Fundargerð bæjarráðs frá 3/6 ´25.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (960). fundur
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 9.tl. kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Tillaga um lengingu kvöldaksturs á leiðum 22 og 23 var unnin í nánu og góðu samráði við ungmennaráð Garðabæjar. Markmið tillögunnar er að bæta aðgengi ungmenna, sérstaklega íbúum Urriðaholts og Álftaness, að íþrótta-, tómstunda- og félagsmiðstöðvastarfi annars staðar í bænum. Áætlað er að kvöldaksturinn hefjist í haust samhliða því sem tíðni ferða á leiðum 21 og 24 verður aukin úr 30 mínútum í 15 mínútur. Þannig verður töluverð þjónustuaukning hjá Strætó í Garðabæ í haust, sem mun nýtast bæði börnum og ungmennum sem og öðrum sem kjósa að ferðast með almenningssamgöngum. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja færa ungmennaráði þakkir fyrir gott samstarf og hrósa faglegum vinnubrögðum þess."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 9.tl. kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn fagnar heilshugar ákvörðun bæjarráðs um aukna Strætóþjónustu við Urriðaholt og Álftanes. Við höfum lengi talað fyrir þessum breytingum og teljum þær því löngu tímabærar. Mikilvægt er að breytingarnar verði vel auglýstar meðal íbúa á öllum aldri. Við viljum koma á framfæri sérstökum þökkum til ungmennaráðs og íbúa Álftaness og Urriðaholts sem hafa ýtt á eftir þessu máli."
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 6.tl. útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum, 8.tl. gervigreindarstefnu Garðabæjar og 9.tl. kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ fagnar því að hér sé loks samþykkt að auka þjónustu Strætó við íbúa Urriðaholts og Álftaness með kvöldakstri inn í þessi hverfi á þann hátt að almenningssamgöngur verði loks að raunhæfum kosti. Börn og íbúar á öllum aldri þurfa og eiga rétt á því að hafa aðgengi að góðum almenningssamgöngum, það eykur öryggi, öryggistilfinningu og tryggir jafnt aðgengi að þjónustu, til dæmis í Miðgarði og annars staðar þar sem félags- íþrótta- eða æskulýðsstarf er stundað.
Börn og unglingar þurfa að fá tækifæri til þess að æfa sig og venjast við notkun á almenningssamgöngum en það getur tekið tíma. Aukinn rekstrarkostnaður upp á 20 milljónir á þessu ári eru ekki há upphæð til þess að tryggja jafna notkun allra barna og allra ungmenna í öllum Garðabæ á þeirri milljarða fjárfestingu sem Miðgarður er.
Leiðarkerfi almenningssamgangna verður að fá að styrkjast og þróast, það mun hvoru tveggja kosta tíma og fjármuni. En það mun líka krefjast þess að við hlustum og skiljum núverandi og vænta notendur Strætó. Ábyrgð okkar er að skapa þjónustuna þannig að hún sé notuð, ekki að fella niður þjónustu við fyrsta tækifæri.
Þetta var eitt af kosningaáherslum Viðreisnar frá vorinu 2022, var áhersla okkar við fjárhagsáætlanir fyrr á þessu kjörtímabili og er núna loks að verða að veruleika.
Þakkir eru færðar íbúum og Ungmennaráði Garðabæjar fyrir að ýta á þetta mál öllum til heilla."
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 8.tl. gervigreindarstefnu Garðabæjar og 9.tl. kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 2.tl. skuldabréfaútboð Garðabæjar.
Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. skuldabréfaútboð Garðabæjar og 1.tl. Vetrarmýri, sala og úthlutun lóða - kynning.
Fundargerðin sem er 9.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.