2. fundur
2. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
08.02.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Eiríkur Sigurjón Svavarsson - varamaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Formaður skipulagsnefndar óskaði eftir því við nefndina að tekið yrði á dagskrá eitt mál sem ekki var í fundarboði.
Samþykkt.
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi
Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf og Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri fóru yfir þær ábendingar sem borist hafa í gegnum Betri Garðabær.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa sem vinna nú að mótun breytingartillögu á Aðalskipulagsi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis og annarra þátta sem settir eru fram í 4.kafla greinargerðar aðalskipulagsins og fjallar um Samgöngu og þjónustukerfi.
02
Lambamýri sorpskýli verslunar, dsk br Breiðamýri
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir sorpskýli vestan við fjölbýlishúsið Lambamýri 3 og bílastæði fyrir 8 bíla með aðkomu frá Breiðumýri. Sorpskýlinu er ætlað að þjóna verslunarrými á jarðhæð að Lambamýri 3 og bílastæðin auðveldi aðkomu að versluninni frá Breiðumýri. Aðkoma að sorpskýlinu verði frá bílastæðinu og dregur það úr umferð stærri bíla sem tengjast versluninni um Lambamýri og framhjá leikskóla.
Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði og skipulagshöfundi.
03
Skógarprýði 10 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu á stakstæðri bifreiðargeymslu. Lýtur fyrirspurn að því hvort samþykkt yrði að bílageymslan yrði alfarið opin (pergola) en þó gert ráð fyrir smáhýsi undir garðháhöld o.þ.h.
Deiliskipulag Garðahrauns kveður á um það í grein 2.2.3 að við hvert hús skuli vera bílageymsla fyrir einn eða fleiri bíla. Ekki er kveðið á um það hvort bílageymsla skuli vera opin eða lokuð. Í byggingarreglugerð er að finna skilgreiningu á bílageymslu en þar segir: Bílageymsla: Hús eða húshluti til geymslu á bílum, ýmist opið eða lokað.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að bílageymsla sé opin á meðan að tryggt sé að pláss sé fyrir bifreið innan lóðar eins og um bílageymslu væri að ræða og umfram þau 3 bílastæði sem deiliskipulag kveður á um að skuli vera á lóð. Skrá skal pergólu sem B-rými.
04
Lækjarfit 6 - breyting á byggingarreit - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til einbýlishúslóðarinnar Lækjarfit 6. Meðfylgjandi er tillaga að útfærslu á viðbyggingu við íbúðarhúsið. Gert er ráð fyrir að byggingareitur stækki til suðurs um 1,4 m, að lóð nr.8.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum og íbúum að Lækjarfit nr. 4, 8, 10 og 11 sem og að Löngufit 5, 7 og 9.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
05
Sjáland Pikkolo - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi kynnti hugmynd að útfærslu svæðis umhverfis afhendingarstað við bílastæði Sjálandsskóla með aðkomu frá Vífilsstaðavegi.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.
06
Móaflöt 51, fyrirspurn um bílageymslu.
Lögð fram fyrirspurn eiganda raðhússins Móaflöt 51 um það hvort heimilað yrði að byggja stakstæða bílageymslu við enda sameiginlegrar raðhúsinnkeyrslu. Bílageymslan yrði að hluta til inni á lóð raðhússins.
Skipulagsnefnd telur að útfærslan sé fordæmisgefandi fyrir raðhúslengjur í Garðabæ og því ekki skynsamlegt að opna á þennan möguleika. Mælir nefndin hinsvegar með því að skoðað verði að útfæra bílageymslu við þennan enda raðhúslengjunnar með svipuðu sniði og gert hefur verið við hinn endann á lóð nr.49.
07
Útholt 35-41 fjölgun lóða - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa raðhúslengjunnar hvort heimilað yrði að fjölga íbúðareiningum úr 4 í 5 og þar með minnka flatarmál hverrar einingar. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
08
Vinastræti 22-28 - Deiliskipulag
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts 3.áfanga að lokinni auglýsingu ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Tillaga ásamt athugasemdum vísað til skoðunar hjá umhverfissviði og deiliskipulagshöfundi.
09
Deiliskipulag - Vinastræti 1-3 (Urriðaholtsskóli)
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til lóðarinnar Vinastræti 1-3 sem er lóð Urriðaholtsskóla að lokinni auglýsingu. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að form byggingarreits breytist. Afmörkuð er lóð ásamt byggingarreit fyrir spennistöð. Skilmálar fyrir spennistöðvar 4.7.44 í skilmálahefti gilda fyrir lóð spennistöðvar. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt sem breyting deiliskipulags Vesturhluta Urriðaholts í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
10
Grímsgata 2-4, ónýtt rými - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um nýtingu á óuppfylltu virkisrými við suðurenda 1.hæðar sem er niðurgrafið og gluggalaust. Spurt er hvort hægt sé að nýta rýmið sem geymslur fyrir íbúðir fjölbýlishússins.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað nýtingu umrædds rýmis varðar.
