Hestamýri 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
18. (2119). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingafulltrúa að veita Hestamýri ehf., kt. 680122-1480, leyfi til að byggja 32 íbúða fjölbýlishús með bílakjallara á lóðinni Hestamýri 2.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
1. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir byggingarleyfisumsóknar fyrir Hestamýri 2.
Aðaluppdrættir hafa verið sendir til yfirferðar hjá deiliskipulagshöfundi og liggur umsögn fyrir.
Grunnflötur hjólageymslusmáhýsa er meiri en ákvæði deiliskipulags segja til um varðandi smáhýsi. Ekki er gerð athugasemd við það með vísan í önnur veitt byggingarlefyi í Breiðumýri. Skipulagsstjóri mælir með því að ekki verði gert ráð fyrir minni hjólreiðageymslu sem fer út fyrir byggingarreit en í staðinn verði sett inn tákn í grunnmynd kjallara inni í sérnotageymslum inn af bílageymslum að hægt sé að koma fyrir reiðhjóli.
Ekki er gerð athugasemd við að veggir rampar séu utan byggingarreits enda gert ráð fyrir gönguleið þvert fyrir ramp.
Bent er á að þó svo að aðaluppdráttur geri ekki ráð fyrir skjólveggjum þá þarf að skila inn uppdráttum arkitekts ef ráðist verður í að reisa skjólveggi síðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofan greind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.