Beint í efni

4. fundur

29.04.2020
Fjölskylduráð Garðabæjar

4. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

29.04.2020

Kl. -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2004101

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging húsaleigu

Lagt er fyrir mál nr. 2004101 umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.

Tekið er fyrir mál r. 2004101 umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 2001029

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Mál nr. 2001029 lagt fram, umsókn um námsstyrk vegna vorannar 2020.

Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 2001465

03

Lóð fyrir búsetukjarna

Tekið er fyrir mál nr. 2001465- lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Lagðar eru fram til kynningar hugmyndir að lóð fyrir nýja búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Garðabæ.

Fjölskylduráð fjallar um málið. Ráðið fagnar framkomnum hugmyndum um lóðir fyrir nýjan búsetukjarna og leggur áherslu á að málinu sé hraðað eins og kostur er.

Harpa Þorsteinsdóttir bókar eftirfarandi:

"Garðabæjarlistinn telur mjög mikilvægt að lagt verði mat á kosti og galla hönnunar búsetukjarnans við Unnargrund áður en farið er í framkvæmdir á nýjum búsetukjörnum. Þar með verði óskað eftir kostum og göllum frá íbúum og eða aðstandendum er varðar hönnun og skipulag íbúðakjarnans.

Uppbygging búsetu fyrir fatlað fólk er afar mikilvæg og því skiptir máli að hugað sé vel að notendaþörf og komið eins vel til móts við þarfir þessa hóps og mögulegt er með því að tryggja að þeirra rödd fái áheyrn.

Því til stuðning vísa ég í lög um þjónustu við fatlað fólk í 9. gr en þar segir: ,,Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu.?

Málsnúmer 2003108

04

Beiðni um endurúttekt á væntanlegri stuðningsfjölskyldu

Greinargerð barnaverndar Garðabæjar vegna endurúttektar á stuðningsfjölskyldu lögð fyrir fjölskylduráð.

Tekið er fyrir mál nr. 2003108 beiðni um endurúttekt í tengslum við endurnýjun stuðningsfjölskylduleyfis. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að mæla með endurnýjun leyfis. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.