Beint í efni

Fundargerð velferðarráðs frá 18/9 ´24.

Málsnúmer 2409021F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (947). fundur

Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi 6.tl., frumkvæðisathugun á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk, 7.tl., frumkvæðisathugun á þjónustu á búsetuúrræðum fatlaðs fólks og 8.tl., frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 4.tl., félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ. Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn ítrekar þá afstöðu sína að brýn þörf er á frekari uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ."
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi 6.tl. frumkvæðisathugun á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk, 7.tl. frumkvæðisathugun á þjónustu á búsetuúrræðum fatlaðs fólks, 8.tl. frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu og 5.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 4.tl. félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ og 5.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð.

Fundargerðin er lögð fram.