Beint í efni

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, breyting á rammahluta Vífilsstaðalands. Tilfærslur á íbúðafjölda.

Málsnúmer 2403271

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (957). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands. Tillagan hefur verið samþykkt í bæjarstjórn en Skipulagsstofnun benti á í erindi sínu dags. 10. mars 2025 að skýra þurfi betur afstöðu bæjarstjórnar til athugasemda Kópavogsbæjar sem borist hafa. Athugasemd Kópavogsbæjar laut að því að fjölgun íbúða í Hnoðraholti hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif á lóðir í landi Kópavogsbæjar og að ákvörðun um fyrirkomulag Vorbrautar sunnan Þorrasala liggi fyrir áður en umrætt svæði er tekið í notkun. Skipulagsnefnd lagði til að eftirfarandi ákvæði yrði bætt við í umfjöllun breytingartillögunnar í kaflanum Áhrif á umhverfi: "Í kafla 4.2.5 Göturými í greinargerð Rammahluta Vífilsstaðalands er á bls. 36 sett fram stefna um legu og útfærslu Vorbrautar framan við Þorrasali í Kópavogi. Áfram er stefnt að því að lega og útfærsla Vorbrautar til austurs verði eins og rammahluti aðalskipulagsins kveður á um. Tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts sem forkynnt var í febrúar 2025 gerir ráð fyrir því að sú leið verði farin að Vorbraut færist fjær íbúðarbyggð við Þorrasali auk þess að vera talsvert neðar í landi. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

11. (2159). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands. Tillagan hefur verið samþykkt í bæjarstjórn en Skipulagsstofnun benti á í erindi sínu dags. 10. mars 2025 að skýra þurfi betur afstöðu bæjarstjórnar til athugasemda Kópavogsbæjar sem borist hafa. Athugasemd Kópavogsbæjar laut að því að fjölgun íbúða í Hnoðraholti hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif á lóðir í landi Kópavogsbæjar og að ákvörðun um fyrirkomulag Vorbrautar sunnan Þorrasala liggi fyrir áður en umrætt svæði er tekið í notkun.
Skipulagsnefnd lagði til að eftirfarandi ákvæði yrði bætt við í umfjöllun breytingartillögunnar í kaflanum Áhrif á umhverfi:
"Í kafla 4.2.5 Göturými í greinargerð Rammahluta Vífilsstaðalands er á bls. 36 sett fram stefna um legu og útfærslu Vorbrautar framan við Þorrasali í Kópavogi.
Áfram er stefnt að því að lega og útfærsla Vorbrautar til austurs verði eins og rammahluti aðalskipulagsins kveður á um.
Tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts sem forkynnt var í febrúar 2025 gerir ráð fyrir því að sú leið verði farin að Vorbraut færist fjær íbúðarbyggð við Þorrasali auk þess að vera talsvert neðar í landi.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands. Tillagan hefur verið samþykkt í bæjarstjórn en Skipulagsstofnun bendir á í erindi sínu dags. 10. mars að skýra þurfi betur afstöðu bæjarstjórnar til athugasemda Kópavogsbæjar sem borist hafa. Athugasemd Kópavogsbæjar laut að því að fjölgun íbúða í Hnoðraholti hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif á lóðir í landi Kópavogsbæjar og að ákvörðun um fyrirkomulag Vorbrautar sunnan Þorrasala liggi fyrir áður en umrætt svæði er tekið í notkun.

Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi ákvæði verði bætt við í umfjöllun breytingartillögunnar í kaflanum Áhrif á umhverfi:
"Í kafla 4.2.5 Göturými í greinargerð Rammahluta Vífilsstaðalands er á bls. 36 sett fram stefna um legu og útfærslu Vorbrautar framan við Þorrasali í Kópavogi.
Áfram er stefnt að því að lega og útfærsla Vorbrautar til austurs verði eins og rammahluti aðalskipulagsins kveður á um.
Tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts sem forkynnt var í febrúar 2025 gerir ráð fyrir því að sú leið verði farin að Vorbraut færist fjær íbúðarbyggð við Þorrasali auk þess að vera talsvert neðar í landi.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á Aðalskipulagi Garðarbæjar 2016-2030 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

2. (954). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030. Tillagan nær til rammahluta aðalskipulags í Vífilsstaðalandi. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

05

4. (2152). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030. Tillagan nær til rammahluta aðalskipulags í Vífilsstaðalandi. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni kynningu ásamt umsögnum og athugasemdum sem borist hafa.Tillagan nær til rammahluta aðalskipulags í Vífilsstaðalandi. Niðurstaða skoðunar hjá Umhverfissviði er sú að umsagnir og athugasemdir gefa ekki tilefni til breytinga á auglýstri tillögu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu Aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

17. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

12. (945). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

12. (945). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að gera þá breytingu á tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, rammahluta Vífilsstaðalands, að ákvæði einstakra reita verði einfölduð hvað varðar fjölda íbúðareininga og fjölda íbúða á hektara. Einnig að gert verði ráð fyrir að þær tölur sem settar eru fram í töflu um áætlað byggingarmagn og fjölda íbúða geri ráð fyrir ákveðnum slaka, en ákvarðist síðan endanlega í útfærslu deiliskipulags. Breytingartillögunni skal vísað til auglýsingar í samræmi við 3. mgr. 30.gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrrgreindum breytingum. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður."

Bæjarráð Garðabæjar

10

32. (2133). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að gera þá breytingu á tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, rammahluta Vífilstaðalands, að ákvæði einstakra reita verði einfölduð hvað varðar fjölda íbúðareininga og fjöldi íbúða á hektara. Einnig að gert verði ráð fyrir að þær tölur sem settar eru fram í töflu um áætlað byggingarmagn og fjölda íbúða geri ráð fyrir ákveðnum slaka, en ákvarðist síðan endanlega í útfærslu deiliskipulags. Breytingartillögunni skal vísað til auglýsingar í samræmi við 3. mgr. 30.gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrrgreindum breytingum.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, rammahluti Vífilsstaðalands, að lokinni forkynningu. Lagðar fram þær umsagnir sem borist hafa.
Skipulagsstjóri leggur til þá breytingu á tillögunni að ákvæði einstakra reita verði einfölduð hvað varðar fjölda íbúðareininga og fjöldi íbúða á hektara. Einnig að gert sé ráð fyrir að þær tölur sem settar eru fram í töflu um áætlað byggingarmagn og fjölda íbúða geri ráð fyrir ákveðnum slaka en ákvarðist síðan endanlega í útfærslu deiliskipulags.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 3.mgr.30.gr.og 31.gr.skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindum breytingum.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður.

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

10. (943). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

9. (942). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar rammahluta Vífilsstaðalands verði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd á þeim svæðum þar sem starfandi er slík nefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.
Tillagan gerir ráð fyrir því að fjöldi íbúða í Hnoðraholti norður hækki úr 470-520 í 500-600 en fjöldi íbúða í Hnoðraholti suður lækki úr 700-750 í 600-700. Á miðsvæði í Vetrarmýri fjölgi úr 600-800 íbúðum í 700-900 íbúðir. Á Vífilsstöðum vestur verði gert ráð fyrir 100-200 íbúðum í stað 100.

Bæjarstjórn Garðabæjar

14

9. (942). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar rammahluta Vífilsstaðalands verði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd á þeim svæðum þar sem starfandi er slík nefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.
Tillagan gerir ráð fyrir því að fjöldi íbúða í Hnoðraholti norður hækki úr 470-520 í 500-600 en fjöldi íbúða í Hnoðraholti suður lækki úr 700-750 í 600-700. Á miðsvæði í Vetrarmýri fjölgi úr 600-800 íbúðum í 700-900 íbúðir. Á Vífilsstöðum vestur verði gert ráð fyrir 100-200 íbúðum í stað 100.

