Beint í efni

14. (1829). fundur

17.04.2018
Bæjarráð Garðabæjar

14. (1829). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

17.04.2018

Kl. 08:00 - 08:50

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1711067

01

Brekkuás 7-Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hákoni Magnússyni, kt. 050570-3639, leyfi til að byggja einbýlishús að Brekkuási 7.

Málsnúmer 1801229

02

Garðprýði 7- Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðprýði ehf., kt. 511115-0780, leyfi til að byggja einbýlishús að Garðprýði 7.

Málsnúmer 1802218

03

Lindarflöt 47 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fannýju Svövu Bjarnadóttur, kt. 210774-5059, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Lindaflöt 47.

Málsnúmer 1803184

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi athafnasvæði á Rjúpnahæð - breyting á vaxtarmörkum samkvæmt svæðisskipulagi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga um athafnasvæði á Rjúpnahæð - breyting á vaxtamörkum samkvæmt svæðisskipulagi verði vísað til kynningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1709351

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi kynningu á nýju deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702322

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1707058

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns vegna lóðanna við Hraunprýði 6-12, þar sem heimilað verður að breyta bílskýlum í lokaða bílgeymslu. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1801109

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsögn um umsókn um byggingarleyfi fyrir vegg á lóðinni við Túnfit 2.

Lögð fram.

Málsnúmer 1804093

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að synja umsókn lóðarhafa við Seinakur 2-10 um að breyta fimm einbýlishúsalóðum í átta raðhúsalóðir.

Málsnúmer 1711185

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu byggingarleyfis að Hegranesi 28.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Hegranes 28. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Málsnúmer 1803288

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á skipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits vegna byggingar geymslu í kjallara á lóðinni við Holtsbúð 45, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Málsnúmer 1705268

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallabraut, tenging Vallahverfis og Áslands við Kaldárselsveg.

Lögð fram.

Málsnúmer 1712136

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnislýsingu vegna breytingar á svæðisskipulagi - Vaxtarmörk á Álfsnesi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að samþykkja verkefnalýsingu vegna tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar vaxtarmörk á Álfsnesi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702066

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðissins - Borgarlína.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar á breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar samgöngu- þróunarása fyrir borgarlínu. Við ákvörðun á legu skal tekið tillit til ákvæða aðalskipulags um að samgönguás borgarlínu liggi ofan á stokk sem gert er ráð fyrir að lagður verði um hluta Hafnarfjarðarvegar um Garðabæ.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804019

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmelum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja jákvæða umsögn skipulagsnefndar vegna breytinga á deiliskipulagi svæðis við Hrafnistu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804084

16

Ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2018.

Lögð fram og vísað til kynningar í ungmennaráði, skólanefnd, íþrótta- og tómstundaráði, mannréttinda- og forvarnanefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804086

17

Nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir árin 2019-2023.

Málsnúmer 1804087

18

Minnisblað sambands ísl. sveitarfélaga um kostnað við innleiðingu nýrra reglna um persónuvernd, dags 26.03.18.

Málsnúmer 1804127

19

Tillaga um gjaldskrá skólagarða og matjurtagarða 2018.

Bæjarráð samþykkir tillögu garðyrkjustjóra að gjaldskrá skólagarða og matjurtagarða 2018.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804156

20

Umsóknir um stöðu skólastjóra Álftanesskóla.

Forstöðumaður- fræðslu og menningarsviðs gerði grein fyrir umsóknum um stöðu skólastjóra Álftanesskóla og sagði frá helstu áherslum við ráðningu í starfið.

Málsnúmer 1801001

21

Tillaga kjörstjórnar um fjölgun kjördeilda.

Bæjarráð samþykkir tillögu kjörstjórnar um fjölgun kjördeilda í FG úr sjö í átta.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804157

22

Tillaga um laun í Vinnuskóla Garðabæjar 2018.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu tómstundafulltrúa um laun og vinnutíma í vinnuskóla sumarið 2018.

Unglingar 14 ára (f.2004) kr. 550 pr.klst.

Unglingar 15 ára (f.2003) kr. 620 pr.klst.

Unglingar 16 ára (f.2002) kr. 825 pr.klst.

Vinnutími 15 og 16 ára unglinga verður 27,5 klst á viku en 14 ára 12,5 klst í 16 klst á viku.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804119

23

Ársreikningur Strætó bs. fyrir árið 2017.

Lagður fram.

Málsnúmer 1804158

24

Ársskýrsla og ársreikningur heilbrigðiseftirlits fyrir árið 2017.

Lagður fram ársreikningur ásamt ársskýrslu.

Málsnúmer 1804166

25

Umsókn Kvennakórs Garðabæjar um styrk vegna kóramóts og námskeiðs, dags. 08.04.18.

Lögð fram afgreiðsla menningar og safnanefndar frá fundi 13. apríl þar sem tekið er jákvætt í umsókn um styrk vegna þátttöku kórsins á kóramóti og námskeiði sem halda á í Vancouver Kanada sumarið 2018.

Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804167

26

Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi landsmót hestamanna 2022, dags. 13.04.18.

Bæjarráð samþykkir tillögu um skipun sameiginlegs starfshóps Spretts, Kópavogsbæjar og Garðabæjar sem komi að undirbúningi vegna landsmóts hestamanna 2022 sem verður haldið á félagssvæði Spretts.

Bæjarráð tilnefnir formann íþrótta- og tómstundaráðs og íþróttafulltrúa til setu í starfshópnum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1711191

27

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi niðurstöður ytra mats á starfsemi Flataskóla, dags. 10.04.18.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu niðurstöðum varðandi stjórnun, nám og kennslu og innra mat.

Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1803378

28

Svör við fyrirspurn varðandi félagslegt húsnæði.

Málsnúmer 1803358

29

Svör við fyrirspurn um afgreiðslu mála.