4. fundur
4. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020
03.04.2020
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Lóð fyrir búsetukjarna
Lagðar fram tillögur að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir tveimur staðsetningum fyrir búsetukjarna fyrir fatlaða við Brekkuás annarsvegar og Bergás hinsvegar.
Við Bergás gerir tillagan ráð fyrir því að lóð fyrir hverfismiðstöð við enda götunnar breytist í lóð fyrir samfélagsþjónustu þar sem reisa má einnar hæðar byggingu fyrir 6-7 íbúðum. Gert er ráð fyrir 11 bílastæðum á lóð, þar af 2 fyrir fatlaða.
Við Brekkuás breytist leikskólalóð í sömu not og við Bergás með sömu ákvæðum. Tillagan gerir ráð fyrir leiksvæði norðar á opna svæðinu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunum til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
02
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.
Ráðgjafateymi Batterísins, Landslags og Eflu gerði grein fyrir tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B auk Vífilsstaðahrauns. Tillagan er sett fram sem rammahluti Aðalskipulags. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla. Forkynning hefur farið fram. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir ábendingum og sem hafa borist tækni-og umhverfissviði og samtali sem hefur átt sér stað síðan að forkynningu lauk.
Tillögunni hefur verið breytt talsvert frá auglýstri tillögu, m.a. hafa mörk á milli íþróttasvæðis (golfvallarsvæðis) og opins svæðis (Skógræktarsvæðis) verið dregin nákvæmar til að taka tillit til trjágróðurs í Smalaholti m.a. í trjásýnireit. Einnig hefur svæði sem skilgreint er sem kirkjugarður í Rjúpnadal verið minnkað umtalsvert.
Tillögunni vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.36.gr. og 31.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar.
03
Hnoðraholt norður deiliskipulag
Tillögu vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni og umhverfissviði.
04
Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar.
Tillögu vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni og umhverfissviði.Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun: "Fulltrúi minnihlutans gerir athugasemd við útfærslu bílageymslubygginga meðfram Reykjanesbraut eins og hún er sett fram í þeim tillögum af deiliskipulagi Vetrarmýrar sem kynntar hafa verið. Ef lóðarhafar kjósa að byggja bílageymslur í kjöllurum húsanna verður til afgangssvæði meðfram Reykjanesbraut sem vandséð hvernig verður nýtt. Ekki verður séð hvernig samspil við bílastæðaþörf íþróttamannvirkja og annarar starfsemi á svæðinu getur orðið."
05
Rjúpnadalur, dsk kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.
Tillögu vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni og umhverfissviði.
06
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 4. Stígakerfi í Upplandi
Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerðir grein fyrir vinnu við mótun tillögu að breytingum á stígakerfi í Urriðakots og Setbergslandi. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagslagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði og til kynningar í umhverfisnefnd.
07
Litlabæjarvör 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn um einbýlishús á lóðinni Litlabæjarvör 19 ásamt minnispuntum byggingarfulltrúa. Í deiliskipulagi er ekki kveðið á um það sérstaklega hvort þakskyggni getin náð út fyrir byggingarreit. Skipulagsnefnd er sammála um að túlka beri deiliskipulagsskilmála þannig að þakskyggni geti náð allt að 60 cm út fyrir byggingarreit.
08
Vesturtún 25 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits í átt að göngustíg. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
09
Eikarás 10 - dsk breyting, garðskáli
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfi) sem gerir ráð fyrir byggingareit fyrir garðskála að lokinni grenndarkynningu. Engar athugsemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt.
10
Aratún 36 - stækkun byggingarreits - Ósk um dsk breytingu
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun bygggingarreits bílageymslu um 1,5 m til norðurs.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Silfurtúns og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Aratúns 19, 21, 23, 34 og 38.
11
Hraunhólar 8, breyting á deiliskipulagi Hraunholts eystra
Lögð fram tillaga að skiptingu lóðarinnar í tvær einbýlishúsalóðir.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni að svo stöddu og vísar því til skipulagsstjóra að deiliskipulag við Hraunhóla verði skoðað heildstætt.
12
Smáraflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að hámarkslengd brunaveggs á lóðarmörkum sé 18 m í stað 7,5 m.
