Urriðavatn veiðileyfi
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
32. fundur
Þó Urriðavatn sé lítið um sig og grunnt, vatnsdýpið nær hvergi einum metra, er vatnið mjög gróskumikið og lífríkt
og með mikinn einstaklings- og tegundafjölda dýra á íslenskan mælikvarða. Urriðavatn er sérstakt á lands- og
heimsvísu því um hraunstíflað lindarvatn er að ræða á vatnasviði með hrauni frá nútíma.
Í Urriðavatni eru tvær fisktegundir, urriði og hornsíli. Þar sem mikið vistfræðilegt samspil er á milli þessara tveggja fisktegunda í vatninu munu allar breytingar sem hafa áhrif á aðra þeirra óhjákvæmilega hafa áhrif á hina. Búsvæði og vistsamfélag Urriðavatns veitir urriðanum og hornsílunum sérstöðu og eykur verndargildi þeirra. Með aukinni byggð fylgir aukin umferð og eykst álag á vistkerfi Urriðavatns.
Ástand urriðastofnsins í Urriðavatni er talið gott en stofninn er mjög viðkvæmur fyrir veiði þar sem nýliðun urriðans er takmörkuð í vatninu og er því öll veiði bönnuð í Urriðavatni. Umhverfisnefnd áréttar þetta.
Bæjarráð Garðabæjar
02
17. (1975). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umhverfisnefndar.