Lækjarfit 6 - breyting á byggingarreit - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
4. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til einbýlishúslóðarinnar Lækjarfit 6 að lokinni grenndarkynningu.
Gert er ráð fyrir að byggingareitur stækki til suðurs um 1,4 m, að lóð nr.8.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.ml. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
3. (936). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu einbýlishússins við Lækjarfit 6, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum og íbúum að Lækjarfit nr. 4, 8, 10 og 11 og að Löngufit 5, 7 og 9. (Mál nr. 2401388)
Bæjarráð Garðabæjar
04
6. (2107). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu einbýlishússins við Lækjarfit , sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum og íbúum að Lækjarfit nr. 4, 8, 10 og 11 og að Löngufit 5, 7 og 9.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til einbýlishúslóðarinnar Lækjarfit 6. Meðfylgjandi er tillaga að útfærslu á viðbyggingu við íbúðarhúsið. Gert er ráð fyrir að byggingareitur stækki til suðurs um 1,4 m, að lóð nr.8.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum og íbúum að Lækjarfit nr. 4, 8, 10 og 11 sem og að Löngufit 5, 7 og 9.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.