Skipulagsstjóri fór yfir byggingarleyfi sem veitt hafa verið undanfarna áratugi þar sem brunaveggur á lóðarmörkum er lengri en 7,5 m.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að svo langur veggur á lóðarmörkum sem brotinn upp og dregið úr einsleitni hans.
13
Gilsbúð 9, stækkun á lóð og byggingareit - breytt deiliskipulag Gilsbúðar 9
Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Bæjargils sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits og lóðar til norðurs fyrir atvinnuhúsnæði. Svæðið yrði þó innan athafnasvæðisins 3.20 At eins og það er skilgreint í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.SKipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
14
Austurhraun 5 - Stækkun byggingarreits
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að Austurhrauni 5.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
15
Kjóavellir-Garðabæjarhluti, dsk breytingar
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu að lokinni auglýsingu en athugsemdafresti lauk 30.mars.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar afgreiðslunni til bæjarstjórnar. Tillagan skal einnig send skipulagsráði/bæjarstjórn Kópavogsbæjar til afgreiðslu þar sem að um sameiginlegt deiliskipulag Garðabæjar og Kópavogs er að ræða.
16
Friðlýsingar - samstarf við Umhverfisstofnun
Lögð fram skýrsla sem Alta ehf hefur unnið fyrir hönd Styrktar-og líknarsjóðs Oddfellowa um árhrif golfbrauta í Urriðavatnsdölum og í fyrirhuguðum fólkvangi í Urriðakotshrauni. Lögð fram bókun umhverfisnefndar um skýrsluna.
Skipulagsnefnd tekur undir bókun umhverfisnefndar.
Tillögu vísað til umsagnar hjá Umhverfisstofnun og hjá samráðsteymi um friðlýsingar í Garðabæ.
18
Breyting á reglugerð um framkvæmdaleyfi í samráðsgátt
Lagt fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
19
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun - Breyting á aðalskipulagi - Fannborgarreitur - Traðarreitur-vestur. Vinnslutillaga
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Kynna þarf betur hvaða áhrif tillagan hefur á flæði umferðar og almenningssamgangna.
20
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 3
Lögð fram.
20.1 - 2003196 - Vesturtún 25 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Vesturtúns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðausturs um 11 m2. (1,5x 7,4) Fjarlægð byggingarreits frá lóðarmörkun er 3m en verður 1,5 m eftir breytingu.
Umsókninni er vísað til skipulagsnefndar.
20.2 - 2003435 - Norðurtún 23, hækkun þaks, dsk br
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa hvort heimilað verði að hækka rishæð húss um 70-80 cm. Samkvæmt skipulagsskilmálum er húsið að Norðurtún 23 að hluta til 2 hæðir. Þar sem umrætt ákvæði er til staðar fyrir þetta hús er það svar skipulagsstjóra að hækkun rishæðar sé í samræmi við skilmála Túnahverfis á Álftanesi.
20.3 - 2003218 - Heiðarlundur 18 - breyting - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar að Heiðarlundi 18. Allar stækkanir eru í innan byggingarreits eins og hann er settur fram á mæliblaði en hámarkshæð húss fer 20 cm yfir leyfilega hæð samkvæmt samþykktu deiliskipulagi.
Skipulagsstjóri mælir með því að beðið verði með veitingu byggingarleyfis þangað til að deiliskipulag hefur tekið gildi.
20.4 - 2002350 - Hvannakur 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn sem er ekki í samræmi við breytingu deiliskipulags sem grenndarkynnt var sl haust. Skipulagsstjóri bendir á að sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu að nýju sem verður lögð fyrir skipulagsnefnd.
20.5 - 1907083 - Víkurgata 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
20.6 - 2003254 - Fluguvellir 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina Fluguvellir 4 sem gerir ráð fyrir því að þakkvistir verði heimilaðir.
Skipulagstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Kjóavalla og vísar til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Fluguvelli 3 og 5 og Dreyravelli 3, 4 og 5.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
20.7 - 2001242 - Hraungata 44 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir Hraungötu 44 og 46 sem gerir ráð fyrir tæknirýmum í kjallara sem veldur því að hámarksbyggingarmagn eykst um 30 m2 fyrir hvort hús.
Þar sem að um gluggalaus tæknirými á neðri hæð eru að ræða eru grenndaráhrif rýmanna engin.
Skipulagsstjóri ekki ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.