Beint í efni

15. fundur

24.10.2019
Skipulagsnefnd Garðabæjar

15. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu

24.10.2019

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1804367

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.

Sigurður Einarsson og Bergþóra Kristinsdóttir úr skipulagsteymi Batterísins, Eflu og Landslags kynntu stöðu á mótun breytingartillögu aðalskipulags sem sett verður fram sem rammahluti aðalskipulags og nær til Vífilsstaðalands.

Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði, skipulagsráðgjöfum og golfvallarhönnuði.

Málsnúmer 1910293

02

Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar.

Sigurður Einarsson úr skipulagsteymi Batterísins, Eflu og Landslags kynnti stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar sem unnið er að í samstarfi við Spildu ehf.

Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun: "Undirritaður fulltrúi minnihlutans á skipulagsnefnd lýsir yfir vonbrigðum með að hugmyndir og viðræður við Spildu vegna hugmynda um uppbyggingu í Vetrarmýri,skildu ekki kynntar og reifaðar í nefndinni - þar sem þær sannarlega hefðu átt heima

Hugmyndir sem þar koma eru gagnrýniverðar og vandséð hvaða tillgangi það þjónaði að kalla þær tillögur fram

Svo langt eru þær frá markmiðum rammaskipulagstillögunnar um markvissa þétta byggð með skýrum göturýmum og byggðamynstri."

Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði, skipulagsráðgjöfum og Spildu.

Málsnúmer 1906192

03

Hnoðraholt norður deiliskipulag

Sigurður Einarsson í skipulagsteymi Batterísins, Eflu og Landslags kynnti stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.

Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 1910294

04

Rjúpnadalur, dsk kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.

SIgurður Einarsson hjá skipulagsteymi Batterísins, Eflu og Landslags kynnti stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi Rjúpnadals.

Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 1906181

05

Jafnakur 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir skoðun sem ráðist hefur verið í til þess að fá yfirsýn yfir smáhýsi á lóðum í Akrahverfi. Engin ákvæði eru í deiliskipulagi um smáhýsi og gilda því ákvæði byggingarreglugerðar. Skipulagsnefnd telur að þegar að smáhýsi eru áföst byggingum þá þurfi þau að vera innan byggingarreits. Því þurfi að sækja um deiliskipulagsbreytingu ef útfæra á smáhýsið eins og fyrirspurn er að leggja til.

Málsnúmer 1910190

06

Víkurgata 7 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að skipta rahúsinu Víkurgata 7 upp í tvær eignir.

Svar skipulagsnefndar er að ekki er mælt með því að eigninni verði skipt upp en gerir ekki athugasemd við það þó sýnd sé stoðíbúð á aðalteikningum umræddrar eignar.

Málsnúmer 1902376

07

Urriðah Austurhl 1, Maríugata 1 - 3, deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Austurhluta að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1702322

08

Bessastaðir. Dsk breyting vegna aðkomu.

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða að lokinni auglýsingu. Engar almennar athugasemdir bárust. Ekki hafa allar umsagnir sem óskað hefur verið eftir borist. Málinu frestað til næsta fundar.

Málsnúmer 1910263

09

Flóðahjalli/Hádegisholt útivistarstígar

Lögð fram fyrirspurn frá Skógræktarfélagi Garðabæjar þar sem spurt er hvort félagið fengi heimild til þess að leggja útivistarstíga með svipuðum hætti og gert var í Smalaholti fyrir um áratug síðan.

Svar: Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart hugmyndinni og mælir með því að unnin verði tilllaga að aðalskipulagsbreytingu líkt og gert var árið 2009 í Smalaholti. Umrætt svæði er utan deiliskipulags en hefur skilgreiningu sem opið svæði í aðalskipulagi. Skipulagsnefnd leggur til að um leið verði stígakerfi í Setbergslandi og Urriðavatnslandi endurskoðað en t.d. hefur einnig verið kallað eftir breytingum á reiðstígum.

Málsnúmer 1910154

10

Aðalskipulag Reykjavíkur - færsla Korpulínu

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytingartillöguna.