Kjarrprýði 4 - Ósk um deiliskipulagsbreytingu
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
4. fundur
Lögð fram hugmynd um útfærslu einbýlishúss sem lagar sig að ákvæðum deiliskipulags. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna en leggur áherslu á að lóðaruppdrættir fylgi umsókn um byggingarleyfi sem sýni m.a. hvernig ganga skuli frá lóðarmörkum .
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi umsókn lóðarhafa að Kjarrprýði 4 um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til umræddrar lóðar. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur breytist á þann veg að ákvæði á nyrðri hluta hans um að taka skuli tillit til hraunmyndanna séu felld út, enda hafi lóðarhafi fjarlægt þær hraunmyndanir sem vernda skyldi. Lagður fram uppdráttur sem sýnir með hvaða hætti lóðarhafi sjái fyrir sér útfærslu á lóð. Skipulagsnefnd telur að fordæmisgildi þess að fella út ákvæði um varðveislu hraunmyndanna sé mjög mikið og gangi ákveðið gegn því markmiði deiliskipulagsins sem sett er fram í grein 1.5 í deiliskipulagsgreinargerð, þar segir: "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraunmyndanir eftir því sem nokkur kostur er." Skipulagsnefnd hafnaði umsókn um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Kjarrprýði 4.
Bæjarráð Garðabæjar
03
42. (2143). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi umsókn lóðarhafa að Kjarrprýði 4 um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til umræddrar lóðar. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur breytist á þann veg að ákvæði á nyrðri hluta hans um að taka skuli tillit til hraunmyndanna séu felld út, enda hafi lóðarhafi fjarlægt þær hraunmyndanir sem vernda skyldi. Lagður fram uppdráttur sem sýnir með hvaða hætti lóðarhafi sjái fyrir sér útfærslu á lóð.
Skipulagsnefnd telur að fordæmisgildi þess að fella út ákvæði um varðveislu hraunmyndanna sé mjög mikið og gangi ákveðið gegn því markmiði deiliskipulagsins sem sett er fram í grein 1.5 í deiliskipulagsgreinargerð, þar segir: "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraunmyndanir eftir því sem nokkur kostur er."
Skipulagsnefnd hafnaði umsókn um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Kjarrprýði 4.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
14. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa að Kjarrprýði 4 um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til umræddrar lóðar. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur breytist á þann veg að ákvæði á nyrðri hluta hans um að taka skuli tillit til hraunmyndanna séu felld út, enda hefur lóðarhafi fjarlægt þær hraunmyndanir sem vernda skal. Lagður fram uppdráttur sem sýnir með hvaða hætti lóðarhafi sjái fyrir sér útfærslu á lóð.
Skipulagsnefnd telur að fordæmisgildi þess að fella út ákvæði um varðveislu hraunmyndanna sé mjög mikið og gangi ákveðið gegn því markmiði deiliskipulagsins sem sett er fram í grein 1.5 í deiliskipulagsgreinargerð, þar segir: "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraunmyndanir eftir því sem nokkur kostur er."
Skipulagsnefnd hafnar umsókn um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Kjarrprýði 4.