Lækjarfit, Langafit - breyting lóða
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (960). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar Lækjarfitjar 6 og Löngufitjar 5. Athugasemd barst frá eiganda Löngufitjar 5. Lögð fram tillaga að breyttum lóðarmörkum sem hefur verið mótuð í samráði við eiganda Löngufitjar 5. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með breyttri útfærslu sem er viðbragð við innsendri athugasemd í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
21. (2169). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar Lækjarfitjar 6 og Löngufitjar 5. Athugasemd barst frá eiganda Löngufitjar 5.
Lögð fram tillaga að breyttum lóðarmörkum sem hefur verið mótuð í samráði við eiganda Löngufitjar 5.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með breyttri útfærslu sem er viðbragð við innsendri athugasemd í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar Lækjarfitjar 6 og Löngufitjar 5. Athugasemd barst frá eiganda Löngufitjar 5.
Lögð fram tillaga að breyttum lóðarmörkum sem hefur verið mótuð í samráði við eiganda Löngufitjar 5.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með breyttri útfærslu sem er viðbragð við innsendri athugasemd í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
4. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
19. (952). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. desember 2024 að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra, sem nær til lóðanna Lækjarfit 6 og Langafit 5. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð Löngufitjar 5 stækki um 75 m² þ.e. 35 m² af opnu svæði og 40m² af lóð Lækjarfitjar 6. Lóðin Lækjafit 6 minnkar því um 40 m². Ástæða tillögunnar er sú að ósamræmi reynist vera milli þinglýstra gagna og deiliskipulags og er markmiðið því að leiðrétta það. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum Lækjarfitjar 2, 4, 8 og 10 sem og Löngufitjar 7 og 9.
Bæjarráð Garðabæjar
07
47. (2148). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. desember 2024 að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra, sem nær til lóðanna Lækjarfit 6 og Langafit 5.
Tillagan gerir ráð fyrir að lóð Löngufitjar 5 stækki um 75 m² þ.e. 35 m² af opnu svæði og 40m² af lóð Lækjarfitjar 6. Lóðin Lækjafit 6 minnkar því um 40 m².
Ástæða tillögunnar er sú að ósamræmi reynist vera milli þinglýstra gagna og deiliskipulags og er markmiðið því að leiðrétta það.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu Deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum Lækjarfitjar 2, 4, 8 og 10 sem og Löngufitjar 7 og 9.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
17. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra, sem nær til lóðanna Lækjarfit 6 og Langafit 5.
Tillagan gerir ráð fyrir að lóð Löngufitjar 5 stækki um 75 m² þ.e. 35 m² af opnu svæði og 40m² af lóð Lækjarfitjar 6. Lóðin Lækjafit 6 minnkar því um 40 m².
Ástæða tillögunnar er sú að ósamræmi reynist vera milli þinglýstra gagna og deiliskipulags og er markmiðið því að leiðrétta það.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu Deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum Læjarfitjar 2, 4, 8 og 10 sem og Löngufitjar 7 og 9.