Beint í efni

Yfirlit yfir kaup á vörum og þjónustu frá stærstu birgjum árið 2023.

Málsnúmer 2308538

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (2119). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir vöru- og þjónustukaupum af stærstu birgja á árinu 2023.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

7. (940). fundur

Almar Guðmundsson fjallaði um helstu niðurstöður reikningsins og gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á ársreikningi frá fyrri umræðu í bæjarstjórn og vísaði til minnisblaðs Enor frá 30. apríl 2024.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi ársreikning Garðabæjar 2023.
Gulaugur Kristmundsson ræddi ársreikning Garðabæjar 2023 og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bókun Viðreisnar við ársreikning Garðabæjar 2023
Sjálfbær og ábyrgur rekstur er undirstaða þess að Garðabær skipi sér áfram til framtíðar með góða þjónustu fyrir nærsamfélagið. Samstæðureikningur Garðabæjar fyrir árið 2023 sýnir jákvæða niðurstöðu, en á sama tíma er aðalsjóður Garðabæjarins rekinn með óásættanlegum halla. Það er ekki sjálfbær staða til framtíðar og verkefni sem við verðum í fjárhagsáætlanagerð haustsins að finna lausnir á. Viðreisn er tilbúin til þeirrar vinnu.
Garðabær er í vexti og er eitt þeirra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem er í mestum kostum til þess að vaxa mikið. Hallarekstur aðalsjóðs bæjarins og hátt vaxtastig krónunnar eru dragbítar á vexti okkar og munu hafa áhrif á fjárhagsstöðu okkar til framtíðar. Bæjarstjórn Garðabæjar verður að vera tilbúin til þess að taka ákvarðanir til þess að tryggja hallalausan rekstur aðalssjóðs sem er grundvallarforsenda fyrir sterkri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins í því vaxtarskeiði sem heldur áfram á næstu misserum og árum. Viðreisn er tilbúin til þess að taka slíkar ákvarðanir."

Björg Fenger tók til máls og ræddi ársreikning Garðabæjar, þakkaði starfsólki Garðabæjar fyrir vinnu við ársreikninginn og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2023 staðfestir enn sem fyrr sterka fjárhagsstöðu bæjarsjóðs. Rekstraráætlun ársins stóðst með ágætum og frávik í stærstu útgjaldaliðum voru lág. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var jákvæð um 1.642 milljónir króna sem verður að teljast gott miðað við óvenju óhagstæðar ytri aðstæður, viðvarandi verðbólgu og háa vexti sem þyngdi rekstur og jók fjármagnsgjöld sveitarfélaganna verulega á síðastliðnu ári.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A-hluta á árinu 2023 nam 7.547 milljónum króna, þar af vó uppbygging skóla og íþróttamannvirkja í bænum langþyngst, um 6.070 milljónum króna eða 80% af öllum fjárfestingum A-hluta bæjarsjóðs. Þrátt fyrir gríðarmiklar fjárfestingar ársins helst skuldaviðmið samstæðu bæjarsjóðs áfram hóflegt eða 96% en hámarksheimild sveitarfélaga er 150% samkvæmt reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga. Það er afar mikilvægt að miklar tekjur bæjarins af sölu byggingarréttar séu áfram nýttar til framkvæmda og uppbyggingar innviða sem stuðla að markvissri menntun barnanna okkar og farsæld þeirra í öllu skóla- og tómstundastarfi. Um þá mikilvægu hagsmuni Garðabæjar þurfum við bæjarfulltrúar ávallt að standa vörð.
Myndarleg uppbygging samgönguinnviða í nýjum hverfum setur svip sinn á ársreikninginn. Annað árið í röð var framkvæmdarkostnaður vegna nýrra gatna, gangstétta, stíga og götulýsingar mun meiri en nam tekjum af gatnagerðargjöldum. Þegar gatnagerðargjöld verða innheimt á þessum nýju uppbyggingarsvæðum mun það hafa jákvæð áhrif á skammtímaskuldir og skuldastöðu bæjarsjóðs.
Ábyrgur rekstur bæjarsjóðs með vellíðan og lífsgæði bæjarbúa að leiðarljósi endurspeglar áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Við teljum mikilvægt að tryggja öryggi, festu og skilvirkni í rekstri bæjarins, álögum í Garðabæ sé haldið sem lægstum meðal stærstu sveitarfélaga landsins og þjónustukannanir staðfesti áfram mikla ánægju íbúa með þjónustu bæjarins."

