Beint í efni

Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar.

Málsnúmer 1910293

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Vetrarmýrar og uppfæra deiliskipulagsgögn í samræmi við þær. Deiliskipulagið var samþykkt í bæjarstjórn 19. nóvember 2020. (Mál nr. 1910293)

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (1968). fundur

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn vegna deiliskipulags Vetrarmýrar og gert athugasemdir í átta liðum.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar og uppfæra deiliskipulagsgögn í samræmi við þær.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

17. (876). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Vetrarmýri samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi og umhverfisskýrslu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu.

Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á auglýstri tillögu.
Skipulagssvæðið er minnkað "jarðbrú" yfir Reykjanesbraut verður hluti af deiliskipulagi fyrir Reykjanesbraut sem unnið verður síðar. Bætt er við texta í kafla 2.3 um þetta atriði.
Í kafla 2.3 umhverfi er bætt er við texta um sjálfbær byggingarefni.

Í kafla 2.7.5 Sorpgeymslur og sorpflokkun er bætt er við texta um aðstæður og möguleika á sorpflokkun í djúpgámum
Í kafla 3.2 er bætt er texta um hæðarkóta.
Bætt er við nýjum kafla 3.7 Blöndun byggðar.
Í kafla 3.8 Hönnun og uppdrættir er bætt við ákvæði um auglýsingaskilti.
Bætt er við nýjum kafla 3.10 Framkvæmdir.
Bætt er við nýjum kafla 4.19 Yfirlit bygginga á deiliskipulagssvæðinu.
Safnbraut við hlíðarfót Hnoðraholts er breytt í Sumarbraut sbr. samþykkt skipulagsnefndar 29. október 2020.

Á uppdrætti hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar.
Bætt hefur verið línu veghelgunarsvæðis Reykjanesbrautar.
Texta um hljóðvarnir er bætt við.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Með samþykkt deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulags Hnoðraholts-og Vetrarmýrar sem samþykkt var af Skipulagsstjóra ríkisins þann 17. apríl 1996."

Bæjarráð Garðabæjar

04

45. (1953). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Vetrarmýri samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi og umhverfisskýrslu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á auglýstri tillögu.
Skipulagssvæðið er minnkað "jarðbrú" yfir Reykjanesbraut verður hluti af deiliskipulagi fyrir Reykjanesbraut sem unnið verður síðar. Bætt er við texta í kafla 2.3 um þetta atriði.
Í kafla 2.3 umhverfi er bætt er við texta um sjálfbær byggingarefni.
Í kafla 2.7.5 Sorpgeymslur og sorpflokkun er bætt er við texta um aðstæður og möguleika á sorpflokkun í djúpgámum
Í kafla 3.2 er bætt er texta um hæðarkóta.
Bætt er við nýjum kafla 3.7 Blöndun byggðar.
Í kafla 3.8 Hönnun og uppdrættir er bætt við ákvæði um auglýsingaskilti.
Bætt er við nýjum kafla 3.10 Framkvæmdir.
Bætt er við nýjum kafla 4.19 Yfirlit bygginga á deiliskipulagssvæðinu.
Safnbraut við hlíðarfót Hnoðraholts er breytt í Sumarbraut sbr. samþykkt skipulagsnefndar 29.október 2020.

Á uppdrætti hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar.
Bætt hefur verið línu veghelgunarsvæðis Reykjanesbrautar.
Texta um hljóðvarnir er bætt við.

Með samþykkt deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulags Hnoðraholts-og Vetrarmýrar sem samþykkt var Skipulagsstjóra ríkisins þann 17. apríl 1996

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

12. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir blandaðri byggð með allt að 658 íbúðum og 37.014 m2 húsnæðis fyrir verslun og þjónustu og 41.009 m2 íþróttahúsnæðis. Alls 197.559 m2. Tillagan var í auglýsingu í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/201 frá 11.júní til og með 7.september 2020. Almennur kynningarfundur var haldinn 27.ágúst og var hann gagnvirkur fjarfundur á Facebook vegna samkomutakmarkana kórónufaraldursins. Samhliða var auglýst tillaga að umhverfisskýrslu samkvæmt 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem náði til Þróunarsvæðis B, Vífilsstaðalands og tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður.
Lagðar fram innsendar athugasemdir og umsagnir.
Lagðar fram tillögur að svörum við innsendum athugasemdum og umsögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir eftirfarandi breytingar/lagfæringar á auglýstri tillögu:
1. Skipulagssvæðið er minnkað "jarðbrú" yfir Reykjanesbraut verður hluti af deiliskipulagi fyrir Reykjanesbraut sem unnið verður síðar. Bætt er við texta í kafla 2.3 um þetta atriði.
2. Bætt er við í kafla 2.3 Umhverfi, texta um sjálfbær byggingarefni.
3. Bætt er við texta í kafla 2.7.5.
4. Bætt er við nýjum kafla 3.7 Blöndun byggðar.
5. Í kafla 3.8 Hönnun og uppdrættir er bætt við setningu um auglýsingaskilti.
6. Bætt er við nýjum kafla 3.10 Framkvæmdir.
7. Ákvæði um hæðarkóta hverrar hæðar í háhýsum verði leiðbeinandi.
8. Safnbraut við hlíðarfót Hnoðraholts breytt í Sumarbraut sbr.samþykki skipulagsnefndar 29.október sl.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið með ofangreindum breytingum í samræmi við 3.mgr.41.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við lög um mat á umhverfisáætlunum áætlana nr.105/2006.
Skipulagsnefnd samþykkir niðurfellingu deiliskipulags Hnoðraholts-og Vetrarmýrar sem samþykkt var Skipulagsstjóra ríkisins þann 17.apríl 1996 m.s.br. við gildistöku hins nýja deiliskipulags.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

