Beint í efni

3. (936). fundur

15.02.2024
Bæjarstjórn Garðabæjar

3. (936). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

15.02.2024

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Lilja Lind Pálsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðjón Pétur Lýðsson - varabæjarfulltrúi
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 1. febrúar 2024 er lögð fram.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi ráðningu í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og stjórnsýslulega meðferð mála.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi stjórnsýslulega meðferð mála.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi stjórnsýslulega meðferð mála.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs á ný.

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og ræddi stjórnsýslulega meðferð mála.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs á ný.

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs á ný.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs á ný.

Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs og ræddi stjórnsýslulega meðferð mála.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs á ný.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs á ný.

Dagskrá

Málsnúmer 2402003F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 6/2 ´24.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup árið 2023 og lagði fram svohljóðandi bókun.

"Samkvæmt niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup meðal íbúa Garðabæjar fyrir árið 2023 er Garðabær líkt og oft áður í efsta sæti meðal sveitarfélaga varðandi ánægju með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið, en könnunin var gerð í desember og janúar sl. Mikil ánægja er með þætti eins og skipulagsmál, gæði umhverfis, aðstöðu til íþróttaiðkunar og þjónustu grunnskóla og mælist hún meiri en víðast hvar annars staðar. Þá er ánægja með þjónustu sveitarfélagsins í heild meiri en annars staðar þekkist.

Könnunin sýnir einnig minnkandi ánægju milli ára í ýmsum málaflokkum frá könnuninni 2022, t.d. hvað varðar leikskólamál og sorphirðu. Slíkar niðurstöður þarf alltaf að greina vel til að gera betur. Rétt er að minna á að yfirstandandi eru breytingar til að bæta umgjörð og starfsaðstæður í leikskólum bæjarins og eins verður nýr, glæsilegur 6 deilda leikskóli opnaður innan fárra vikna við Holtsveg í Urriðaholti. Að ýmsu öðru hefur verið unnið síðustu mánuði og má þar nefnda umbætur skóla- og leikskólalóða, 2.áfanga Urriðaholtsskóla sem tekinn er í notkun á yfirstandandi önn, uppbygging Vinagarðs og stórfelldar endurbætur á húsnæði grunnskólanna. Allt er þetta til þess fallið að bæta þjónustu og auka ánægju íbúa enn frekar.

Niðurstaða varðandi þjónustu við fatlað fólk eru vonbrigði, enda hefur umfang og gæði þjónustunnar aukist verulega frá könnun Gallup 2022, til dæmis hefur nýr sjö íbúða búsetukjarni fyrir fatlað fólk verið tekinn í gagnið í Brekkuási. Áfram verður lögð áhersla á að rýna og bæta þjónustuna á þessu sviði.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna góðri niðurstöðu könnunarinnar og munu hér eftir sem hingað til vinna að því að þjónustan við bæjarbúa eflist og ánægja íbúa aukist."

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup árið 2023.

Lilja Lind Pálsdóttir, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup árið 2023.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup árið 2023.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi sex mánaða skýrslu Betri samgangna ohf.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 12. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi sex mánaða skýrslu Betri samgangna ohf.

Almar Guðmundsson, ræddi 12. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi sex mánaða skýrslu Betri samgangna ohf.

Fundargerðin sem er 20 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2402013F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 13/2 ´24.

Lilja Lind Pálsdóttir, ræddi 7. tl., bréf mennta- og barnamálaráðuneytisins varðandi úttekt á starfsemi tónlistarskóla.

Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2402012F

03

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 12/2 ´24.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2402004F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/2 ´24.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401049F

05

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 7/2 ´24.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. og 2. tl., skóladagatöl leik- og grunnskóla skólaárin 2024-2025 og 2025-2026, 3. tl., greiningu á tölfræði grunnskóla, 4. tl., opnunartíma frístundaheimila grunnskóla, og 5. tl., kynningu og samtal við stjórnendur Alþjóðaskólans.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 4. tl., opnunartíma frístundaheimila grunnskóla.

Fundargerðin lögð fram..

Málsnúmer 2401043F

06

Fundargerð ungmennaráðs frá 16/1 ´24.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi ábendingar varðandi bættar almenningssamgöngur og áform um fleiri sameiginlega viðburði í félagsmiðstöðvum í Garðabæ.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi ábendingar varðandi bættar almenningssamgöngur.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2402008F

07

Fundargerð ungmennaráðs frá 6/2 ´24.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi undirbúning fyrir fund ungmennaráðs með bæjarstjórn í mars.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi almennt um störf ungmennaráðs.

Björg Fenger, ræddi almennt um störf ungmennaráðs.

Almar Guðmundsson, ræddi undirbúning fyrir fund ungmennaráðs með bæjarstjórn.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401018F

08

Fundargerð velferðarráðs frá 17/1 ´24.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023 - 2026.

Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 5. tl., jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023 - 2026.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401607

09

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 22/1 ´24.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401136

10

Fundargerð stjórnar SSH frá 5/2 ´24.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401133

11

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 6/2 ´24.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., málefni grenndarstöðva og öflun orku með brennanlegu sorpi.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., málefni endurvinnslustöðva og framtíðarskipulag.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2401134

12

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 16/1 og 19/1 ´24.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi útboð á akstri Strætó.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2402166

13

Reglur vegna úthlutunar styrkja til menningarmála

Til afgreiðslu eru reglur vegna úthlutunar styrkja til menningarmála samkvæmt tillögu menningar- og safnanefndar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur vegna úthlutunar styrkja til menningarmála.