirra á
ári hverju.
Árið 2018 voru hvatapeningar hækkaðir í 50 þúsund krónur. Sú upphæð samsvarar tæpum 71 þúsund krónum árið 2024 ef tekið er tillit til verðlagsbreytinga, en hvatapeningar hafa aðeins hækkað um 5 þúsund krónur á tímabilinu 2018-2024.
Garðabæjarlistinn er á þeirri skoðun að eðlilegt sé að hvatapeningar hækki samhliða verðlagi, þar sem æfingagjöld gera það að jafnaði. Líta má svo á að tillagan um hækkun sé leiðrétting og leggjum við því áherslu á að eftirleiðis verði hvatapeningar látnir fylgja verðlagi, svo sambærilegrar leiðréttingar verði ekki þörf á nokkurra ára fresti.
Enn geti tekjulægri fjölskyldur svo sótt um viðbótarhvatapeninga, sem haldist í 15 þúsund krónum.
Samkvæmt greinargerð ÍTG frá árinu 2023 þarf að gera ráð fyrir kostnaðaraukningu upp á u.þ.b. 30 milljónir, ef miðað er við 75% nýtingu hvatapeninga."
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og ræddi tillöguna og lagði til að tillögunni yrði vísað til fjárhagsáætlunar 2025.
Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og ræddi tillöguna.
Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls og ræddi tillöguna.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi tillöguna.
Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls að nýju.
Björg Fenger tók til máls og ræddi tillöguna.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi tillöguna.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til fjárhagsáætlunar 2025.
Málsnúmer 2304350
14
Samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppfærslu samgöngusáttmála frá árinu 2019 og samkomulag um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald (síðari umræða).
Almar Guðmundsson tók til máls og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærslu samgöngusáttmála frá árinu 2019 og samkomulag um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald.
Ingvar Arnarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn fagnar uppfærslu samgöngusáttmálans og samstöðu bæjarstjórnar hvað hann varðar, enda eru ríkir hagsmunir íbúa Garðabæjar og höfuðborgarsvæðisins alls að fyrirhugaðar vega- og stígaframkvæmdir auk eflingar á almenningssamgöngum sem þar eru tíundaðar verði að veruleika."
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn fagnar mjög samþykkt á uppfærðum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og ríkisins, sem upphaflega var undirritaður 2019. Þetta er mikilvæg og þörf innviðauppbygging sem hefur í för með sér lífskjarabætur fyrir höfuðborgarbúa og landsmenn alla.
Markmið sáttmálans er að stytta ferða- og biðtíma í bílum, búa til hágæða almenningssamgöngur og að efla göngu- og hjólastíga. Framkvæmdin öll gerir það að verkum að við komum til með að hafa um fjölbreyttari samgöngumáta að velja sem hefur jákvæð áhrif á lýðheilsu okkar og fólk kemst hraðar á milli einstaka hluta höfuðborgarsvæðisins."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða uppfærðan samgöngusáttmála.