10. (943). fundur
10. (943). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.06.2024
Kl. 17:00 - 18:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - varabæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. júní 2024 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2406007F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 11/6 ´24.
Fundargerðin sem er 9.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2406017F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 18/6 ´24.
Gunnar Valur Gíslason kvaddi sér hljóðs og ræddi 1.tl. Aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026 - kynningu.
Ingvar Arnarson tók til máls og ræddi 1.tl. Aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum, kynningu og lagði fram eftirfarandi bókun: "Garðbæjarlistinn fagnar aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum heilshugar og þakkar velferðarnefnd og starfsfólki bæjarins fyrir vandaða vinnu. Áætlunin endurspeglar áherslur Garðabæjarlistans í jafnréttismálum vel og við hlökkum til að sjá hana koma til framkvæmda á næstu árum. Saman sköpum við bæ þar sem við fáum öll að tilheyra, í fjölbreyttu og góðu samfélagi."
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 1.tl. Aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum, kynningu, 3.tl. Holtsbúð 87 - Klaustrið - samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur og 4.tl. Viðauka við samning um úthlutun lóða í Vetrarmýri.
Fundargerðin sem er 4.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2405054F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 5/6 ´24.
Harpa Rós Gísladóttir tók til máls og ræddi 2.tl. þarfagreiningu varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ og 4.tl. uppbyggingu siglingaraðstöðu ásamt kaupum á nauðsynlegum búnaði.
Hlynur Bæringsson tók til máls og ræddi 5., 6. og 7.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 5., 6. og 7.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls og ræddi 2.tl. þarfagreiningu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ, 5., 6. og 7.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2405053F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 5/6 ´24.
Margrét Bjarnadóttir tók til máls og ræddi 1.tl. þrepaskipta skólaþjónusta í leik- og grunnskólum Garðabæjar og 2.tl. ársskýrslu leikskóla - nýtt form.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls og ræddi 1.tl. þrepaskipta skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi 1.tl. þrepaskipta skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 1.tl. þrepaskipta skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2405049F
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 5/6 ´24.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi 2.tl. ráðningu skólastjóra og 3.tl. viðurkenningar í skólastarfi.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2406006F
06
Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla frá 11/6 ´24.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi 4.tl. Tónlistarskóli Garðabæjar 60 ára á árinu.
Björg Fenger tók til máls og ræddi 4.tl. Tónlistarskóli Garðabæjar 60 ára á árinu.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2406011F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 12/6 ´24.
Björg Fenger tók til máls og ræddi 1.tl. hjólreiðaáætlun Garðabæjar og 2.tl. vorhreinsun lóða 2024 og 3. tl. Hreinsunarátak 2024.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls og ræddi 1. tl. hjólreiðaáætlun Garðabæjar og 6. tl. Snyrtilegt umhverfi 2024.
Ingvar Arnarson tók til máls og ræddi 2. tl. vorhreinsun lóða 2024, 3.tl. hreinsunarátak 2024, 5.tl. trjágróður á lóðarmörkum og 9.tl. Kiwanisklúbbinn Eldey - beiðni um afnot af hluta Vífilsstaðalækjar.
Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 9.tl. Kiwanisklúbbinn Eldey - beiðni um afnot að hluta Vífilsstaðalækjar og 5.tl. trjágróður á lóðarmörkum.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401133
08
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 4/6 ´24.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 2. tl. endurskoðun gjaldskrár og 3.tl. málefni endurvinnslustöðva.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401136
09
Fundargerð stjórnar SSH frá 3/6 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401137
10
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 7/6 ´24.
Björg Fenger tók til máls og ræddi 1.tl. þróunaráætlun 2020 - 2024 og 4.tl. áherslur svæðisskipulagsnefndar 2022 til 2026.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401325
11
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 15/5 ´24.
Bjarni Th. Bjarnason tók til máls og ræddi fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2406627
12
Kosning fulltrúa í fastanefndir
Guðlaugur Kristmundsson lagði fram eftirfarandi tillögu fyrir hönd Viðreisnar og Framsóknar, á breytingu á skipun nefndarmanna fyrir næsta ár:
Velferðarráð:
Brynja Dan Gunnarsdóttir (B) sem er aðaláheyrnarfulltrúi verður aðalmaður.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir (B), sem er varaáheyrnarfulltrúi, verður varamaður.
Rakel Steinberg Sölvadóttir (C), verður aðaláheyrnarfulltrúi.
Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir (C) sem er aðalmaður verður varaáheyrnarfulltrúi.
Skipulagsnefnd:
Hlynur Bæringsson (B), sem er aðaláheyrnarfulltrúi verður aðalmaður.
Einar Þór Einarsson (B), varamaður.
Guðlaugur Kristmundsson (C), sem er aðalmaður verður aðaláheyrnarfulltrúi.
Rakel Steinberg Sölvadóttir (C), varaáheyrnarfulltrúi.
Skólanefnd grunnskóla:
Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir (C), sem hefur verið varaáheyrnarfulltrúi verður aðalmaður.
Tinna Borg Arnfinnsdóttir (C) varamaður.
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir (B), aðaláheyrnarfulltrúi.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir, sem hefur verið aðalmaður, verður varaáheyrnarfulltrúi.
Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar:
Tinna Borg Arnfinnsdóttir (C), sem hefur verið varamaður verður aðalmaður.
Einar Þór Einarsson (B) varamaður.
Umhverfisnefnd:
Eyþór Eðvarðsson (C), sem hefur verið varamaður, verður aðalmaður.
Einar Örn Ævarsson (B) varamaður.
Menningar- og safnanefnd:
Arnar Hólm Einarsson (C) aðalmaður
Unnur Björg Gísladóttir (B) varamaður.
Íþrótta- og tómstundaráð:
Hlynur Bæringsson (B) aðalmaður
Arnar Hólm Einarsson (C), sem hefur verið aðalmaður, verður varamaður.
Leikskólanefnd:
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir (B), aðalmaður.
Benedikt D. Valdez Stefánsson (C), sem hefur verið aðalmaður verður varamaður.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2406630
13
Kosning fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Guðlaugur Kristmundsson kjörinn sem fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem einn af fimm fulltrúum Garðabæjar.
Málsnúmer 2406622
14
Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2024
"Með vísan til 14.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 4.mgr. 8.gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 15. ágúst 2024. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 13. ágúst 2024.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga."