Beint í efni

14.(1923). fundur

07.04.2020
Bæjarráð Garðabæjar

14.(1923). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020.

07.04.2020

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID19 - neyðarstig almannavarna.

Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi áhrif af Covid19 og greindi frá að samkomubann hefur verið framlengt til 4. maí nk. Bæjarstjóri sagði frá að verið er að fara yfir tillögur sviðstjóra um hagræðingu í rekstri til að mæta samdrætti í tekjum. Fram kom að gert er ráð fyrir að næstu tvær til þrjár vikur geti verið mjög erfiðar og það geti reynt á þolmörk á ýmsum sviðum. Í því sambandi þurfum við að skoða vel starfsemina á fjölskyldusviði, stöðuna í skólunum, sorphirðumál og starfsmannamál. Gerður hefur verið listi yfir starfsmenn Garðabæjar sem mögulega er hægt flytja milli starfa til að mæta veikindum eða sinna nauðsynlegum verkefnum. Bæjarstjóri sagði einnig frá samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu við úrlausn margra verkefna. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er að undirbúa að eiga samtal við ríkið um hvernig stutt verður við starfsemi sveitarfélaganna.

Sviðsstjórar fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.

Félagsmálastjóri sagði frá því að verið er að hringja í eldri borgara og í forgangi eru þeir sem búa einir. Heimaþjónustan sinnir reglulega þjónustu við um 280 heimili en um 50 heimili hafa afpantað heimaþjónustu. Í undirbúningi er að gera það aðgengilegt á vef Garðabæjar að tilkynna brot og vanrækslu gagnvart börnum. Bæjarverkfræðingur sagði frá því að starfsemi sviðsins gangi almennt vel og nefndi í því sambandi vetrarþjónustu, starfsemi veitna og sorphirðu. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir stöðu mála og sagði að starfsemin gangi vel miðað við aðstæður. Á ákveðnum stöðum hefur þurft að endurskipuleggja starfsemina m.t.t. aðstæðna s.s. veikinda o.fl. Fram kom að sálfræðingar sem starfa hjá bænum hafa boðið starfsmönnum skólanna aðstoð við þessar erfiðu aðstæður. Ákveðin óvissa er hvernig ástandið verður eftir páska.

Lagt fram yfirlit framkvæmdastjóra almannavarna um verkefni og útgáfu á leiðbeiningum til 27. mars sl.

Bæjarstjóri sagði frá því að farið er að huga að endurreisnarstarfi sem felst í að fara vel yfir hvernig við komum starfseminni í gang að nýju eftir þungt högg og er í undirbúningi hjá almannavörnum að útbúa gátlista fyrir sveitarfélögin til leiðbeiningar.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Ingvar Arnarson, Harpa Þorsteinsdóttir og Jóna Sæmundsdóttir, voru á fundi bæjarráð undir þessum dagskrárlið og þá voru einnig á fundinum undir þessum dagskrárlið fulltrúar í neyðarstjórn Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003362

02

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili, dags. 30.03.20.

Í bréfinu er kynnt aðgerðaráætlun fyrir sveitarfélög til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili en um er að ræða aðgerðir vegna eftirfarandi þátta.

Fasteignagjöld og gjaldskrár.

Framkvæmdir.

Atvinnuátaksverkefni og vinnumarkaður.

Markaðsátak í ferðaþjónustu.

Laga og reglugerðarbreytingar og skattheimtu.

Umræða var um aðkomu ríkisins varðandi stuðning við sveitarfélögin í þátttöku þeirra í viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2004031

03

Bréf ÍSÍ varðandi áhrif Covid19 á íþróttahreyfinguna, dags. 01.04.20.

Í bréfinu er beint hvatningu til sveitarfélaga sem bakhjarls íþrótta- og ungmennahreyfinga að eiga samtal við sín félög og styðja þau í gegnum erfiða tíma sem geta verið framundan við að hefja íþróttastarf að nýju.

Bæjarstjóri sagði frá beiðnum íþróttafélaga um að fá greiðslur fyrr innan ársins í samræmi við gildandi samninga.

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001499

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfi) vegna lóðarinnar við Eikarás 10.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Eikarás 10. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1902106

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulag útivistarsvæðis í<br/><br/>Urriðavatnsdölum sem fólkvangs.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 1804367

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 - Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til þróunarsvæðis B, rammahluti aðalskipulags og til Vífilsstaðahrauns (Svínahrauns). Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.

Tillagan skal liggja frammi hjá Skipulagsstofnun og bæjarskrifstofunum. Tillagan skal auglýst á vef Garðabæjar og þar skal koma fram að hægt er að gera athugasemdir við tillöguna innan ákveðins frests.

Málsnúmer 1910311

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla, samkvæmt 1. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 3. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan skal send til meðferðar Skipulagsstofnunar en engar athugasemdir bárust við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Samþykkt tillaga skal send til afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs þar sem um er að ræða sameiginlegt skipulag Kópavogs og Garðabæjar fyrir Kjóavelli.

Málsnúmer 2001464

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Bæjargils vegna atvinnuhúsalóðar við Gilsbúð.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjargils sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits og stækkun lóðar við Gilsbúð 9 verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi eða annan fullnægjandi hátt, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1912107

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 8.

Lögð fram.

Málsnúmer 2001465

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir breytingu á landnotkun óbyggðra lóða við Bergás og Brekkuás verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi eða annan fullnægjandi hátt sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Við Bergás er gert ráð fyrir að lóð fyrir hverfismiðstöð verði breytt og stækkuð í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Við Brekkuás er gert ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla verði breytt í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk og í opið svæði fyrir leikvöll.

Málsnúmer 2003384

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits á lóðinni við Aratún 36, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum Aratúns 19, 21, 23, 34, 38.

Málsnúmer 2004036

12

Áskorun Samtaka um betri byggð (BB) til borgaryfirvalda í Reykjavík frá 28. febrúar 2020.

Málsnúmer 2003455

13

Ályktun frá Landsambandi eldri borgara, dags. 25.03.20.

Lögð fram og vísað til umfjöllunar í öldungaráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003486

14

Bréf Matvælastofnunar varðandi veirusjúkdóm í kanínum, dags. 26.03.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003281

15

Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Eskiási.

Eftirfarandi tilboð bárust.

Hnit hf. kr. 7.440.000

VSÓ Ráðgjöf ehf. kr. 9.757.000

VSB verkfræðistofa ehf. kr. 9.283.475

Verkís hf. kr. 8.906.300

Strendingur ehf. kr. 7.437.500

Efla hf. kr. 7.895.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Strendings ehf. með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2004033

16

Bréf rekstrarstjóra Garðaholts varðandi viðhald húsnæðis, dags. 01.04.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra í tengslum við tillögur um flýtingu viðhaldsverkefna samkvæmt aðgerðaráætlun í tengslum við áhrifa vegna Covid19.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003473

17

Tilkynning samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga, dags. 27.03.20.