11. fundur

Skipulagsráðgjafar og skipulagsstjóri kynntu hugmyndir að viðbrögðum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Vísað til frekari úrvinnslu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Skipulagsráðgjafar Batterísins, Landslags og Eflu kynntu greiningu á athugasemdum og umsögnum og viðruðu hugmyndir um möguleg viðbrögð.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

9. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar, ásamt umhverfisskýrslu, að lokinni auglýsingu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

9. (868). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020. (Mál nr. 1910293)

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

9. (868). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

11

21. (1929). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

6. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar. Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu gerði grein fyrir tillögunni.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir blandaðri byggð íbúða í fjölbýli, atvinnuhúsnæðis, verslunar auk íþróttamannvirkja. Einnig verða byggð bílahús á svæðinu.
Hæðir húsa verða á bilinu 4-5 hæðir. Fjöldi íbúða verður 658, atvinnuhúsnæði verður um 37.000 m² og íþróttamannvirki um um 43.000 m². Heildarbyggingarmagn ofanjarðar verður um 150.000 m². Áætlaður fjöldi bílastæða er um 2.700.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Auglýsing skal birt um miðjan júni og standa til ágústloka þegar athugasemdafrestur rennur út.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag Hnoðraholts-og Vetrarmýrar frá 1996.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

5. fundur

Skipulagsráðgjafar gerðu grein fyrir mótun tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar. Þeir ráðgjafar sem voru viðstaddir fundinn voru Sigurður Einarsson Betteríinu, Jóhanna Helgadóttir Eflu, Berglind Hallgrímsdóttir Eflu, Daði Baldur Ottósson Eflu og Þráinn Hauksson Landslagi ehf. Ólöf Kristjánsdóttir hjá Mannviti fór yfir atriði er lúta að BREEAM-vottun skipulagsins. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

4. fundur

Tillögu vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni og umhverfissviði.Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun: "Fulltrúi minnihlutans gerir athugasemd við útfærslu bílageymslubygginga meðfram Reykjanesbraut eins og hún er sett fram í þeim tillögum af deiliskipulagi Vetrarmýrar sem kynntar hafa verið. Ef lóðarhafar kjósa að byggja bílageymslur í kjöllurum húsanna verður til afgangssvæði meðfram Reykjanesbraut sem vandséð hvernig verður nýtt. Ekki verður séð hvernig samspil við bílastæðaþörf íþróttamannvirkja og annarar starfsemi á svæðinu getur orðið."

Umhverfisnefnd Garðabæjar

15

19. fundur

Skipulagsstjóri kynnir tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

16

15. fundur

ÍTG fagnar fram komnum deiliskipulagstillögum um íþróttasvæði í Vetrarmýri og leggur áherslu á að nægjanlegt rými verði fyrir framtíðar íþróttasvæði á svæðinu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

17

17. (857). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Vetrarmýri. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi, norðurhluta Hnoðraholts og Rjúpnadals.

Bæjarráð Garðabæjar

18

44. (1905). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Vetrarmýri. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi, norðurhluta Hnoðraholts og Rjúpnadals.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

19

16. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi blandaðar byggðar í Vetrarmýri sem skipulagsteymi Batterísins, Landslags og Eflu hafa unnið að í samstarfið við þróunarfélagið Spildu. Sigurður Einarsson gerði grein fyrir tillögunni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal forkynnt samhliða tillögum að deiliskipulagi, Hnoðraholts norður og Rjúpnadals og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til Vífilsstaðalands. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur. Tillögunni vísað til kynningar og umfjöllunar í umhverfisnefnd og íþrótta-og tómstundaráði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

15. fundur

Sigurður Einarsson úr skipulagsteymi Batterísins, Eflu og Landslags kynnti stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar sem unnið er að í samstarfi við Spildu ehf.

Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun: "Undirritaður fulltrúi minnihlutans á skipulagsnefnd lýsir yfir vonbrigðum með að hugmyndir og viðræður við Spildu vegna hugmynda um uppbyggingu í Vetrarmýri,skildu ekki kynntar og reifaðar í nefndinni - þar sem þær sannarlega hefðu átt heima
Hugmyndir sem þar koma eru gagnrýniverðar og vandséð hvaða tillgangi það þjónaði að kalla þær tillögur fram
Svo langt eru þær frá markmiðum rammaskipulagstillögunnar um markvissa þétta byggð með skýrum göturýmum og byggðamynstri."

Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði, skipulagsráðgjöfum og Spildu.