Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 20/5 ´25.

Málsnúmer 2505027F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (960). fundur

Ingvar Arnarson tók til máls og óskaði Íslandsmeisturum Stjörnunnar í körfuknattleik til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og óskaði Íslandsmeisturum Stjörnunnar í körfuknattleik til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. Þá ræddi hann 7.tl. útboð - samræmd innkaup á sorphirðu í stofnunum, 8.tl. útboð - Miðgarður - innréttingar 2. hæð-vestur, 11.tl. bæjarlistamann Garðabæjar 2025 og 12. tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ.

Björg Fenger tók undir árnaðaróskir til körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar. Hún ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - fjármögnun kostnaðarauka vegna kjarasamninga, 11. tl. bæjarlistamann Garðabæjar 2025 og 12. tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og tók undir hamingjuóskir til körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar. Hann ræddi 8.tl. Útboð - Miðgarður - innréttingar 2. hæð vestur.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi 7.tl. útboð - samræmd innkaup á sorphirðu í stofnunum.

Almar Guðmundsson tók til máls og óskaði körfuknattleiksdeild Stjörnunnar til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. Hann ræddi 7. tl. útboð - samræmd innkaup á sorphirðu í stofnunum, 8.tl. útboð - Miðgarður - innréttingar 2. hæð-vestur og 12. tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ.

Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og ræddi 12.tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabær, er skv. mínum heimildum vaktað sveitafélag. Fólk getur ekki keyrt inn í Garðabæ án þess að það sé myndavél sem taki það upp.
Það eru reglur um rafræna vöktun og viss skilyrði fyrir því að hún sé leyfð. Garðabær uppfyllir þau skilyrði og einkaaðilar mega vakta svæði sem t.d liggja að skóla, þar sem umrætt svæði er skólaleið fyrir börn. Það er því brýnt að setja myndavélar á þessi svæði til að tryggja öryggi barna í og úr skóla.
Líkamsárásir eru sívaxandi vandamál og hafa a.m.k. 3 átt sér stað í síðasta mánuði hér í Garðabæ, í undirgöngum við Lækjarás, við Aktu Taktu og á svæði fyrir utan Garðaskóla.
Aðgengi að undirgöngunum er ekki nógu greitt, og þ.a.l. erfitt fyrir lögreglu eða viðbragðsaðila að komast eins fljótt og mögulegt er að undirgöngunum, því er mjög brýnt að kynna aðgengi vel fyrir viðbragðsaðilum."

Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 12.tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á mikilvægi þess að bæjarfélagið haldi áfram að tryggja öryggi íbúa með því að eiga gott og virkt samstarf við lögregluyfirvöld. Slíkt samstarf er lykilatriði til að tryggja öryggi og vellíðan íbúa bæjarins, ekki síst ungmenna.
Sérstök áhersla er lögð á að samfélagslögreglan sé sýnileg í bæjarlífinu, bæði við skóla og aðra samkomustaði ungs fólks. Sýnileiki og nærvera samfélagslögreglu gegnir mikilvægu forvarnarhlutverki, eykur traust og tengsl milli íbúa og lögreglu og stuðlar að því að Garðabær haldi áfram að vera öruggt og fjölskylduvænt samfélag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta mikilvægi þess að skoðað verði nánar hvort aukin rafræn vöktun í bænum geti stuðlað að bættu öryggi, bæði með fælingarmætti og möguleika á eftirfylgni ef upp koma óæskileg atvik. Í því samhengi skal sérstaklega hugað að undirgöngum þar sem upplifun vegfarenda af öryggi getur verið misjöfn."

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 12.tl. Samfélagslögreglu í Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar óskar körfuknattleiksdeild Stjörnunnar til hamingju með Íslandsmeistaratitillinn í meistaraflokki karla og þakkar starfsmönnum og sjálfboðaliðum fyrir frábær og óeigingjörn störf.

Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi, kom inn á fundinn undir þessum dagskrárlið.

Fundargerðin sem er 12. tl. er samþykkt samhljóða.