32. fundur
32. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
02.06.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2105560
01
Mótun loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið
Jón Kjartan Ágústsson svæðisstjóri höfuðborgarsvæðisins kynnti skýrslu sem birtir kolefnisspor höfuðborgarsvæðisins 2019 sem unnin var af
Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. (Environice) fyrir Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu ásamt minnisblaði um næsta hluta verkefnisins, sem er að leita ráðgjafar fyrir mótun markmiða og aðgerða um samdrátt og vinna drög að loftlagsáætlun.
Málsnúmer 2104194
02
Tillaga frá Garðabæjarlistanum - Hringtorg við Bjarnastaði
Garðabæjarlistinn lagði fram tillögu um að setja blómaker á miðeyju torgsins þar sem flestir virða ekki reglur hringtorgs og keyra bara beint yfir miðju þess.
Þar sem fyrirspurnin inniheldur ekki tölur eða gögn um tíðni yfirkeyrslna og hvort um sé að ræða stærri farartæki eða öll farartæki, er erfitt að leggja nákvæmt mat á það hversu stórt vandamálið er. Hringtorgið er engu að síður svokallað míní hringtorg og sökum smæðar er gert ráð fyrir að miðeyjan sé að hluta til eða alfarið yfirkeyranleg fyrir stærri farartæki. Kjöraðstæður fyrir míní hringtorg er við umferðarlitlar götur þar sem hámarkshraði er 30 km/klst eða lægri. Aðstæðurnar á Álftanesi teljast því kjöraðstæður nema að því leitinu til að það eru fimm armar í hringtorginu sem gerir að verkum að hreyfingin frá Bakkavegi að Bjarnastaðavör er illmöguleg fyrir stærri farartæki nema að keyra yfir miðeyju hringtorgsins. Ennfremur er gert ráð fyrir að aðkoma slökkvibíla í forgangsakstri inn í Sveinskotsvör sé yfir miðeyjuna.
Umferðarverkfræðingur sem samráð var haft við lagði til að byrjað verði á að mála brotalínur og pílur á hringtorgið til að skerpa á virkni hringtorgsins og sjá hvort það bætir hegðunina í torginu.
Málsnúmer 1902106
03
Friðlýsingar - Skerjafjörður við Álftanes
Áform að friðlýsingarsvæði kynnt, en kynningarferli er lokið og unnið er úr athugasemdum sem bárust. Drög af friðlýsingarskilmálum lögð fram.
Málsnúmer 1902106
04
Friðlýsingar - Fólkvangur í Garðahrauni efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum
Tillaga að endurskoðaðri friðlýsingu og stækkun fólkvangs í Garðahrauni
efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum lögð fram til kynningar
Samstarfshópur skipaður fulltrúum Umhverfisstofnunar, Garðabæjar, Styrktar- og
líknarsjóð Oddfellowa, umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Minjastofnunar Íslands hefur unnið tillögu að endurskoðaðri friðlýsingu og stækkun fólkvangs í Garðahrauni efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum, sbr. 52. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Tillagan er nú lögð fram til kynningar í samræmi við 39. gr. sömu laga.
Tillöguna að friðlýsingarskilmálum fyrir fólkvanginn ásamt korti af tillögu stækkunar er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar á slóðinni:
https://ust.is/nattura/fridlysingar/fridlysingar-i-kynningu/
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með fimmtudeginum 24. júlí 2021.
Málsnúmer 1902106
05
Friðlýsingar - Bessastaðanes
Kort sem sýnir mörk fyrirhugaðs friðland á Bessastaðanesi lagt fram sem fylgja mun áformum af friðlýsingu. Heimilt er að minnka (ekki stækka) og breyta mörkum í undirbúningsvinnu friðlýsingarinnar.
Hluti landsins er í eigu Garðabæjar, lóð nr. 123318 Búðarflöt. Umhverfisnefnd samþykkir fyrirhugað kort.
Málsnúmer 2105148
06
Landgræðsluáætlun 2021-2031
Lagt fram.
Málsnúmer 2105738
07
Umburðarbréf vegna breytinga á jarðalögum nr. 81/2004
Lagt fram.
Málsnúmer 2105106
08
Urriðavatn veiðileyfi
Þó Urriðavatn sé lítið um sig og grunnt, vatnsdýpið nær hvergi einum metra, er vatnið mjög gróskumikið og lífríkt
og með mikinn einstaklings- og tegundafjölda dýra á íslenskan mælikvarða. Urriðavatn er sérstakt á lands- og
heimsvísu því um hraunstíflað lindarvatn er að ræða á vatnasviði með hrauni frá nútíma.
Í Urriðavatni eru tvær fisktegundir, urriði og hornsíli. Þar sem mikið vistfræðilegt samspil er á milli þessara tveggja fisktegunda í vatninu munu allar breytingar sem hafa áhrif á aðra þeirra óhjákvæmilega hafa áhrif á hina. Búsvæði og vistsamfélag Urriðavatns veitir urriðanum og hornsílunum sérstöðu og eykur verndargildi þeirra. Með aukinni byggð fylgir aukin umferð og eykst álag á vistkerfi Urriðavatns.
Ástand urriðastofnsins í Urriðavatni er talið gott en stofninn er mjög viðkvæmur fyrir veiði þar sem nýliðun urriðans er takmörkuð í vatninu og er því öll veiði bönnuð í Urriðavatni. Umhverfisnefnd áréttar þetta.
Málsnúmer 2105152
09
Ákall til sveitarfélaga um að taka Bonn áskoruninni
Umhverfisnefnd tekur vel í erindi Landgræðslunnar, ef landsvæði er fyrir hendi.
Málsnúmer 2105597
10
Mengunarmælingar 2021
Lagt fram.
Málsnúmer 1906351
11
Mávar
Í undirbúningi er að óska eftir undanþágu á friðlýsingarskilmálum í Gálgahrauni á aðgerðum vegna fjölgun máva til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.