Beint í efni

Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu

Málsnúmer 2401390

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

15 (22-26). fundur

Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu í samræmi við 11. gr. laga um landgræðslu. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja sjálfbæra landnýtingu í samræmi við markmið laga um landgræðslu. Umhverfisnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við drögin.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Í tilkynningunni er vakin athygli á að drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 14. febrúar 2024. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja sjálfbæra landnýtingu í samræmi við markmið laga um landgræðslu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við drögin enda fjalla þau mest um landnýtingu vegna landbúnaðarstarfsemi, m.a. beitarnýtingu á afrétti sem hefur verið aflögð innan lögsögu Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

4. (2105). fundur

Í tilkynningunni er vakin athygli á að drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 14. febrúar 2024. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja sjálfbæra landnýtingu í samræmi við markmið laga um landgræðslu.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.