Fræðslu- og sögugöngur 2019
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Lýðheilsugöngur í september kynntar.
Þriðja árið í röð tekur Garðabær þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Um leið er þetta áframhald sögu- og fræðslugangna sem menningar- og safnanefnd hefur staðið að í samstarfi við umhverfisnefnd og fleiri. Fyrsta gangan var farin miðvikudaginn 4. september sl. og greint var frá næstu göngum sem verða 11., 18. og 25. september nk.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Sagt frá næstu göngu á Degi umhverfisins 25. apríl.
Greint var frá fyrstu sögugöngu vorsins sem verður farin á Degi umhverfisins fimmtudaginn 25. apríl nk. sem í ár ber upp á Sumardaginn fyrsta. Gangan hefst kl. 11 þegar gengið verður umhverfis Urriðavatn undir leiðsögn Erlu Biljar Bjarnardóttur fyrrum umhverfisstjóra.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Farið var yfir hvernig fræðslu- og sögugöngur undanfarinna ára hafa verið í samstarfi menningar- og sagnanefndar, umhverisnefndar og Bókasafns Garðabæjar. Einnig hafa göngurnar verið tengdar lýðheilsu verkefni og göngum Ferðafélags Ísland síðustu tvö ár í september mánuði. Ræddar voru fyrstu hugmyndir af göngum og dagsetningum í vor og haust.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
8. fundur
Farið yfir hvernig fræðslu- og sögugöngur undanfarinna ára hafa verið og rætt um framhald á þessu ári.
Farið var yfir hvernig fræðslu- og sögugöngur undanfarinna ára hafa verið í samstarfi menningar- og safnanefndar, umhverfisnefndar og Bókasafns Garðabæjar. Einnig hafa göngurnar verið tengdar lýðheilsuverkefni og göngum Ferðafélags Íslands síðustu tvö ár í september mánuði.
Ræddar voru fyrstu hugmyndir að göngum og dagsetningum í vor og haust. Umræður voru um skilti og merkingar á gönguleiðum.