Beint í efni

Hnoðraholt norður - Vorbraut - Raðhús - Deiliskipulagsbreyting.

Málsnúmer 2405091

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (945). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að samþykkja tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður, að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að raðhúsaeiningum við Vorbraut verði fjölgað um þrjár. Engar athugasemdir bárust. Tillagan er samþykkt sem breyting deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (945). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

32. (2133). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að samþykkja tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður, að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að raðhúseiningum við Vorbraut verði fjölgað um þrár. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan er samþykkt sem breyting deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að raðhúseiningum við Vorbraut verði fjölgað um þrjár. Umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

10. (943). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

9. (942). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

07

21. (2122). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Vorbraut 49-55 samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúðaeininga úr fjórum í fimm.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að raðhúseiningum við Vorbraut verði fjölgað um 4 þannig að raðhúslengjan Vorbraut 49-55 samanstandi af 6 íbúðareiningum í stað 4. Á síðasta fundi nefndarinnar var tillögu sem gerði ráð fyrir því að í sömu raðhúslengju yrðu 5 íbúðareiningar vísað til auglýsingar.
Að athuguðu máli fellst skipulagsnefnd ekki á að íbúðareiningar verði fleiri en 5 í lengjunni 49-55 og er því fyrri tillögu vísað aftur óbreyttri til bæjarstjórnar og lagt til að sú tillaga verði auglýst.

Bæjarráð Garðabæjar

09

18. (2119). fundur

Afgreiðslu málsins er frestað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að raðhúseiningum við Vorbraut verði fjölgað um þrjár. Þá bætist við íbúðareining í þrjár raðhúslengjur af fjórum. Ekki er um aukningu byggingarmagns að ræða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.