4. fundur
4. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
27.02.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigþrúður Ármann - varamaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag
Sveinn Bjarki Þórarinsson arkitekt hjá Batteríinu kynnti drög að tillögu deiliskipulags háholts Hnoðraholts, sem gera ráð fyrir íbúðarbyggð í sérbýli og tilfærslu á lóðum leikskóla og búsetukjarna sem deillskipulag Hnoðraholts norður gerir ráð fyrir.
Skipulagsnefnd vísar drögunum til frekari mótunar hjá ráðgjöfum og umhverfissviði og felur skipulagsstjóra að undirbúa tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem tillagan kallar á.
02
Vetrarmýri, dsk br, leikvangur ofl.
Sveinn Bjarki Þórarinsson arkitekt hjá Batteríinu kynnti tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir auknu rými fyrir verslun og þjónustu undir áhorfendastúkum leikvangs sem eflir kjarna Vetrarmýrar fyrir fjölbreytta starfsemi. Tillagan gerir einnig ráð fyrir starfsemi hjúkrunarheimilis í tengslum við íbúðir fyrir aldraða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til áframhaldandi mótunar hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.
03
Urriðaholt. Lok uppbyggingar.
Drífa Árnadóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri kynntu hugmyndir Urriðaholts ehf um hugmyndasamkeppni um uppbyggingu á háholti Urriðaholts sem munu kalla á breytingar á deiliskipulagi.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá Urriðaholti ehf, ráðgjöfum og umhverfissviði Garðabæjar.
04
Urriðaholt Norð.- 4.áf. Urriðaholtsstr.1-7
Drífa Árnadóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf kynntu drög að tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norður 4. áfanga sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 1-7 sem eru enn óbyggðar.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá Umhverfissviði, Urriðaholti ehf og skipulagsráðgjafa.
05
Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íþróttasvæðis, golfvallar og útivistarskógar í Vetrarmýri og Smalaholti, að lokinni forkynningu, ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
06
Kjarrprýði 4 - Ósk um deiliskipulagsbreytingu
Lögð fram hugmynd um útfærslu einbýlishúss sem lagar sig að ákvæðum deiliskipulags. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna en leggur áherslu á að lóðaruppdrættir fylgi umsókn um byggingarleyfi sem sýni m.a. hvernig ganga skuli frá lóðarmörkum .
07
Skeiðarás 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði að lóðinni Skeiðarás 6 sem er óbyggð. Lóðin er innan þróunarsvæðis A sem er skilgreint í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 en nú er unnið að tillögu að breytingu Aðalskipulags sem nær til sama svæðis sem verður sett fram sem rammahluti aðalskipulags. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
08
Teistunes 1 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um hugmynd að breytingu á lóðarmörkum lóðanna Teistunes 1 og Þernunes 5.
Skipulagsnefnd bendir á að breytingin hefur í för með sér breytingar á byggingarreit lóðarinnar Þernunes 5 auk þess sem mögulegt byggingarmagn þeirrar lóðar skerðist en eykst að sama skapi að Teistunesi 1.
Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.
09
Aratún 26 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um viðbyggingu austan við núverandi hús.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við hugmyndina enda virðist viðbyggingin vera innan byggingarreits samkvæmt meðfylgjandi skissu.
10
Sviðholtvör 9 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu breytinga á einbýlishúsinu Sviðholtsvör 9. M.a. er gert ráð fyrir baðhúsi utan byggingarreits í suðausturhorni lóðar sem nær að lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd bendir á að útfærsla með þessu móti kallar á breytingu deiliskipulags sem sækja þarf um og leggja fram gögn sem skýra málið betur.
11
Lækjarfit, Langafit - breyting lóða
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði.
12
Hafnarfjarðarv.Olís b - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu, kaldri geymslu, norðan við þjónustuhús Olís við Hafnarfjarðarveg. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og starfsemi bensínstöðvar því víkjandi. Minni viðbygging stendur á sama stað sem verður fjarlægð.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umsóknina enda er hún í samræmi við núverandi nýtingu og þéttleika á lóðinni sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Með vísan í 2. ml 3. mgr. sömu greinar er grenndarkynning felld niður þar sem að umsókn varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
13
Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026
Snædís Björnsdóttir lögfræðingur á fjölskyldusviði kynnti aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.
14
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 1
Fundargerð lögð fram.
14.1 - 2411148 - Vorbraut 13 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vorbraut 13 - Flokkur 2
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt minnisblaði deiliskipulagshöfundar. Bygging víkur lítillega frá ákvæðum deiliskipulags hvað hámarksbyggingarmagn og útfærslu efstu hæðar varðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þau atriði varðar sem tilgreind eru í minnisblaði að séu ekki að fullu í samræmi við deiliskipulag. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Að öðru leyti er tillagan í samræmi við deiliskipulag Hnoðraholts norður.
14.2 - 2411490 - Eskiás 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús að Eskiási 10.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
14.3 - 2107287 - Maríugata 20 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhús. Útfærsla á þaki bílsskúrs víkur lítillega frá ákvæðum deiliskipulags hvað yfirborð varðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útfærslu á þaki bílskúrs varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
15
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 2
Fundargerð lögð fram.
