8. (960). fundur
8. (960). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
05.06.2025
Kl. 17:00 - 20:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. maí 2025 er lögð fram.
Dagskrá
01
Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs
Tillaga kom fram um Margréti Bjarnadóttur sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt samhljóða.
Margrét Bjarnadóttir tók við stjórn fundarins og þakkaði bæjarfulltrúum traustið.
Tillaga kom fram um Guðfinn Sigurvinsson sem fyrsta varaforseta. Tillagan samþykkt samhljóða.
Tillaga kom fram um Ingvar Arnarson sem 2. varaforseta. Tillagan samþykkt samhljóða.
02
Kosning 5 fulltrúa i bæjarráð til eins árs
Bæjarráð fimm aðalmenn:
Aðalmenn: Björg Fenger, formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir, varaformaður, Hrannar Bragi Eyjólfsson, Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Brynja Dan Gunnarsdóttir.
Áheyrnarfulltrúi: Guðlaugur Kristmundsson.
Varaáheyrnarfulltrúi: Rakel Steinberg Sölvadóttir.
Tillagan er samþykkt samhljóða.
03
Kosning fulltrúa í fastanefndir
Guðlaugur Kristmundsson lagði fram eftirfarandi tillögu að breytingu fyrir hönd Viðreisnar og Framsóknar á breytingu á skipun nefndarmanna fyrir næsta ár:
Velferðarráð:
Rakel Steinberg Sölvadóttir (C), sem er aðaláheyrnarfulltrúi, verður aðalmaður.
Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir (C) sem er varaáheyrnarfulltrúi verður varamaður.
Brynja Dan Gunnarsdóttir (B) sem er aðalmaður verður aðaláheyrnarfulltrúi.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir (B), sem er varamaður, verður varaáheyrnarfulltrúi.
Skipulagsnefnd:
Guðlaugur Kristmundsson (C), sem er aðaláheyrnarfulltrúi verður aðalmaður.
Rakel Steinberg Sölvadóttir (C), sem er varaáheyrnarfulltrúi verður varamaður.
Hlynur Bæringsson (B), sem er aðalmaður verður aðaláheyrnarfulltrúi.
Einar Þór Einarsson (B), sem er varamaður verður varaáheyrnarfulltrúi.
Skólanefnd grunnskóla:
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir (B), sem hefur verið aðaláheyrnarfulltrúi verður aðalmaður.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir, sem hefur verið varaáheyrnarfulltrúi, verður varamaður.
Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir (C), sem hefur verið aðalmaður verður aðaláheyrnarfulltrúi.
Tinna Borg Arnfinnsdóttir (C) verður varaáheyrnarfulltrúi.
Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar:
Einar Þór Einarsson (B) sem hefur verið varamaður verður aðalmaður.
Tinna Borg Arnfinnsdóttir (C), sem hefur verið aðalmaður verður varamaður.
Menningar- og safnanefnd:
Urður Björg Gísladóttir (B) sem hefur verið varamaður verður aðalmaður.
Arnar Hólm Einarsson (C) sem hefur verið aðalmaður verður varamaður.
Íþrótta- og tómstundaráð:
Arnar Hólm Einarsson (C), sem hefur verið varamaður, verður aðalmaður.
Hlynur Bæringsson (B) sem hefur verið aðalmaður verður varamaður.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Almar Guðmundsson lagði fram eftirfarandi tillögu að breytingu fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins á skipun nefndarmanna fyrir næsta ár:
Menningar- og safnanefnd: Torfi Geir Símonarson (D) formaður í stað Guðfinns Sigurvinssonar. Steinunn Vala Sigfúsdóttir (D) aðalmaður í stað Guðfinns Sigurvinssonar. Tómas Freyr Jónsson (D) nýr varamaður.
Tillagan er samþykkt samhljóða.
04
Fundargerð bæjarráðs frá 20/5 ´25.
Ingvar Arnarson tók til máls og óskaði Íslandsmeisturum Stjörnunnar í körfuknattleik til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og óskaði Íslandsmeisturum Stjörnunnar í körfuknattleik til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. Þá ræddi hann 7.tl. útboð - samræmd innkaup á sorphirðu í stofnunum, 8.tl. útboð - Miðgarður - innréttingar 2. hæð-vestur, 11.tl. bæjarlistamann Garðabæjar 2025 og 12. tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ.
Björg Fenger tók undir árnaðaróskir til körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar. Hún ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - fjármögnun kostnaðarauka vegna kjarasamninga, 11. tl. bæjarlistamann Garðabæjar 2025 og 12. tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og tók undir hamingjuóskir til körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar. Hann ræddi 8.tl. Útboð - Miðgarður - innréttingar 2. hæð vestur.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi 7.tl. útboð - samræmd innkaup á sorphirðu í stofnunum.
Almar Guðmundsson tók til máls og óskaði körfuknattleiksdeild Stjörnunnar til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. Hann ræddi 7. tl. útboð - samræmd innkaup á sorphirðu í stofnunum, 8.tl. útboð - Miðgarður - innréttingar 2. hæð-vestur og 12. tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ.
Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og ræddi 12.tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabær, er skv. mínum heimildum vaktað sveitafélag. Fólk getur ekki keyrt inn í Garðabæ án þess að það sé myndavél sem taki það upp.
Það eru reglur um rafræna vöktun og viss skilyrði fyrir því að hún sé leyfð. Garðabær uppfyllir þau skilyrði og einkaaðilar mega vakta svæði sem t.d liggja að skóla, þar sem umrætt svæði er skólaleið fyrir börn. Það er því brýnt að setja myndavélar á þessi svæði til að tryggja öryggi barna í og úr skóla.
Líkamsárásir eru sívaxandi vandamál og hafa a.m.k. 3 átt sér stað í síðasta mánuði hér í Garðabæ, í undirgöngum við Lækjarás, við Aktu Taktu og á svæði fyrir utan Garðaskóla.
Aðgengi að undirgöngunum er ekki nógu greitt, og þ.a.l. erfitt fyrir lögreglu eða viðbragðsaðila að komast eins fljótt og mögulegt er að undirgöngunum, því er mjög brýnt að kynna aðgengi vel fyrir viðbragðsaðilum."
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 12.tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á mikilvægi þess að bæjarfélagið haldi áfram að tryggja öryggi íbúa með því að eiga gott og virkt samstarf við lögregluyfirvöld. Slíkt samstarf er lykilatriði til að tryggja öryggi og vellíðan íbúa bæjarins, ekki síst ungmenna.
Sérstök áhersla er lögð á að samfélagslögreglan sé sýnileg í bæjarlífinu, bæði við skóla og aðra samkomustaði ungs fólks. Sýnileiki og nærvera samfélagslögreglu gegnir mikilvægu forvarnarhlutverki, eykur traust og tengsl milli íbúa og lögreglu og stuðlar að því að Garðabær haldi áfram að vera öruggt og fjölskylduvænt samfélag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta mikilvægi þess að skoðað verði nánar hvort aukin rafræn vöktun í bænum geti stuðlað að bættu öryggi, bæði með fælingarmætti og möguleika á eftirfylgni ef upp koma óæskileg atvik. Í því samhengi skal sérstaklega hugað að undirgöngum þar sem upplifun vegfarenda af öryggi getur verið misjöfn."
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 12.tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ.
Bæjarstjórn Garðabæjar óskar körfuknattleiksdeild Stjörnunnar til hamingju með Íslandsmeistaratitillinn í meistaraflokki karla og þakkar starfsmönnum og sjálfboðaliðum fyrir frábær og óeigingjörn störf.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi, kom inn á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fundargerðin sem er 12. tl. er samþykkt samhljóða.
05
Fundargerð bæjarráðs frá 27/5 ´25.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 6.tl. lántöku Sorpu bs. vegna Lambhagavegar og endurfjármögnunar.
Almar Guðmundsson ræddi 8.tl. endurnýjun samnings við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Fundargerðin sem er 10.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
5.6 - 2412089 - Lántaka Sorpu bs. vegna Lambhagavegar.
Fyrri lántaka:
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011,tiltryggingar láns Sorpu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.345.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til framkvæmda og uppbyggingar á nýrri endurvinnslustöð á Lambhagavegi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Ábyrgðarhlutfall Garðabæjar í lántökunni er 8,09% eða alls kr. 108.766.608.
Bæjarstjórn skuldbindur hér með sveitarfélagið, sem eiganda félagsins,til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félagið að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess, fyrir hönd Garðabæjar, að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga, sbr. framangreind, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl sem nauðsynleg kunna að vera.
Síðari lántaka:
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011,til tryggingar láns Sorpu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 639.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til að endurfjármagna lán sem tekið var vegna forvinnslulínu fyrir blandað sorp frá heimilum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Ábyrgðarhlutfall Garðabæjar í lántökunni er 8,09% eða alls kr. 51.674.247.
