Tillaga frá Garðabæjarlistanum - Hringtorg við Bjarnastaði
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
32. fundur
Garðabæjarlistinn lagði fram tillögu um að setja blómaker á miðeyju torgsins þar sem flestir virða ekki reglur hringtorgs og keyra bara beint yfir miðju þess.
Þar sem fyrirspurnin inniheldur ekki tölur eða gögn um tíðni yfirkeyrslna og hvort um sé að ræða stærri farartæki eða öll farartæki, er erfitt að leggja nákvæmt mat á það hversu stórt vandamálið er. Hringtorgið er engu að síður svokallað míní hringtorg og sökum smæðar er gert ráð fyrir að miðeyjan sé að hluta til eða alfarið yfirkeyranleg fyrir stærri farartæki. Kjöraðstæður fyrir míní hringtorg er við umferðarlitlar götur þar sem hámarkshraði er 30 km/klst eða lægri. Aðstæðurnar á Álftanesi teljast því kjöraðstæður nema að því leitinu til að það eru fimm armar í hringtorginu sem gerir að verkum að hreyfingin frá Bakkavegi að Bjarnastaðavör er illmöguleg fyrir stærri farartæki nema að keyra yfir miðeyju hringtorgsins. Ennfremur er gert ráð fyrir að aðkoma slökkvibíla í forgangsakstri inn í Sveinskotsvör sé yfir miðeyjuna.
Umferðarverkfræðingur sem samráð var haft við lagði til að byrjað verði á að mála brotalínur og pílur á hringtorgið til að skerpa á virkni hringtorgsins og sjá hvort það bætir hegðunina í torginu.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
31. fundur
Nýlegt hringtorg við Bjarnastaði á Álftanesi virkar ekki sem skildi þar sem flestir virða ekki reglur hringtorgs og sleppa því að fara hring um torgið eða keyra beint yfir miðju þess. Það er því tillaga okkar að komið verði fyrir blómakeri á miðju torginu svo torgið þjóni sínum tilgangi.
Málinu vísað til skoðunar hjá Tækni- og umhverfissviði