Hlynur Bæringsson tók til máls og ræddi ársreikning Garðabæjar 2023.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi ársreikning Garðabæjar 2023.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans þakka starfsfólki Garðabæjar fyrir vinnu við ársreikning og fyrir gott samtal og útskýringar í kjölfar fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Rekstrarniðurstaða 2023 er jákvæð, sala á byggingarrétti umtalsverð og ánægjulegt er að sjá bæði áframhaldandi fjölgun íbúa í Garðabæ og hærri tekjur á hvern íbúa en gert var ráð fyrir.
Af ársreikningi er þó ljóst að A-hluti bæjarsjóðs var á árinu 2023 rekinn með ósjálfbærum hætti, þar sem 4,5 milljarða tekjur af byggingarrétti dugðu aðeins til að skila rekstrarafgangi upp á 1,1 milljarð í A-hluta og veltufé frá rekstri var þrátt fyrir þessar miklu tekjur neikvætt um 189 milljónir. Samhliða hækka skuldir og skuldbindingar bæjarins mikið á milli ára. Heildarskuldir og skuldbindingar A og B hluta hækka úr 27,5 milljörðum í 36,6 milljarða milli ára og heildarskuldir sem hlutfall af tekjum eru komnar í 126%. Garðabær skuldar nú tæpar tvær milljónir á hvern íbúa og skuldaviðmið A og B hluta skv. reglugerð er komið upp í 96%, en í upphaflegum áætlunum var gert ráð fyrir því að það yrði 89%. Mikilvægt er þó að hafa í huga að Garðabær hefur staðið í miklum framkvæmdum og hafa eignir bæjarins þ.a.l. aukist töluvert.
Garðabær er í miklum vaxtarfasa í erfiðu efnahagsumhverfi og við í Garðabæjarlistanum höfum áhyggjur af stöðunni, þar sem skuldasöfnun er bæði mjög mikil og umfram áætlanir. Lóðir eru takmörkuð auðlind og ekki hægt að gera ráð fyrir að tekjur af slíkri sölu verði stöðugar til framtíðar. Framundan er áframhaldandi þörf á fjárfestingu í nauðsynlegum innviðum. Til að standa undir þeirri fjárfestingu er mikilvægt að fara varlega í næstu skref. Að okkar mati er ekki skynsamlegt að auka áfram hratt við skuldir á næstu árum og því afar nauðsynlegt að verja sölutekjum byggingarréttar að sem mestu leyti í innviðauppbyggingu. Til þess þarf að styrkja rekstur A-hluta áfram, gera ráð fyrir áframhaldandi erfiðu rekstrarumhverfi sveitarfélaga í langtímaáætlunum og halda skuldum þannig að bærinn ráði við þær til lengri tíma samhliða uppbyggingu nýrra hverfa.“

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir 2023 samkvæmt 61.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 2.tl. 1.mgr. 18.gr. laganna. Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.

Bæjarráð Garðabæjar

03

16. (2117). fundur

Davíð Búi Halldórsson, löggiltur endurskoðandi starfsmaður Enor gerði grein fyrir skýrslu endurskoðanda fyrir árið 2023. Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkvæmd endurskoðunar, helstu áherslum, niðurstöðum og öðrum mikilvægum atriðum.

Lagt fram minnisblað Enor um breytingar á ársreikningi frá fyrri umræðu. Breytingarnar varða framsetningu á verkum í vinnslu og innheimtum tekjum vegna gatnagerðargjalda í efnahagsreikningi Garðabæjar. Breytingarnar hafa engin áhrif á rekstrarreikning Garðabæjar. Bæjarráð vísar breytingunum til afgreiðslu við síðari umræðu um ársreikning sem fyrirhuguð er 2. maí nk.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

15. (2116). fundur

Umræða bæjarráðs, eftir fyrri umræðu um ársreikning Garðabæjar sem fram fór í bæjarstjórn Garðabæjar 18. apríl 2024.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar og Þorbjörg Kolbeinsdóttir deildarstjóri bókhaldsdeildar Garðabæjar mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir lykiltölur úr rekstri bæjarins. Fóru þau nánar tiltekið yfir sundurliðun ársreiknings Garðabæjar og rekstrarreikning aðalbókar, þar sem farið var yfir rauntölur ársins 2023 samanborið við áætlun ársins 2023.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

6. (939). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2023. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Almar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Hlynur Bæringsson, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2023 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 2. maí 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

06

13. (2114). fundur

Davíð Búi Halldórsson, löggiltur endurskoðandi, starfmaður Enor og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhalds, mættu á fund bæjarráðs.

Davíð Búi Halldórsson, gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2023, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.

Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2023 samkvæmt 3.mgr. 61.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður af bæjastjóra og bæjarráði og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 18. apríl 2024 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 2. maí 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

07

7. (2108). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2023 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 706.753.

Bæjarráð Garðabæjar

08

32. (2085). fundur

Á fund bæjarráð mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir árshlutauppgjöri Garðabæjar fyrir tímabilið janúar - júní 2023. Niðurstaða A og B - hluta fyrir tímabilið í þkr. Rekstrartekjur 12.037.320. Rekstrargjöld 10.781.160. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 1.256.161. Afskriftir (756.099) Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og -gjalda 500.062. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (1.171.741). Rekstrarniðurstaða - neikvæð - (671.679).

Fjármálastjóri lagði fram minnisblað með skýringum og upplýsingum.

Fylgiskjöl