10. fundur
10. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.03.2019
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Friðlýsingar - samstarf við Umhverfisstofnun
Halldóra Hreggviðsdóttir og Þóra Kjarval frá Alta og Hlöðver Kjartansson lögræðilegur ráðgjafi landnýtingarnefndar styrktar- og lýknarsjóðs Oddfellowa kynntu tillögur að nýtingu og friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvang. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að fyrirhugaður fólkvangur nýtist öllum og að ekki verði óafturkræft rask á svæðinu.
02
Húsasorpsrannsókn orkutunna og gámur66 2018
Bjarni Gnýr Hjarðar frá Sorpu kynnti húsasorprannsókn orkutunnu og gáms66 2018.
Fylgiskjöl
03
Endurheimt votlendis á Álftanesi
Ábending sem barst við gerð fjárhagsáætlunar varðandi votlendi við Kasthúsatjörn. Landið sem ekki er búið að endurheimta við Kasthúsatjörn er í einkaeigu.
Fylgiskjöl
04
Endurskipulagning öryggis- og upplýsingamála í Heiðmörk.
Umhverfisnefnd samþykkir að fara í þetta verkefni og óskar eftir því að fá verkáætlun fyrir framkvæmdina. Verkefnið þarf að rúmast innan fjárhagsáætlunar.
05
Spillivagninn
Umhverfisnefnd tekur jákvætt í verkefnið og felur umhverfis- og tæknisviði að kanna kostnað og útfærslu.
06
Fræðslu- og sögugöngur 2019
Farið var yfir hvernig fræðslu- og sögugöngur undanfarinna ára hafa verið í samstarfi menningar- og sagnanefndar, umhverisnefndar og Bókasafns Garðabæjar. Einnig hafa göngurnar verið tengdar lýðheilsu verkefni og göngum Ferðafélags Ísland síðustu tvö ár í september mánuði. Ræddar voru fyrstu hugmyndir af göngum og dagsetningum í vor og haust.
07
Fundargerðir 2018 - 2022 - Reykjanesfólkvangur
08
Tillaga um innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Farið yfir ákvörðun bæjarstjórnar um að Garðabær muni hefja innleiðingu á heimsmarkmiðum.
Fylgiskjöl
09
Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2019
10
Tillaga frá Garðabæjarlistanum um endurbættan strandstíg á sunnanverðu Álftanesi
Umhverfisnefnd tekur jákvætt í tillögu Garðabæjarlistans um að strandstígurinn á sunnanverðu Álftanesi verði gerður þannig að hann henti fyrir bæði gangandi og ríðandi umferð og vísar málinu á umhverfis- og tæknisviðs.