Bæjarstjórn Garðabæjar

15

9. (942). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

16

21. (2122). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar rammahluta Vífilsstaðalands verði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd á þeim svæðum þar sem starfandi er slík nefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.

Tillagan gerir ráð fyrir því að fjöldi íbúða í Hnoðraholti norður hækki úr 470-520 í 500-600 en fjöldi íbúða í Hnoðraholti suður lækki úr 700-750 í 600-700. Á miðsvæði í Vetrarmýri fjölgi úr 600-800 íbúðum í 700-900 íbúðir. Á Vífilsstöðum vestur verði gert ráð fyrir 100-200 íbúðum í stað 100.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands.
Tillagan gerir ráð fyrir því að fjöldi íbúða í Hnoðraholti norður hækki úr 470-520 í 500-600 en fjöldi íbúða í Hnoðraholti suður lækki úr 700-750 í 600-700. Á miðsvæði í Vetrarmýri fjölgi úr 600-800 íbúðum í 700-900 íbúðir. Á Vífilstöðum vestur verði gert ráð fyrir 100-200 íbúðum í stað 100.
Breytingar koma fram í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, rammahluta Vífilsstaðalands.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

6. (939). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna rammahluta Vífilsstaðalands, sbr. samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum.“ (Mál nr. 2403271)

Bæjarráð Garðabæjar

19

14. (2115). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna rammahluta Vífilsstaðalands, sbr. samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

4. fundur

Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 - Rammahluti Vífilsstaðalands og breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts - norður. Breytingin nær til fjölda íbúðaeininga á svæðinu.
Breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 (Rammahluti Vífilsstaðalands) var samþykkt á fyrri hluta ársins 2021. Í Rammahluta Vífilsstaðalands eru m.a. settir skilmálar um uppbyggingu s.s. landnotkun, byggingarmagn og fjölda íbúða. Breyting var gerð á Rammahluta Vífilsstaðalands og samhliða deiliskipulagi Hnoðraholt norður sumarið 2023 þar sem hámarkshæð bygginga á landnotkunarreit Íb 4.11 var hækkuð og íbúðum í Hnoðraholt norður fjölgað úr 400-450 í 470-520. Uppbygging er hafin á á landnotkunarreit Íb 4.11 en fyrr í vetur hóf Garðabær úthlutun á þeim lóðum sem eftir stóðu í deiliskipulagsáfanga Hnoðraholt norður.
Innan deiliskipulags Hnoðraholts norður er gert ráð fyrir fjölbreyttum íbúðum í sérbýli og fjölbýli, þar á meðal er nokkuð um mjög rúmgóð raðhús. Á höfuðborgarsvæðinu er mikill eftirspurn eftir húsnæði og hefur sú eftirspurn aukist á undanförum mánuðum. Breyttar aðstæður kalla á betri landnýtingu og sér Garðabær tækifæri til þess að nýta land betur á völdum stöðum innan svæðisins, m.a. til þess að mæta aukinni eftirspurn eftir íbúðahúsnæði og stuðla að hagkvæmari nýtingu lands og innviða.
Breyting á Rammahluta Vífilsstaðalands (Hnoðraholt/Vetrarmýri/Vífilsstaðir) gerir ráð fyrir því að fjölga íbúðum innan svæðisins í allt að 2.700 íbúðir í stað 2.470. Breyting á deiliskipulag Hnoðraholt norður gerir ráð fyrir því að fjöldi íbúða geti orðið allt að 600 í stað 520.
Breytingin tekur áfram mið af gildandi svæðisskipulagi og landsskipulagsstefnu, s.s. um sjálfbæra þróun og hagkvæman vöxt höfuðborgarsvæðisins og er í samræmi við gildandi aðalskipulag (Rammahluta Vífilsstaðalands). Í skipulagstillögunum verður fjallað um áhrif breytinganna á umhverfið í samræmi við 12. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða skipulagslýsingu og felur skipulagsstjóra að vinna að mótun breytingartillögu aðalskipulags í samræmi við 1.mgr.30.gr.skipulagslaga nr.123/2010.