Sviðholtsvör 9 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
6. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Vara að lokinni grenndarkynningu sem nær til einbýlishúslóðarinnar Sviðholtsvör 9. Tillagan gerir ráð fyrir 15 m2 baðstofu (saunu) utan byggingarreits.
Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu breytinga á einbýlishúsinu Sviðholtsvör 9. M.a. er gert ráð fyrir baðhúsi utan byggingarreits í suðausturhorni lóðar sem nær að lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd bendir á að útfærsla með þessu móti kallar á breytingu deiliskipulags sem sækja þarf um og leggja fram gögn sem skýra málið betur.