Lóð fyrir búsetukjarna
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
4. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 2001465- lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Lagðar eru fram til kynningar hugmyndir að lóð fyrir nýja búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Garðabæ.
Fjölskylduráð fjallar um málið. Ráðið fagnar framkomnum hugmyndum um lóðir fyrir nýjan búsetukjarna og leggur áherslu á að málinu sé hraðað eins og kostur er.
Harpa Þorsteinsdóttir bókar eftirfarandi:
"Garðabæjarlistinn telur mjög mikilvægt að lagt verði mat á kosti og galla hönnunar búsetukjarnans við Unnargrund áður en farið er í framkvæmdir á nýjum búsetukjörnum. Þar með verði óskað eftir kostum og göllum frá íbúum og eða aðstandendum er varðar hönnun og skipulag íbúðakjarnans.
Uppbygging búsetu fyrir fatlað fólk er afar mikilvæg og því skiptir máli að hugað sé vel að notendaþörf og komið eins vel til móts við þarfir þessa hóps og mögulegt er með því að tryggja að þeirra rödd fái áheyrn.
Því til stuðning vísa ég í lög um þjónustu við fatlað fólk í 9. gr en þar segir: ,,Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu.?
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
7. (866). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir breytingum á landnotkun óbyggðra lóða við Bergás og Brekkuás verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi eða á annan fullnægjandi hátt sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Við Bergás er gert ráð fyrir að lóð fyrir hverfismiðstöð verði breytt og stækkuð í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Við Brekkuás er gert ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla verði breytt í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk og í opið svæði fyrir leikvöll.
Bæjarráð Garðabæjar
03
14.(1923). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir breytingu á landnotkun óbyggðra lóða við Bergás og Brekkuás verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi eða annan fullnægjandi hátt sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Við Bergás er gert ráð fyrir að lóð fyrir hverfismiðstöð verði breytt og stækkuð í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Við Brekkuás er gert ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla verði breytt í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk og í opið svæði fyrir leikvöll.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
4. fundur
Lagðar fram tillögur að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir tveimur staðsetningum fyrir búsetukjarna fyrir fatlaða við Brekkuás annarsvegar og Bergás hinsvegar.
Við Bergás gerir tillagan ráð fyrir því að lóð fyrir hverfismiðstöð við enda götunnar breytist í lóð fyrir samfélagsþjónustu þar sem reisa má einnar hæðar byggingu fyrir 6-7 íbúðum. Gert er ráð fyrir 11 bílastæðum á lóð, þar af 2 fyrir fatlaða.
Við Brekkuás breytist leikskólalóð í sömu not og við Bergás með sömu ákvæðum. Tillagan gerir ráð fyrir leiksvæði norðar á opna svæðinu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunum til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
05
6. (1915). fundur
Lagt fram minnisblað tækni-og umhverfissviðs þar sem gerð er grein fyrir fimm tillögum að 5 valkostum fyrir staðsetningu búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til kynningar í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Lagt fram minnisblað tækni-og umhverfissviðs þar sem stillt er upp 5 valkostum fyrir staðsetningu búsetukjarna fyrir hreyfihamlaða.
Skipulagsnefnd mælir með því að tillögur lóða í Ásahverfi, við Brekkuás annarsvegar og Bergás hinsvegar verið skoðaðar frekar.