Beint í efni

Friðlýsingar - samstarf við Umhverfisstofnun

Málsnúmer 1902106

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

15 (22-26). fundur

Friðlýsing Urriðakotsshrauns

Urriðakotshraun var friðlýst sem fólkvangur 10. janúar 2024. Friðlýsingin er staðfest að beiðni Garðabæjar og landeigendanna, Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa, og unnin í samstarfi ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar. Friðlýsingu sem fólkvangs er ætlað að tryggja aðgengi almennings að náttúru Urriðakotshrauns, sem býr yfir fjölbreyttum náttúru- og menningarminjum og miklum möguleikum til útivistar, náttúruskoðunar og umhverfisfræðslu, m.a. um göngu- og reiðstíga sem liggja um svæðið. Samhliða vinnu við friðlýsingu var unnið deiliskipulag fyrir svæðið sem nú hefur verið staðfest og auglýst af Skipulagsstofnun.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Skipulagsnefnd telur ástæðu til að lýsa ánægju með samþykkt bæjarstjórnar um friðlýsingu Bessastaðanes sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 15. júní 2023. Í bókun bæjarstjórnar kemur fram að samþykktin er í samræmi við 49. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Friðlýsingarskilmálar hafa verið unnir á vegum Umhverfisstofnunar í samstarfi við embætti forseta Íslands, Garðabæ, forsætisráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Minjastofnun Íslands.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

10 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að friðlýsingu Bessastaðaness.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (924). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

9. (924). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að friðlýsingu Bessastaðaness í samræmi við 49. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Friðlýsingarskilmálar hafa verið unnir á vegum Umhverfisstofnunar í samstarfi við embætti forseta Íslands, Garðabæ, forsætisráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Minjastofnun Íslands.

Bæjarráð Garðabæjar

06

23. (2076). fundur

Í erindinu kemur fram að tillaga að friðlýsingu Bessastaðaness sem unnið var að í samráði við Garðabæ hafi verið vísað til staðfestingar ráðherra í janúar 2022.

Bæjarráð vísar skilmálum um friðlýsingu Bessastaðaness til afgreiðslu bæjarstjórnar og til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

07

35. fundur

Athugasemdir við friðlýsingu Skerjafjarðar lagðar fram. Umhverfisstofnun ásamt samráðshópi vinnur að svörum athugasemda.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

08

32. fundur

Tillaga að endurskoðaðri friðlýsingu og stækkun fólkvangs í Garðahrauni
efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum lögð fram til kynningar
Samstarfshópur skipaður fulltrúum Umhverfisstofnunar, Garðabæjar, Styrktar- og
líknarsjóð Oddfellowa, umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Minjastofnunar Íslands hefur unnið tillögu að endurskoðaðri friðlýsingu og stækkun fólkvangs í Garðahrauni efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum, sbr. 52. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Tillagan er nú lögð fram til kynningar í samræmi við 39. gr. sömu laga.
Tillöguna að friðlýsingarskilmálum fyrir fólkvanginn ásamt korti af tillögu stækkunar er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar á slóðinni:
https://ust.is/nattura/fridlysingar/fridlysingar-i-kynningu/
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með fimmtudeginum 24. júlí 2021.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

09

32. fundur

Áform að friðlýsingarsvæði kynnt, en kynningarferli er lokið og unnið er úr athugasemdum sem bárust. Drög af friðlýsingarskilmálum lögð fram.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

10

32. fundur

Kort sem sýnir mörk fyrirhugaðs friðland á Bessastaðanesi lagt fram sem fylgja mun áformum af friðlýsingu. Heimilt er að minnka (ekki stækka) og breyta mörkum í undirbúningsvinnu friðlýsingarinnar.
Hluti landsins er í eigu Garðabæjar, lóð nr. 123318 Búðarflöt. Umhverfisnefnd samþykkir fyrirhugað kort.

Bæjarráð Garðabæjar

11

19. (1977). fundur

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Guðbjörgu Brá Gísladóttur, deildarstjóra umhverfis og framkvæmda sem fulltrúa Garðabæjar í samstarfshóp til að vinna að undirbúningi friðlýsingar Bessastaðaness.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

7. (885). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

7. (885). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

14

15. (1973). fundur

Í bréfinu eru kynnt áform um friðlýsingu Skerjafjarðar við Álftanes sem friðland og er frestur til að skila athugasemdum við áformin til og með 21. maí 2021.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

15

15. (1973). fundur

Tillagan er unnin af samstarfshópi sem skipaður er fulltrúm Umhverfisstofnunar, Garðabæjar, Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa,umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Minjastofnunar Íslands.