Bæjarstjórn skuldbindur hér með sveitarfélagið, sem eiganda félagsins,til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félagið að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga, sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka. undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Fylgiskjöl
- FW: Beiðni um samþykki fyrir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga - ítrekun.pdf
- FS: Fjármögnun á uppbyggingu nýrrar endurvinnslustöðvar við Lambhagaveg 14.pdf
- Lambhagavegur_samþykki fyrir lántöku_gbr.pdf
- Sorpa - 2505_XX - LSS 55 - 1.345 m.kr. - Drög.pdf
- Fundargerð_515._fundar_stjórnar_SORPU.pdf
- Sorpa - 2505_31 - LSS 39 - 345 m.kr..pdf
- Sorpa - 2505_XX - LSS 39 - 1.345 m.kr. - Drög.pdf
- Beiðni um samþykki fyrir lántöku hjá LS_Gbr.pdf
- LS lánssamningur 2505_27.pdf
5.8 - 2411259 - Endurnýjun samnings við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.
Fylgiskjöl
06
Fundargerð bæjarráðs frá 3/6 ´25.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 9.tl. kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Tillaga um lengingu kvöldaksturs á leiðum 22 og 23 var unnin í nánu og góðu samráði við ungmennaráð Garðabæjar. Markmið tillögunnar er að bæta aðgengi ungmenna, sérstaklega íbúum Urriðaholts og Álftaness, að íþrótta-, tómstunda- og félagsmiðstöðvastarfi annars staðar í bænum. Áætlað er að kvöldaksturinn hefjist í haust samhliða því sem tíðni ferða á leiðum 21 og 24 verður aukin úr 30 mínútum í 15 mínútur. Þannig verður töluverð þjónustuaukning hjá Strætó í Garðabæ í haust, sem mun nýtast bæði börnum og ungmennum sem og öðrum sem kjósa að ferðast með almenningssamgöngum. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja færa ungmennaráði þakkir fyrir gott samstarf og hrósa faglegum vinnubrögðum þess."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 9.tl. kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn fagnar heilshugar ákvörðun bæjarráðs um aukna Strætóþjónustu við Urriðaholt og Álftanes. Við höfum lengi talað fyrir þessum breytingum og teljum þær því löngu tímabærar. Mikilvægt er að breytingarnar verði vel auglýstar meðal íbúa á öllum aldri. Við viljum koma á framfæri sérstökum þökkum til ungmennaráðs og íbúa Álftaness og Urriðaholts sem hafa ýtt á eftir þessu máli."
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 6.tl. útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum, 8.tl. gervigreindarstefnu Garðabæjar og 9.tl. kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ fagnar því að hér sé loks samþykkt að auka þjónustu Strætó við íbúa Urriðaholts og Álftaness með kvöldakstri inn í þessi hverfi á þann hátt að almenningssamgöngur verði loks að raunhæfum kosti. Börn og íbúar á öllum aldri þurfa og eiga rétt á því að hafa aðgengi að góðum almenningssamgöngum, það eykur öryggi, öryggistilfinningu og tryggir jafnt aðgengi að þjónustu, til dæmis í Miðgarði og annars staðar þar sem félags- íþrótta- eða æskulýðsstarf er stundað.
Börn og unglingar þurfa að fá tækifæri til þess að æfa sig og venjast við notkun á almenningssamgöngum en það getur tekið tíma. Aukinn rekstrarkostnaður upp á 20 milljónir á þessu ári eru ekki há upphæð til þess að tryggja jafna notkun allra barna og allra ungmenna í öllum Garðabæ á þeirri milljarða fjárfestingu sem Miðgarður er.
Leiðarkerfi almenningssamgangna verður að fá að styrkjast og þróast, það mun hvoru tveggja kosta tíma og fjármuni. En það mun líka krefjast þess að við hlustum og skiljum núverandi og vænta notendur Strætó. Ábyrgð okkar er að skapa þjónustuna þannig að hún sé notuð, ekki að fella niður þjónustu við fyrsta tækifæri.
Þetta var eitt af kosningaáherslum Viðreisnar frá vorinu 2022, var áhersla okkar við fjárhagsáætlanir fyrr á þessu kjörtímabili og er núna loks að verða að veruleika.
Þakkir eru færðar íbúum og Ungmennaráði Garðabæjar fyrir að ýta á þetta mál öllum til heilla."
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 8.tl. gervigreindarstefnu Garðabæjar og 9.tl. kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 2.tl. skuldabréfaútboð Garðabæjar.
Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. skuldabréfaútboð Garðabæjar og 1.tl. Vetrarmýri, sala og úthlutun lóða - kynning.
Fundargerðin sem er 9.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
6.2 - 2410186 - Skuldabréfaútboð Garðabæjar
"Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 2.500.000.000 að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,9%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur kr. 1.877.067.524. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði kr. 3.00.000.000, en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því kr. 4.370.000.000 að nafnverði.
Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun."
Samþykkt samhljóða.
6.4 - 2410080 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar, rammahluta Vífilsstaðalands, sem nær til háholts Hnoðraholts. Ábendingar og umsagnir sem bárust gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni óbreyttri til auglýsingar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar.
