Beint í efni

15. fundur

16.12.2019
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

15. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

16.12.2019

Kl. 16:30 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1804367

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 1906192

02

Hnoðraholt norður deiliskipulag

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 1910294

03

Rjúpnadalur, dsk kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 1910293

04

Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar.

ÍTG fagnar fram komnum deiliskipulagstillögum um íþróttasvæði í Vetrarmýri og leggur áherslu á að nægjanlegt rými verði fyrir framtíðar íþróttasvæði á svæðinu.

Málsnúmer 1903374

05

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

ÍTG fagnar áformum um framtíðarstaðsetningu golfvallar GÁ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Málsnúmer 1912174

06

Arna Sólrún Heimisdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Arna Sólrún Heimisdóttir kt. 1401022020 V/BLÍ U19 NEVZA mót U19 í Finnlandi, 25-27. október 2019

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Örnu Sólrúnar Heimisdóttur kt. 1401022020 V/BLÍ U19 NEVZA mót U19 í Finnlandi, 25-27. október 2019

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1912175

07

Arna Sólrún Heimisdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Arna Sólrún Heimisdóttir kt. 1401022020 ferðastyrkur v/ BLÍ U17, NEVZA mót U17 í Danmörku og Finnlandi 14.-17. október 2019

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Örnu Sólrúnar Heimisdóttur kt. 1401022020 V/BLÍ U19 NEVZA mót U19 í Danmörku , 14-17. október 2019.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1911259

08

Íþróttahátíð Garðabæjar vegna 2019

Umsagnir um fjóra karla og fjórar konur voru lagðar fram til kjörs um íþróttakarl og íþróttakonu Garðabæjar 2019. Almenningi er boðið að taka þátt í að kjósa á vef Garðabæjar yfir hátíðirnar. Kynning fer í Garðapóstinn og á vefsíðu bæjarins. Þeir karlar sem í kjöri verða eru: Aron Snær Júlíusson golfari GKG, Árni Rúnar Baldursson lyftingamaður Stjörnunni, Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður íþróttum fatlaðra og Ægir Þór Steinarsson körfuboltamaður Stjörnunni. Þær konur sem verða í kjöri til íþróttakonu Garðabæjar eru Birna Aradóttir lyftingakona Stjörnunni, Hulda Clara Gestsdóttir golfari GKG, Kolbrún Þöll Þorradóttir fimleikakona Stjörnunni og Þórhildur Gunnarsdóttir handknattleikskona Stjörnunni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1911304

09

Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.

ÍTG fagnar skipun starfshóps um stafræna þróun innan Garðabæjar enda þróun í þá átt búin að vera í gangi varðandi hvatapeninga, aðgangsstýringar í sundlaugar ofl.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1811205

10

Forvarnarmál í Garðabæ

Úthlutun forvarnarstyrkja haustið 2019

ÍTG samþykkir að greiða alls 900.000,- í styrki til grunnskóla bæjarins til að efla fræðslu til foreldra, kennara og nemenda í samræmi við forvarnarstefnu skólanna.

Samþykkt að halda opinn fræðslufund þann 21. janúar nk. um forvarnarmál tengd vímuefnum.