Tillagan er lögð fram í samræmi við 39. gr. laga 60/2013 um náttúruvernd og er frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með fimmtudeginum 24. júlí 2021.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

16

31. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir kynnti tillögu Umhverfisstofnunar af áformum á friðlýsingu strandlengju Álftanes. Umhverfisnefnd samþykkir tillöguna.

Linda Björk Jóhannsdóttir kynnti umsagnir af áformum og viðbrögð Umhverfisstofnunar af friðlýsingu Garðahrauns og tillögu að friðlýsingarskilmálum. Umhverfisnefnd samþykkir tillögu að friðlýsingarskilmálum.

Bæjarráð Garðabæjar

17

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Guðbjörgu Brá Gísladóttur, deildarstjóra umhverfis og framkvæmda sem fulltrúa Garðabæjar í samstarfshóp sem vinna mun að undirbúningi friðlýsingar strandlengju Álftaness.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

18

28. fundur

Umhverfisnefnd samþykkir kort umhverfisstofnunar er varða nýtt svæði til friðlýsingar í Vatnsmýrar og Garðahrauni efra.

Bæjarstjórn Garðabæjar

19

13. (872). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að leita eftir því við Umhverfisstofnun að strandlengjan á Álftanesi og Garðahraun efra, það sem ekki er nú þegar friðlýst, fari í friðlýsingarferli. (Mál nr. 1902106)

Bæjarráð Garðabæjar

20

36. (1944). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu umhverfisnefndar um að leita eftir því við Umhverfisstofnun að strandlengja á Álftanesi og Garðahraun efra, það sem ekki er nú þegar friðlýst, fari í friðlýsingarferli.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

21

25. fundur

Umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við bæjaráð að óskað verði eftir við Umhverfisstofnun að strandlengja á Álftanesi og Garðahraun efra, það sem ekki er nú þegar friðlýst, fari í friðlýsingarferli.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

22

23. fundur

Lögð fram umsögn Umhverfisstofnunar um áhrif lagningar golfbrauta í Urriðakotshrauni. Umsögn vísað til úrvinnslu í samráðsteymi um friðlýsingar í Garðabæ.

Bæjarráð Garðabæjar

23

21. (1929). fundur

Lögð fram.
Bæjarráð vísar umsögn Umhverfisstofnunar til umfjöllunar í umhverfisnefnd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

24

6. fundur

Lögð fram umsögn Umhverfisstofnunar um áhrif lagningar golfbrauta í Urriðakotshrauni. Umsögn vísað til úrvinnslu í samráðsteymi um friðlýsingar í Garðabæ.

Bæjarráð Garðabæjar

25

14.(1923). fundur

Lögð fram til kynningar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

26

4. fundur

Lögð fram skýrsla sem Alta ehf hefur unnið fyrir hönd Styrktar-og líknarsjóðs Oddfellowa um árhrif golfbrauta í Urriðavatnsdölum og í fyrirhuguðum fólkvangi í Urriðakotshrauni. Lögð fram bókun umhverfisnefndar um skýrsluna.
Skipulagsnefnd tekur undir bókun umhverfisnefndar.
Tillögu vísað til umsagnar hjá Umhverfisstofnun og hjá samráðsteymi um friðlýsingar í Garðabæ.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

27

21. fundur

Halldóra Hreggviðsdóttir og Hildur Kristjánsdóttir frá Alta ásamt Hlöðveri Kjartanssyni fulltrúa frá StLO kynntu greinagerð sem unnin hefur verið vegna skipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Umhverfisnefnd ítrekar fyrri áherslur sínar um öryggi, fjölbreytta útivist og verndargildi svæðisins

Umhverfisnefnd Garðabæjar

28

20. fundur

Linda Björk Jóhannsdóttir kynnti fyrir nefndinni stöðu friðlýsinga sem eru í vinnslu í samstarfi við Umhverfisstofnun.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

29

20. fundur

Lagt fram. Umhverfisnefnd fagnar stöðu málsins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

30

5. (1914). fundur

Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar varðandi auglýsingu sem birt hefur verið um tillögu að uppfærðum friðlýsingaskilmálum og breyttum mörkum fólkvangsins Hliðs í Garðabæ. Í auglýsingunni kemur fram að frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 30. apríl 2020.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

31

10. fundur

Halldóra Hreggviðsdóttir og Þóra Kjarval frá Alta og Hlöðver Kjartansson lögræðilegur ráðgjafi landnýtingarnefndar styrktar- og lýknarsjóðs Oddfellowa kynntu tillögur að nýtingu og friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvang. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að fyrirhugaður fólkvangur nýtist öllum og að ekki verði óafturkræft rask á svæðinu.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

32

9. fundur

Minnisblað um samstarf Garðabæjar og Umhverfisstofnunar vegna áformaðra friðlýsinga lagt fram.