Fylgiskjöl
6.5 - 2410298 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Lækjarfit, Langafit - breyting lóða
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar Lækjarfitjar 6 og Löngufitjar 5. Athugasemd barst frá eiganda Löngufitjar 5. Lögð fram tillaga að breyttum lóðarmörkum sem hefur verið mótuð í samráði við eiganda Löngufitjar 5. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með breyttri útfærslu sem er viðbragð við innsendri athugasemd í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
6.8 - 2505520 - Gervigreindarstefna Garðabæjar
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi stefnu um notkun gervigreindar hjá Garðabæ.
Fylgiskjöl
07
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 10/4 ´25
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2025 og 3.tl. Golfklúbbinn Odd.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 3.tl. Golfklúbbinn Odd.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 3.tl. Golfklúbbinn Odd.
Almar Guðmundsson ræddi 3.tl. Golfklúbbinn Odd.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/5 ´25.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2025, 2.tl. viðhaldsverkefni útisvæða, göngu- og hjólastíga, 3.tl. hönnun - útboð - endurnýjun gervigras Álftanesvöllur, 5.tl. samning við KSÍ um afnot af Miðgarði og önnur mál skv. fundargerðinni tölulið a og b.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi önnur mál skv. fundargerðinni tölulið a.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi önnur mál skv. fundargerðinni.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi önnur mál skv. fundargerðinni.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi önnur mál skv. fundargerðinni.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð leikskólanefndar frá 27/5 ´25.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 2.tl. Erindi MMS - birting námsefnis sem styrkt hefur verið af Þróunarsjóði leik- og grunnskóla, 3.tl. innritun í leikskóla í 2025 og 4.tl. heimsókn leikskólanefndar í Krakkakot.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8/4 ´25.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 4.tl. Jazzþorpið í Garðabæ 2025.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4.tl. Jazzþorpið í Garðabæ 2025.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl. Jazzþorpið í Garðabæ 2025.
Fundargerðin er lögð fram.
11
Fundargerð skipulagsnefndar frá 26/5 ´25.
Björg Fenger ræddi 1.tl. Miðbæ, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreytingu og 2.tl. Móa, endurskoðað deiliskipulag.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi fundargerðina og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúi Viðreisnar í Garðabæ óskar eftir kynningu eða minnisblaði á því hvernig aðföng á heitu og köldu vatni er háttað. Þessi beiðni kom fyrst fram í janúar 2023 og hefur verið ítrekuð tvívegis skriflega síðan þá."
Almar Guðmundsson ræddi fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
12
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 14/5 ´25.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. erindi frá MMS - birting námsefnis sem styrkt hefur verið af Þróunarsjóði leik- og grunnskóla, 2.tl. endurmenntunarsjóð grunnskóla 2025, 4.tl. Hjallastefnan breytingar á grunnskólastigi og 5.tl. Íslenska æskulýðsrannsóknin í grunnskólum 2025 í Garðabæ.
Ingvar Arnarson ræddi 1.tl. erindi frá MMS - birting námsefnis sem styrkt hefur verið af Þróunarsjóði leik- og grunnskóla og 3.tl. skóladagatal grunnskóla 2026-2027.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 4.tl. Hjallastefnan breytingar á grunnskólastigi og 1.tl. erindi frá MMS - birting námsefnis sem styrkt hefur verið af Þróunarsjóði leik- og grunnskóla.
Almar Guðmundsson ræddi 4.tl. Hjallastefnan breytingar á grunnskólastigi.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 3.tl. skóladagatal grunnskóla 2026-2027.
Fundargerðin er lögð fram.
13
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 29/4 ´25.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. hagræðingarkröfu 2025.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. hagræðingarkröfu 2025.
Fundargerðin er lögð fram.
14
Fundargerð velferðarráðs frá 23/5 ´25.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, 2.tl. samráðsfundi velferðarsviða SSH, 3.tl. vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ, 4.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti og 7.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, 4.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti og 7.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 7.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 7.tl. tillögu að myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 4.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti og 7.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 7.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og ræddi 7.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 7.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk og 4.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Almar Guðmundsson ræddi 6.tl. úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála og 7.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Fundargerðin er lögð fram.
17
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 9/5 ´25.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. Almenningssamgöngur ohf. , 2.tl. árshlutauppgjör janúar til mars 2025, 3.tl. forgangsaðgerðir, 4.tl. útboð á hleðsluinnviðum og 4.tl. ársfund Strætó.
Fundargerðin er lögð fram.
19
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 16/5 ´25.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 6.tl. ferðavenjukönnun 2025.
Fundargerðin er lögð fram.
20
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 21/5 ´25.
Bjarni Th. Bjarnason ræddi fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.