Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 24/9 ´24.

Málsnúmer 2409028F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (947). fundur

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og ræddi 6.tl., ungmennahús - áfangaskýrslu. Hrannar Bragi lagði fram eftirfarandi bókun:
"Tillagan um stofnun ungmennahúss er liður í því að styrkja og efla forvarnir í Garðabæ. Ungmennahús Garðabæjar mun bætast við fjölbreytta flóru íþrótta- og tómstundastarfs í bænum og vera jákvæður vettvangur fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára í bænum þar sem þau geta komið saman með jafnöldrum sínum og tekið þátt í skipulögðu og óskipulögðu starfi sem styrkir þau, hvetur og eflir.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna aðkomu ungmennaráðs að vinnunni við áfangaskýrsluna og tillögu hennar og hrósa fulltrúum þess sem og fulltrúum íþrótta- og tómstundaráðs fyrir málefnalega og vel ígrundaða vinnu".

Ingvar Arnarson tók til máls og óskaði knattspyrnuliði UMF Álftaness til hamingju með sigur í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu og ræddi 6. tl. Ungmennahús - áfangaskýrslu.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi 6.tl. Ungmennahús - áfangaskýrslu. Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans fagna því að loks sé komið að því að koma á fót Ungmennahúsi í Garðabæ, sem Garðabæjarlistinn hefur kallað eftir árum saman."

Fundargerðin sem er 10.tl. er samþykkt samhljóða.