Beint í efni

18. (2119). fundur

14.05.2024
Bæjarráð Garðabæjar

18. (2119). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

14.05.2024

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2310231

01

Hestamýri 2 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingafulltrúa að veita Hestamýri ehf., kt. 680122-1480, leyfi til að byggja 32 íbúða fjölbýlishús með bílakjallara á lóðinni Hestamýri 2.

Málsnúmer 2401557

02

Útholt 14- Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingafulltrúa að veita Ágústi Erni Arnarsyni, kt. 150891-2219, leyfi fyrir byggingu staðsteypts einbýlishúss á lóðinni Útholti 14.

Málsnúmer 2311540

03

Þórukot - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingafulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi fyrir innanhússbreytingum vegna snyrtingu í aðalhúsi, þar sem bætt er við snyrtingu fyrir fatlaða í fasteigninni Þórukoti.

Húsnæðið er skv. samkomulagi við Garðabæ, nýtt tímabundið sem golfskáli.

Málsnúmer 2404386

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu á breytingu á deiliskipulagi fyrir Eskiás 7 og 10.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 8. maí um breytingu deiliskipulags Ása og Grunda, sem nær til fjölbýlishúsa við Eskiás 6, 7, 8 og 10.

Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Eskiás eykst um 22 íbúðir, eða úr 276 í 298.

Einnig að byggingarreitum á lóðunum nr. 7 og 10 verði breytt, þannig að þær íbúðagerðir sem þróaðar hafa verið á svæðinu gangi vel upp á lóðunum. Auk þess gerir tillagan ráð fyrir að hámarskhæðafjöldi hækki úr tveimur í þrjár hæðir á lóðinni nr. 10 og á nyrðri byggingarreit meðfram Eskiási á lóðinni nr. 7.

Samþykkt tillaga skal auglýst í samræmi við 1.mgr. 43.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2307075

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna fyrirspurnar til tækni og umhverfissviðs varðandi lóð fyrir smádreifistöð Veitna við Olís í Garðabæ.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi erindi Veitna ohf. dags. 26. mars 2024. Í erindinu kemur fram að Veitur geti ekki fallist á að lóð fyrir smádreifistöð til þess að geta afhent rafmagn fyrir hraðhleðslustöðvar Ísorku/Olís a horni Hafnarfjarðarvegar og Vífilstaðavegar, hafi ekki stoð í deiliskipulagi.

Staðsetning dreifistöðvarlóðarinnar er utan deiliskipulagssvæðis Hafnarfjarðarvegar og á svæði sem skilgreint er í deiliskipulagi Ása og Grunda, sem svæði þar sem deiliskipulagi er frestað.

Bensínstöðvarlóðin á sér þannig ekki stoð í deiliskipulagi og því er óhjákvæmilegt að lóð smádreifistöðvar sem tengist umræddri bensínstöðvarlóð hafi sömu stöðu gagnvart skipulagi.

Í afgreiðslu skipulagsnefndar kemur fram að nefndin sýni því skilning að Veitur vinni eftir verklagsreglum en til þess að dreifistöðvarlóðin geti eignast stoð í skipulagi þyrfti bensínstöðin að hafa þá sömu stoð og skipulagsnefnd mælir þannig ekki með því að áætlunum verði breytt hvað það varðar.



Málsnúmer 2405091

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu á breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður varðandi raðhúsaeiningar við Vorbraut.

Afgreiðslu málsins er frestað.

Málsnúmer 2405134

07

Bréf umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytis varðandi umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda og auglýsing SSH eftir umsóknum, dags. 8. maí 2024.

Lögð fram auglýsing Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins eftir umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda, dags. 8. maí 2024.

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hefur hlotið samþykki umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til 1. júlí 2024.

Málinu er vísað til umhverfissviðs.



Málsnúmer 2405159

08

Umsókn Eriks Yngva Brannan um sumarlaun 2024 vegna þátttöku í Ólympíuleikum í efnafræði.

Bæjarráð samþykkir að verða við erindi Erik Yngva Brannan, kt. 110106-2380, um greiðslu sumarlauna 2024 vegna undirbúnings og þátttöku á Ólympíuleikunum í efnafræði.

Málsnúmer 2403132

09

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2024 og heiðursviðurkenning.

Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2024. Jafnframt samþykkir bæjarráð tillögu menningar- og safnanefndar um veitingu heiðursviðurkenningar.

Tilnefningarnar verða tilkynntar á menningaruppskeruhátíð föstudaginn 7. júní 2024, kl. 16:00 í Sveinatungu.



Málsnúmer 2308538

10

Yfirlit yfir kaup á vörum og þjónustu frá stærstu birgjum árið 2023.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir vöru- og þjónustukaupum af stærstu birgja á árinu 2023.

Málsnúmer 2405152

11

Verkefnaáætlun Velferðarsviðs Garðabæjar.

Sviðsstjóri Velferðarsviðs fór yfir verkáætlun og starfsemi sviðsins.