11
Keldugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsstjóra falið að ræða við þá aðila sem hafa gert athugasemdir.
13
Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu
Í tilkynningunni er vakin athygli á að drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 14. febrúar 2024. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja sjálfbæra landnýtingu í samræmi við markmið laga um landgræðslu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við drögin enda fjalla þau mest um landnýtingu vegna landbúnaðarstarfsemi, m.a. beitarnýtingu á afrétti sem hefur verið aflögð innan lögsögu Garðabæjar.
14
Skipulags- og matslýsing, breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og nýjar deiliskipulagsáætlanir fyrir borteiga Coda Terminal
Lögð fram skipulags-og matslýsing á breytingu á Aðalskipulagi Harnarfjarðar og deiliskipulagi fyrir borteiga fyrirtækisins Coda Terminal, móttöku og förgunarstöðvar fyrir koldíoxíð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við verkefnis-og matslýsingu en áskilur sér rétt til að gera athugasemdir á síðari stigum skipulagsferlisins.
15
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 1
Fundargerð lögð fram.
15.1 - 2310231 - Hestamýri 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir byggingarleyfisumsóknar fyrir Hestamýri 2.
Aðaluppdrættir hafa verið sendir til yfirferðar hjá deiliskipulagshöfundi og liggur umsögn fyrir.
Grunnflötur hjólageymslusmáhýsa er meiri en ákvæði deiliskipulags segja til um varðandi smáhýsi. Ekki er gerð athugasemd við það með vísan í önnur veitt byggingarlefyi í Breiðumýri. Skipulagsstjóri mælir með því að ekki verði gert ráð fyrir minni hjólreiðageymslu sem fer út fyrir byggingarreit en í staðinn verði sett inn tákn í grunnmynd kjallara inni í sérnotageymslum inn af bílageymslum að hægt sé að koma fyrir reiðhjóli.
Ekki er gerð athugasemd við að veggir rampar séu utan byggingarreits enda gert ráð fyrir gönguleið þvert fyrir ramp.
Bent er á að þó svo að aðaluppdráttur geri ekki ráð fyrir skjólveggjum þá þarf að skila inn uppdráttum arkitekts ef ráðist verður í að reisa skjólveggi síðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofan greind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
15.2 - 2401062 - Bakkavegur 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að nýrri spennustöð á lóð við Bakkaveg 2, á sama stað og eldri stöðin stendur. Staðsetning er í samræmi við afgreiðslufund skipualgsstjóra 27.4.2022.
Stærð lóðar er 5 x 7,5 m og byggingarreitur er hálfan metra frá lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis.
15.3 - 2312355 - Litlatún 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn um nýja útfærslu á skilti á undirstöðum sem eru til staðar. Um skilti með LED-lýsingu að ræða en ekki er um hreyfimynd að ræða. Fram kemur á uppdrætti að um verð-skilti sé að ræða og því auglýsing fyrir starfsemi á lóðinni sbr. ákvæði deiliskipulags þar um.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við framlagða umsókn.
15.4 - 2401084 - Hörgatún 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna óupphitaðs skýlis, sem nýtt verður sem vörumóttaka.
Nútingarhlutfall innan lóðar verður 0,47 en samkvæmt deiliskipulagi Hörgatúns 2 er hámarks nýtingarhlutfall 0,46.
Við veitingu byggingarleyfis gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að vikið verði frá 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað nýtingarhlutfall varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
15.5 - 2401551 - Blikanes 15 - Umsókn um byggingarleyfi - rangur eigandi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn vegna ýmissa breytinga sem áformað er að framkvæmda. Flestar breytingar varða ekki ákvæði deiliskipulags Arnarness.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við uppdrætti að öðru leyti en því að hæð skjólveggja er 2 metrar en samkvæmt deiliskipulagi skulu þeir ekki vera hærri en 1,8 m.
Samþykki eigenda aðliggjandi lóðar þarf að liggja fyrir vegna skjólveggja sem eru nær lóðarmörkum en 1,8 m og eru hærri en sem nemur hæð þeirra frá lóðarmörkum.
15.6 - 1911051 - Kinnargata 26-Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi ásamt aðaluppdráttum. Umsögn deiliskipuagshöfundar lögð fram.
Heildar byggingarmagn er um 53 m2 umfram heimild deiliskipulags. Gert er ráð fyrir að óuppfylltum gluggalausum tæknirýmum í kjallara sem eru ríflega 100 m2 að flatarmáli.
Samþykki hefur áður verið veitt fyrir útfærslu á þaki og innkeyrslu.
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað byggingarmagn varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
15.7 - 2306493 - Lautargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi ásamt aðaluppdráttum. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á uppdráttum í kjölfar athugasemda deiliskipulagshöfunar. Meðfylgjandi er erindi frá hönnuði þar sem sjónarmið hans og húsbyggjanda eru skýrð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.