Beint í efni

6. (939). fundur

18.04.2024
Bæjarstjórn Garðabæjar

6. (939). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

18.04.2024

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Harpa Þorsteinsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - varabæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. mars 2024 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2403040F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 26/3 ´24.

Hlynur Bæringsson, ræddi 1.tl., bréf umboðsmanns barna varðandi hljóðvist í skólum.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1.tl., bréf umboðsmanns barna varðandi hljóðvist í skólum.

Björg Fenger, ræddi 1.tl., bréf umboðsmanns barna varðandi hljóðvist í skólum og 5.tl., Betri Garðabær 2024 ? hugmyndasöfnun og íbúakosningu.

Fundargerðin sem er 5.tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2404008F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 9/4 ´24.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 9.tl., bréf Golfklúbbsins Odds til Vegagerðarinnar varðandi ástand Elliðavatnsvegar (Flóttamannavegar), dags. 25. mars 2024.

Björg Fenger, ræddi 9.tl., bréf Golfklúbbsins Odds til Vegagerðarinnar varðandi ástand Elliðavatnsvegar (Flóttamannavegar), dags. 25. mars 2024.

Fundargerðin sem er 14.tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2404020F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 16/4 ´24.

Almar Guðmundsson, ræddi 14. tl., drög að viljayfirlýsingu vegna tengingu fráveitu á Álftanesi við Skerjafjarðarveitu.

Fundargerðin sem er 15. tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

3.2 - 2310097 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts 3. áfanga norðurhluta, sem nær til lóðanna Vinastræti 22-28.

„Bæjarstjórn samþykkir, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 11. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir að reisa félagsheimili Oddfellowreglunnar á lóð nr. 28. Lóð sem fyrir breytingu er lóð nr. 20-26 breytist í lóð nr. 20-24. Vestari hluti þeirrar lóðar verður sérstök lóð sem er ætluð undir bílastæði, en einnig verði heimilt að byggja bílakjallara á lóðinni.
Tillagan var auglýst 11. desember 2023 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til 24. janúar 2024. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 8. febrúar 2024. Á fundi skipulagsnefndar 11. apríl 2024 gerði skipulagsstjóri grein fyrir fundi með þeim sem gerðu athugasemdir, skipulagshöfundi og arkitektum, ásamt skuggavarpsteikningum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2310097)

Fylgiskjöl

3.3 - 2404038 - Afgreiðsla skipulagsnefndar á fyrirspurn vegna reksturs minniháttar atvinnustarfsemi á Breiðabólsstað.

„Bæjastjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, um að ekki sé hægt að fallast á að starfsemi sem sé umfram almenna heimagistingu sem heimiluð eru í íbúðarhverfum, enda kalli slíkt á breytingu aðalskipulags, þar sem Breiðabólstaðareitur verði þá skilgreindur sem svæði fyrir verslun og þjónustu.“ (Mál nr. 2404038)

Fylgiskjöl

3.4 - 2306463 - Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar, á grundvelli þess að gögnum verði breytt til samræmis við athugasemdir Skipulagstofnunar, sbr. bréf, dags. 19. febrúar 2024. Skipulagsnefnd telur ekki að breytingarnar varði grundvallaratriði tillögunnar og kallar því ekki á endurauglýsingu hennar.
Bæjarstjórn staðfestir samþykki skipulagsnefndar sem breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010."(Mál nr. 2306463)

Fylgiskjöl

3.5 - 2402118 - Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýri vegna lóðarinnar að Lambamýri 3.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi vegna staðsetningar sorpskýlis í tengslum við matvöruverslun á lóðinni að Lambamýri 3.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum í Lambamýri og Svanamýri sem og íbúum í Birkiholti 1, 3 og 5.“ (Mál nr. 2402118)

Fylgiskjöl

3.6 - 2403271 - Afgreiðsla skipulagsnefndar vaðandi tillögu að skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 - Rammahluti Vífilsstaðalands.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna rammahluta Vífilsstaðalands, sbr. samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum.“ (Mál nr. 2403271)

