Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 18/6 ´24.

Málsnúmer 2406017F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (943). fundur

Gunnar Valur Gíslason kvaddi sér hljóðs og ræddi 1.tl. Aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026 - kynningu.

Ingvar Arnarson tók til máls og ræddi 1.tl. Aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum, kynningu og lagði fram eftirfarandi bókun: "Garðbæjarlistinn fagnar aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum heilshugar og þakkar velferðarnefnd og starfsfólki bæjarins fyrir vandaða vinnu. Áætlunin endurspeglar áherslur Garðabæjarlistans í jafnréttismálum vel og við hlökkum til að sjá hana koma til framkvæmda á næstu árum. Saman sköpum við bæ þar sem við fáum öll að tilheyra, í fjölbreyttu og góðu samfélagi."

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 1.tl. Aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum, kynningu, 3.tl. Holtsbúð 87 - Klaustrið - samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur og 4.tl. Viðauka við samning um úthlutun lóða í Vetrarmýri.

Fundargerðin sem er 4.tl. er samþykkt samhljóða.