Beint í efni

Bessastaðir. Dsk breyting vegna aðkomu.

Málsnúmer 1702322

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

17. (857). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr 41. gr. og bárust engar athugasemdir. Í umsögn Minjastofnunar er lagt til að forkönnun verði gerð á svæðinu áður en jarðvinna hefst. Skipulagsnefnd samþykkti að gera breytingar á greinargerð þannig að fram komi að forkönnun fornleifa fari fram áður en ráðist er í jarðvegsvinnu.

Bæjarráð Garðabæjar

02

44. (1905). fundur

Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr 41. gr. og bárust engar athugasemdir. Í umsögn Minjastofnunar er lagt til að forkönnun verði gerð á svæðinu áður en jarðvinna hefst. Skipulagsnefnd samþykkti að gera breytingar á greinargerð þannig að fram komi að forkönnun fornleifa fari fram áður en ráðist er í jarðvegsvinnu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

16. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Bessastaða að lokinni auglýsingu. Engar almennar athugasemdir bárust. Lögð fram umsögn Minjastofnunar dags.12.nóvember 2019 þar sem hvatt er til þess að forkönnun verði gerð á svæðinu áður en jarðvegsvinna hefst og að ráðist verði í fullnaðarskráningu fornminja innan deiliskipulassvæðisins. Skipulagsnefnd tekur undir umsögn Minjastofnunar og leggur til að bætt verði við ákvæði þess efnis í greingargerð deiliskipulagsbreytingarinnar að forkönnun fornleifa verði unnin áður en jarðvegsvinna hefst.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða að lokinni auglýsingu. Engar almennar athugasemdir bárust. Ekki hafa allar umsagnir sem óskað hefur verið eftir borist. Málinu frestað til næsta fundar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

26. (1887). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða vegna breytinga á aðkomu og bílastæðum við aðkoma að Bessastöðum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Bessastaða sem gerir ráð fyrir breytingum á aðkomu og bílastæðum framan við Bessastaði. Markmiðið er að að bæta öryggi og aðgengi ferðamanna og annara sem sækja Bessastaði heim.
Gert er ráð fyrir að bílastæði sem sýnd eru í brekkunni norðan og vestan við kirkju verð flutt yfir á túnið norðan við núverandi heimreið og fjær forsetasetrinu. Gert verður ráð fyrir um 110 bílastæðum sem munu hafa grænt yfirbragð og ætlað að vera áfram hluti af túnum Bessastaða. Gert verður ráð fyrir stæðum fyrir hópferðabíla meðfram heimreið að norðanverðu. Öryggishlið færist til.
Svæði sem breyting nær til og fjöldi bílastæða er talsvert minna en forkynnt tillaga gerði ráð fyrir.
Kveðið er á um efnisnotkun og útfærslu bílastæða á meðfylgjandi skýringaruppdráttum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 1.mgr.43.gr.sömu laga. Afla skal umsagna frá Minjastofnun, Vegagerðinni og veitustofnunum á auglýsingartíma.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

11. (833). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

11. (833). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Áður en tillagan verður auglýst eiga að liggja fyrir umsagnir Minjastofnunar, Vegagerðarinnar og Umhverfisstofnunar.

Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

09

31. (1846). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Áður en tillagan verður auglýst eiga að liggja fyrir umsagnir Minjastofnunar, Vegagerðarinnar og Umhverfisstofnunar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða sem gerir ráð fyrir breytingum á legu og útfærslu bílastæða og aðkomuvegar. Tillagan hefur verið forkynnt og ábendingar hafa ekki gefið tilefni til breytinga á tillögunni. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Áður en tillagan verður auglýst skal umsögn Minjastofnunar, Vegagerðarinnar og Umhverfisstofnunar liggja fyrir.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

12

23. (1838). fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

9. fundur

Lögð fram að nýju, að lokinni forkynningu, tillaga að breytingu að deiliskipulagi Bessastaða. Ein athugasemd barst þar sem óskað er eftir að gert verði ráð fyrir reiðleið um túnið við hlið heimreiðarinnar að Bessastöðum.
Skipulagsnefnd bendir á að gildandi aðalskipulag og Aðalskipulag Álftaness 2005-2024 gera ekki ráð fyrir reiðleið meðfram aðkomu að Bessastöðum. Ekki verður unnt að gera ráð fyrir þeirri tengingu nema með breytingu aðalskipulags og samráði við forsetaembættið.
Skipulagsnefnd vill leggja áherslu á að hugað verði að því við útfærslu á vegstæðinu að ekki verði um 6 metra breiðan malbikaðan aðkomuveg að ásamt 2 metra breiðum bílastæðum ræða sem liggur frá hringtorgi að heimreið Bessastaða. (alls 8 metrar)

Bæjarstjórn Garðabæjar

14

7. (829). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.

Bæjarráð Garðabæjar

15

14. (1829). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskpulagi Bessastaða sem gerir ráð fyrir að breyttri legu og stækkun bílastæðasvæðis,lagfærinumg á aðkomu og svæðis framan við kirkju. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal kynnt á íbúafundi þann 26.apríl.