Fylgiskjöl

3.7 - 2403504 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurs sem nær til lóðarinnar Þorraholt 2-4.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholt norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2-4. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
-Gert er ráð fyrir að lóðirnar Þorraholt 2-4, 2a og 2b (spennustöð og dælustöð) verði sameinaðar þannig að lóðin verði 11.406 m2.
-3.000 m² bætt við bílageymslu í kjallara.
-Nýtingarhlutfall breytist úr 2,2 í 2,4
-Hús nr. 2 er hækkað um 2,5m, verður í sömu hæð og upphaflegt deiliskipulag gerði ráð fyrir sem samþykkt var í desember 2021.
-Breidd byggingarreits húss nr. 2 minnkar úr 25m í 22m.
-Grasþaki breytt í bílastæðaþak á húsi nr. 2.
-Austurhluti 1. hæðar í húsi nr.2 verður atvinnurými í stað bílageymslu á 2 hæðum og byggingarreitur stækkar lítillega.
-Gert er ráð fyrir akstursrömpum innan lóðamarka.
-4 kjallarar í stað 2 - 3 kjallara.
-Kjallari -2 verður atvinnurými.
-Staðsetning spennistöðvar eru inni á lóð Þorraholti 2-4. Lóð dælustöðvar felld út.
-Svalir og skyggni mega fara út fyrir byggingareit um allt að 2,0 metra.
Vekja skal athygli eigenda annarra eigna í Þorraholti og í Útholti 2,4,6,8 og 10 sem og Útholti 1-3, 5-9 og 11-17 á auglýsingunni.“ (Mál nr. 2403504)

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2404011F

04

Fundargerð Íþrótta- og tómstundaráðs frá 10/4 ´24.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1.tl., íþróttaþing Garðabæjar sem fyrirhugað er að halda í haust, 2.tl., samþykkt frá fundi ungmennaráðs með bæjarstjórn um þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ og 3.tl., drög að samningi um stuðning við Stjörnuhlaup 2024. Þá ræddi Hrannar Bragi undir önnur mál sumarfrístund 2024.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2403032F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 22/3 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2404009F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 11/4 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2402020F

07

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 20/3 ´24.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1.tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup 2023, 2.tl., niðurstöður úthlutunar úr þróunarsjóði grunnskóla 2024, 3.tl., kynningu á niðurstöðum könnunar Rannsóknar og greiningar meðal nemenda í grunnskólum haustið 2023 og 5.tl. kynningu og samtal við stjórnendur Hjallastefnunnar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3.tl., kynningu á niðurstöðum í könnun Rannsóknar og greiningar meðal nemenda í grunnskólum haustið 2023.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju kynningu á niðurstöðum Rannsóknar og greiningar meðal nemenda í grunnskólum haustið 2023.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2403028F

08

Fundargerð velferðarráðs frá 20/3 ´24.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1.tl., kynningu á stöðu verkefnis varðandi innleiðingu farsældar í Garðabæ, 2.tl., innleiðingu á verkefninu barnvæn sveitarfélög, 5.tl., jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023-2026 og 6.tl., tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2404004F

09

Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 11/4 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2403036F

10

Fundargerð ungmennaráðs frá 21/3 ´24.

Almar Guðmundsson, ræddi fundargerðina og færði fulltrúum ungmennaráðs þakkir fyrir góð störf.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4.tl., fræðslu í skólum.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2403009F

11

Fundargerð öldungaráðs frá 18/3 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401141

12

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25/3 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401133

13

Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 5/3, 19/3 og 9/4 ´24.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2.tl. fundargerðar frá 19. mars 2024 um stöðu brennsluverkefnis SSH

og URN.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401134

14

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 11/3 og 15/3 ´24.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi fundargerð 11. mars 2024, útboð á akstri, fundargerð 15. mars 2024, 1.tl., drög að óendurskoðuðu ársuppgjöri 2023, 2.tl., lífeyrissjóðsmál og 6.tl., greiðslukerfi.

Hlynur Bæringsson, ræddi fundargerðirnar og málefni Strætó.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, tók til máls að nýju og ræddi sama mál.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi sama mál.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, tók til máls að nýju.

Björg Fenger, ræddi sama mál.

Hlynur Bæringsson, tók til máls að nýju.

Almar Guðmundsson, ræddi sama mál.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401138

15

Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 13/3 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401325

16

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 20/3 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401136

17

Fundargerð stjórnar SSH frá 18/3 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401607

18

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 22/3 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2404085

19

Tillaga að samþykkt um prókúruhafa sveitarfélagsins.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri lagði fram svohljóðandi tillögu varðandi prókúruhafa sveitarfélagsins:

„Samkvæmt 4. mgr. 55. gr sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er bæjarstjóri prókúruhafi sveitarfélagsins. Bæjarstjóri leggur til að bæjarstjórn samþykki ákvörðun hans um að fela jafnframt Lúðvík Erni Steinarssyni, sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og Lúðvík Hjalta Jónssyni, fjármálastjóra prókúru fyrir sveitarfélagið samkvæmt heimild í áðurnefndu lagaákvæði. Jafnframt er felld úr gildi prókúra Guðjóns Erlings Friðrikssonar, fyrrverandi bæjarritara.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um prókúruhafa sveitarfélagsins.

Málsnúmer 2308538

20

Ársreikningur Garðabæjar 2023 - fyrri umræða

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2023. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Almar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Hlynur Bæringsson, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2023 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 2. maí 2024.