Beint í efni

15 (22-26). fundur

14.02.2024
Umhverfisnefnd Garðabæjar

15 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

14.02.2024

Kl. 8:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Sófus Gústavsson - varamaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
  • Einar Þór Einarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2203422

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi

Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf. kemur og heldur kynningu.

Þráinn Hauksson hjá Landslagi kynnti fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til 4.kafla greinargerðar sem tekur á stígakerfi og almenningssamgöngum.

Málsnúmer 2310233

02

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2023

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti helstu niðurstöður Gallup þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2023.

Málsnúmer 2401390

03

Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu

Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu í samræmi við 11. gr. laga um landgræðslu. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja sjálfbæra landnýtingu í samræmi við markmið laga um landgræðslu. Umhverfisnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við drögin.

Málsnúmer 2401467

04

Úrsögn Reykjavíkurborgar úr Reykjanesfólkvangi

Lögð fram tillaga Reykjavíkurborgar um úrsögn úr Reykjanesfólkvangi.

Málsnúmer 1902106

05

Friðlýsingar - samstarf við Umhverfisstofnun

Friðlýsing Urriðakotsshrauns

Urriðakotshraun var friðlýst sem fólkvangur 10. janúar 2024. Friðlýsingin er staðfest að beiðni Garðabæjar og landeigendanna, Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa, og unnin í samstarfi ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar. Friðlýsingu sem fólkvangs er ætlað að tryggja aðgengi almennings að náttúru Urriðakotshrauns, sem býr yfir fjölbreyttum náttúru- og menningarminjum og miklum möguleikum til útivistar, náttúruskoðunar og umhverfisfræðslu, m.a. um göngu- og reiðstíga sem liggja um svæðið. Samhliða vinnu við friðlýsingu var unnið deiliskipulag fyrir svæðið sem nú hefur verið staðfest og auglýst af Skipulagsstofnun.

Málsnúmer 2402172

06

Hreinsunarátak og vorhreinsun lóða 2024

Hreinsunarátak og vorhreinsun lóða 2024 rædd. Hreinsunarátak verður með sama sniði og síðustu ár og mun fara fram dagana 22. apríl - 6. maí. Unnið er að breyttri útfærslu Vorhreinsun lóða þar sem íbúum mun gefast kostur á að losa garðaúrgang í gáma sem verða aðgengilegir í nærumhverfi inni í hverfum. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að breytt útfærsla vorhreinsun lóða verði kynnt vel fyrir íbúum bæjarins.