Beint í efni

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Rjúpnadals, dags 25.02.21.

Málsnúmer 1910294

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

10. (1968). fundur

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn deiliskipulags Rjúpnadals og gerir ekki athugasemdir við að deiliskipulagið verði staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

17. (876). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Rjúpnadal samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi og umhverfisskýrslu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær."

Bæjarráð Garðabæjar

03

45. (1953). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Rjúpnadal samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi og umhverfisskýrslu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

12. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Rjúpnadals sem gerir ráð fyrir 3,8 ha kirkjugarði,1 ha minningargarði fyrir duftker,lóð fyrir þjónustuhús, lóð fyrir bálfararstofu og lóð fyrir meðferðarstofnun Barnaverndarstofu. Tillagan var í auglýsingu í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/201 frá 11.júní til og með 7.september 2020. Almennur kynningarfundur var haldinn 27.ágúst og var hann gagnvirkur fjarfundur á Facebook vegna samkomutakmarkana kórónufaraldursins. Samhliða var auglýst tillaga að umhverfisskýrslu samkvæmt 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem náði til Þróunarsvæðis B, Vífilsstaðalands.
Lagðar fram umsagnir og athugasemdir sem borist hafa.
Lagðar fram tillögur að svörum við innsendum athugasemdum og umsögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir eftirfarandi lagfæringar á auglýstri tillögu:
Götuheiti færð inn á uppdrátt í samræmi við samþykkt skipulagsnefndar þann 29.október síðastliðinn.
Dagsetningar uppfærðar.
Umsagnir og athugasemdir gefa ekki tilefni til frekari breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið með ofangreindum breytingum/lagfæringum í samræmi við 3.mgr.41.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 ásamt umhverfisskýrslu óbreytta í samræmi við lög um mat á umhverfisáætlunum áætlana nr.105/2006.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

11. fundur

Skipulagsráðgjafar og skipulagsstjóri kynntu hugmyndir að viðbrögðum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Vísað til frekari úrvinnslu. Lögð fram tillaga að götuheitum.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur skipulagsstjóra að götuheitum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Skipulagsráðgjafar Batterísins, Landslags og Eflu kynntu greiningu á athugasemdum og umsögnum og viðruðu hugmyndir um möguleg viðbrögð.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

9. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi kirkjugarðs og meðferðarstofnunar í Rjúpnadal, ásamt umhverfisskýrslu, að lokinni auglýsingu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

9. (868). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Rjúpnadal. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020. (Mál nr. 1910294)

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

9. (868). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

10

21. (1929). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Rjúpnadal. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

6. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Rjúpnadals. Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerið grein fyrir tillögunni. Tillagan gerir ráð fyrir grafreit (kirkjugarði)á 4 ha lands. Gert er ráð fyrir byggingareitum fyrir þjónusutbyggingar fyrir grafreitsstarfsemi. Auk þess er gert ráð fyrir lóð fyrir bálstofu og skógarduftreit sem tengjast henni. Sunnar grafreitsins er gert ráð fyrir lóð fyrir meðferðarstofnun.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Auglýsing skal birt um miðjan júni og standa til ágústloka þegar athugasemdafrestur rennur út.
Tillaga skal auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

5. fundur

Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir mótun tillögu að deiliskipulagi Rjúpnadals. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

4. fundur

Tillögu vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni og umhverfissviði.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

14

19. fundur

Skipulagsstjóri kynnir deiliskipulagstillögu kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

15

15. fundur

Lagt fram til kynningar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

16

17. (857). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag kirkjugarðs og meðferðarstofnunar í Rjúpnadal. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar og norðurhluta Hnoðraholts.

Bæjarráð Garðabæjar

17

44. (1905). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir kirkjugarðs og meðferðarstofnunar í Rjúpnadal. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar og norðurhluta Hnoðraholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

18

16. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi kirkjugarðs og meðferðarstofnunar í Rjúpnadal/Vífilsstaðaháls sem skipulagsteymi Batterísins, Landslags og Eflu hafa unnið að. Sigurður Einarsson gerði grein fyrir tillögunni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal forkynnt samhliða tillögum að deiliskipulagi, Vetrarmýrar og Hnoðraholts norður og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til Vífilsstaðalands. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur. Tillögunni vísað til kynningar og umfjöllunar í umhverfisnefnd og íþrótta-og tómstundaráði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

19

15. fundur

SIgurður Einarsson hjá skipulagsteymi Batterísins, Eflu og Landslags kynnti stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi Rjúpnadals.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.