15.1 - 2410477 - Hliðsvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi - mhl.02
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á utanhússklæðningu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við framlagða uppdrætti.
15.10 - 2411423 - Útholt 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
15.11 - 2306463 - Vetrarmýri - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu Vetrarmýri - Miðsvæði sem tekur á spennustöð við Vetrarbraut 9. Tillagan felur í sér að byggingarreitur undir spennuvirki er færður til og með því eru gerðar umbætur á sjónlínum hjólandi og gangandi vegfarenda.
Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar - Miðsvæði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í samræmi 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
15.12 - 2501205 - Víkurgata 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi. Sótt er um að loka bílakjallara með fellihurð og gönguhurð ásamt að loka ljósopi í þaki bílakjallara. Einnig er óskað eftir að aðlaga burðarsúlu í bílakjallar, sjá minnisblað frá verfræðistofunni Vík.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við umsóknina.
15.13 - 2409318 - Skerpluholt 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
15.14 - 2409059 - Reiðstígur í Vífilsstaðahlíð - Dsk.br.
Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gerð á nýjum reiðstíg á milli hesthúsahverfa í Garðabæ og Hafnarfirði. Um 2,5 km langan stíg er að ræða.
Nýr reiðstígur liggur frá Grunnuvatnaskarði um Ljóskollulág og niður Vífilsstaðahlíð og tengist þar reiðstíg í Urriðakotshrauni. Með honum fæst tenging yfir í Hafnarfjörð um núverandi reiðgötur við Smyrlabúð.
Reiðstígurinn er liður í uppbyggingu á stígakerfi í upplandi Garðabæjar. Nýr stígur kemur í staðin fyrir reiðstíginn sem nú liggur með fram Flóttamannavegi frá Smalaholti að bæjarmörkum við Hafnarfjörð, en eldri stígur verður af öryggisástæðum aflagður og nýja tengingin kemur í hans stað.
Á kafla fer stígurinn í gegnum friðland Vífilsstaðavatns en liggur þá að mestu um lúpínubreiðu eða mel. Framkvæmdir eru gerðar í samráði við Náttúruverndarstofnun.
Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir gerð reiðstígsins í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
15.15 - 2112212 - Grímsgata 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppfærðir lóðaruppdrættir fyrir Grímsgötu 8, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
15.16 - 2402325 - Hönnun - Útboð - 3 stígar Hjóla og göngustígur á milli hfj og kóp
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir áningastað við Þorgarðsdys neðst í Súlunesi.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Súluness, 24, 25,26,27,29,31 og 33.
Leita skal umsagnar Minjastofnunar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
15.17 - 2411491 - Kjarrprýði 3 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulags Garðahrauns. Breytingin felur í sér breikkun á byggingarreit um 1 m til norðurs. Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsögn lóðarhafa Kjarrprýðis 1 liggur fyrir.
Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
15.2 - 2410476 - Hliðsvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi - mhl.05
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á þaki á matshluta 05.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við framlagða uppdrætti.
15.3 - 2409043 - Búðarflöt 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Staðfesting um samskipti lóðarhafa við Veitur hefur borist og er því samráð þar á milli til staðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
15.4 - 2411451 - Gásamýri 17-27 Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og umsögn deiliskipulagshöfundar. Leitað er álits vegna hugsanlegra breytinga á hæðarkótum raðhúsanna og bent á nokkur atriði sem betur mætti fara.
Skipulagsstjóri leggur áherslu á að breytingar á hæðarkóta hafi ekki áhrif á hámarkshæð húsanna yfir sjávarmáli en þau miðast við uppgefna hæðarkóta á hæðarblaði og leyfilega hámarkshæð yfir þeim. Einnig er mikilvægt að skil milli einkalóða og opinna svæða séu dregin fram með skýrum hætti með mismunandi hæðarlegu. Ekki er gerð athugasemd við það ef raðhús séu án stöllunnar í sömu lengju.
Skipulagsstjóri vísar að öðru leyti til svara deiliskipulagshöfundar.
15.5 - 2412097 - Vesturtún 52 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.
Umsóknin felur í sér stækkun á bílskúr.
Viðbygging er innan byggingarreit og er stækkunin innan marka nýtingarhlutfalls.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
15.6 - 2501287 - Garðprýði 2 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Garðpýðis 2 um að fella út línu í byggingarreit sem tekur til hraunmyndana sem ber að vernda.
Eftir vettvangsskoðun er ekki að sjá að á lóðinni séu hraunmyndanir sem ber að vernda.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað varðar skilgreiningu deiliskipulags um að tekið sé tillit til hraunmyndana. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
15.7 - 2411448 - Kjarrprýði 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
15.8 - 2501206 - Lyngás 20 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir (reyndarteikningar) fyrir Lyngás 20. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
15.9 - 2501103 - Heiðarlundur 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti enda eru þeir í samræmi við grenndarkynnta deiliskipulagsbreytingu.