Eskiás 7 og 10 - Deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðanna Eskiás 7 og Eskiás 10 ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa. Skipulagsnefnd kom til móts við innsendar athugasemdir með því að leggja til að þær breytingar yrðu gerðar á tillögunni að fjölgun íbúða við Eskiás verði 15 í stað 22 og að hámarks hæðafjöldi á lóð nr.7 verði 2 hæðir og hluti byggingar á lóð nr.10 sem eru næst Ásabraut verði einnig 2 hæðir. Ekki er farið fyrir hámarkshæð húsa í gildandi deiliskipulagi. Á fundi skipulagsnefndar var lögð fram tillaga skipulagsstjóra að svörum við þeim athugasemdum sem borist höfðu. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til fjölbýlishúslóðanna Eskiáss 7 og 10 í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
42. (2143). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðanna Eskiás 7 og Eskiás 10 ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd kom til móts við innsendar athugasemdir með því að leggja til að þær breytingar yrðu gerðar á tillögunni að fjölgun íbúða við Eskiás verði 15 í stað 22 og að hámarks hæðafjöldi á lóð nr.7 verði 2 hæðir og hluti byggingar á lóð nr.10 sem eru næst Ásabraut verði einnig 2 hæðir. Ekki er farið fyrir hámarkshæð húsa í gildandi deiliskipulagi.
Á fundi skipulagsnefndar var lögð fram tillaga skipulagsstjóra að svörum við þeim athugasemdum sem borist höfðu.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til fjölbýlishúslóðanna Eskiáss 7 og 10 í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðanna Eskiás 7 og Eskiás 10 ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd kemur til móts við innsendar athugaemdir með því að leggja til að þær breytingar verði gerðar á tillögunni að fjölgun íbúða við Eskiás verði 15 í stað 22 og að hámarks hæðafjöldi á lóð nr.7 verði 2 hæðir og hluti byggingar á lóð nr.10 sem eru næst Ásabraut verði einnig 2 hæðir. Ekki er farið fyrir hámarkshæð húsa í gildandi deiliskipulagi.
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra að svörum við þeim athugsemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til fjölbýlishúslóðanna Eskiáss 7 og 10 í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
12. fundur
Sigurður Einarsson arkitekt og Örn Kjartansson hjá framkvæmdafélaginu Eskiás hf. gerðu grein fyrir tillögu að breytingum á tillögunni sem leitast við að koma til móts við athugasemdir.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á hæð húsa og íbúðafjölda að Eskiási 7 og 10 Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
8. (941). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 8. maí um breytingu deiliskipulags Ása og Grunda, sem nær til fjölbýlishúsa við Eskiás 6, 7, 8 og 10.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Eskiás eykst um 22 íbúðir, eða úr 276 í 298.
Einnig að byggingarreitum á lóðunum nr. 7 og 10 verði breytt, þannig að þær íbúðagerðir sem þróaðar hafa verið á svæðinu gangi vel upp á lóðunum. Auk þess gerir tillagan ráð fyrir að hámarksfjöldi hæða hækki úr tveimur hæðum í þrjár hæðir á lóðinni nr. 10 og á nyrðri byggingarreit meðfram Eskiási á lóðinni nr. 7.
Samþykkt tillaga skal auglýst í samræmi við 1.mgr. 43.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
07
18. (2119). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 8. maí um breytingu deiliskipulags Ása og Grunda, sem nær til fjölbýlishúsa við Eskiás 6, 7, 8 og 10.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Eskiás eykst um 22 íbúðir, eða úr 276 í 298.
Einnig að byggingarreitum á lóðunum nr. 7 og 10 verði breytt, þannig að þær íbúðagerðir sem þróaðar hafa verið á svæðinu gangi vel upp á lóðunum. Auk þess gerir tillagan ráð fyrir að hámarskhæðafjöldi hækki úr tveimur í þrjár hæðir á lóðinni nr. 10 og á nyrðri byggingarreit meðfram Eskiási á lóðinni nr. 7.
Samþykkt tillaga skal auglýst í samræmi við 1.mgr. 43.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til fjölbýlishúsa við Eskiás 6, 7, 8 og 10.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Eskiás eykst um 22 eða úr 276 í 298.
Einnig að byggingarreitum á lóðunum nr. 7 og 10 við Eskiás verði breytt, þannig að þær íbúðargerðir sem þróaðar hafa verið á svæðinu gangi vel upp á lóðunum. Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að hámarkshæðafjöldi hækki úr tveimur í þrjár hæðir á lóðinni nr.10 og á nyrðri byggingarreit meðfram Eskiási á lóðinni nr. 7.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
5. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær fjölbýlishúsa við Eskiás 6,7,8 og 10. Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu gerði grein fyrir ástæðum umsóknarinnar fyrir hönd uppbyggingaraðila.
Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.